Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2000, Síða 28

Bjarmi - 01.12.2000, Síða 28
Rætt við Karl S. Guómundsson forystumann samtakanna ... Viótal: Haraldurjóhannsson Menn með markmió Það vakti nokkra athygli á vordögum þegar hópur karlmanna tók sér stöóu fyrir utan nektardansstaói og dreifói bæklingum til þeirra sem hugðust fara inn. Þarna var um að ræða samtök- in Menn með markmið. Til að fræðast nánar um þau fór Bjarmi á stúfana og átti tal við forystumann samtakanna, Karl S. Guðmundsson, tölvuverkfræðing. Hann byrjaói á aó segja frá trúarlegum bakgrunni sínum. — Eg átti mína barnatrú en ég sá ekki hinn þríeina Guð fyrr en ég var 28 ára. Eg ólst upp í Reykjavík en flutti til Akur- eyrar á þeim aldri. Fjölskyldan hafði flutt á undan mér og þegar ég kom var konan mín farin aó taka þátt í starfi hvíta- sunnusafnaðarins. Eg var ekkert of hrif- inn af því til aó byrja með. Mér fannst Jesús vera fremur æðstiprestur en Guð. Eg var vélstjóri á þessum tíma og tók með mér Nýja testamentið út á sjó til að geta svarað heilagsandahoppurum Hvítasunnukirkjunnar þegar talið barst að trúmálum. Þegar ég las það laukst upp fýrir mér hver Jesús er og ég eignað- ist smám saman lifandi trú á Guð. A Kotmóti árið eftir gaf Guð mér svo trúar- fullvissu. En hvernig kynntist þú svo kirkjulegu starf meðal karlmanna? — Árió 1991 flutti égtil Bandaríkjanna til aó fara í nám. Það eignaðist ég gott samfélag í kirkju. Þar heyrði ég um sam- tökin Promise keepers, raunar ekki hjá söfnuóinum heldur í útvarpinu. Eg man að ég var að keyra í bílnum mínum og varð svo snortinn aó tárin flæddu og ég varð aó stoppa. Eg bað Guó um tækifæri til að komast á mót hjá samtökunum. Næsta ár var ég í prófum en árið þar á eftir komst ég fyrst á Promise keeper mót ásamt 67000 öórum karlmönnum. Guó ýtti við mér og ég fór að biðja fýrir kristi- legu karlastarfi á Islandi en mér fannst það ekki vera mitt hlutverk aó standa fyrir því. Árió eftir fannst mér Guð aftur vera að tala við mig en ég ýtti því aftur frá mér. Haustið 1997 var stór ráóstefna undir yfirskriftinni Stand in the gap. Þangað komu 1,4 milljónir karlmanna. Þar kom fram áskorun um að hittast á ný 1. janúar árió 2000. Eg fylltist löngun til að vera þar með en mér fannst Guó hafa aóra áætlun. Sem fjölskylda fórum við að biðja saman og leita vilja Guðs. I febrúar 1998 kom ég svo til Islands í afmæli móður minnar og sótti þá um starf á nokkrum stöðum í leiðinni. Þegar vió vorum að leita vilja Drottins, skömmu eftir að ég kom heim frá Islandi, gaf Drottinn hverju einasta af okkur í fjölskyldunni Karl S. Guðmundsson. sama versió þegar við drógum manna- korn. Vió fengum öll sex sama versió á einni viku. Það erjeremía 30:10: „Ottast þú ekki, þjónn minnjakob — segir Drott- inn — og hræðst þú ekki, ísrael, því að ég frelsa þig úr fjarlægu landi og leysi niója þína úr landinu, þar sem þeir eru her- leiddir, til þess aójakob hverfi heim aft- ur og njóti hvíldar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.“ Þá ákváðum við að þiggja það starf sem ég hef nú og flytja aftur til íslands. Þegar ég kom heim byrjaði ég með karlastarf í Fíladelfíu. Hugmyndirnar eru fengnar frá Promise keepers, en við kennum okkur þó ekki við þau samtök, enda þarf að uppfylla ýmis skilyrði til þess og þaö er langt ferli. Við fórum gegnum loforóin sjö sem Promise 28

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.