Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.2000, Qupperneq 32

Bjarmi - 01.12.2000, Qupperneq 32
Rætt vió Jenný Guómundsdóttur myndlistarkonu Sköpun Guós í heilögum anda Viótal: Henning E. Magnússon Fyrir nokkrum vikum var haldin mynd- listarsýning í Geróarsafni í Kópavogi sem bar titilinn: „Sköpun heimsins — I nafrii Guðs, föður, sonar og heilags anda.“ Þaó er ekki oft sem svo áber- andi trúarlegur tónn heyrist í titli list- sýningar og því fór tíðindamaóur Bjarma og tók listakonuna sem að sýningunni stóð tali. Hvernig stendur á þessum trúarlegu áherslum í sýningunni? — Ég hef alltaf verió leitandi í minni myndlist og mér finnst ekki vera hægt aó skapa án þess að hafa hið andlega meó, hafa Guó meó. Þessar myndir sem ég er að vinna, þessi sýning, er því eitthvað sem Guð hefur lengi verió að vinna í mér. Ég man að sem barn var ég aó ganga úti á götu og var að horfa upp í himininn á stjörnurnar og var að hugsa um Guð. Ég hef alla tíð verið trúhneigð. Ég missi pabba minn tíu ára gömul og tók þá af- stöðu að ég ætti mér föður í Guói. Ég bað á hverju kvöldi. Ég man síóan aó þegar ég var aó fermast fannst mér það vera stórt skref en ég geröi mér samt ekki alveg grein fyrir því hvað kristin trú er. Það var eins og fræóslan hafi ekki alveg náð í gegn. Ég gerði mér heldur ekki grein fyrir því hvort það væri almennt munur á trúarbrögóum. Eftir myndlistarnámió fór ég að vinna í grafíkinni og öllu mögulegu meó og eign- aóist um svipað leyti þriója barnið og ég keyrði heilsuna í kaf. Þetta var alltof mikið vinnuálag.og þá fór ég aó pæla í því hvern- ig ég gæti náð jafnvægi og friði í líf mitt. A þeim tíma var margt í gangi í þjóðfélag- inu, t.d. jóga og slökun, og ég leitaði inn á það svið. Ég lærði jóga og það endaði með því aó ég varó jógakennari. Ég var jógakennari í sex ár. Einhvern veginn var þetta samt aldrei nóg. Ég náói kannski á- kveðnu jafnvægi en það nægði mér þó ekki. Eftir á að hyggja hugsa ég stundum um það af hverju Guð sendi ekki strax ein- hvern með fagnaðarboóskapinn, en mað- ur veit ekki sína ævi fyrr en öll er. Einhvern tíma var ég aó ræða við vin- konu mína sem var í svipuðum pælingum. Hún var að tala um aó hið illa vaði yfir mann á skítugum skónum en aó hið góða verði maóur aó bjóða velkomið. Og þá fór ég að hugsa: „Hvað er hið góða?“ Ég hef alltaf signt mig, ég var alin upp við það. Ég signdi mig því alltaf áður en ég gerði jóga. Einhvern tíma var ég aó signa mig og hugsaði þá: „Heilagur andi, þaó er ábyggilega eitthvað gott.“ Ég byrjaói því að bjóða heilagan anda velkominn. Mér brá mikió við þetta því ég fann snertingu andans. Mér leið vel á eftir. Ég hélt áfram að gera þetta í eitt til tvö ár áður en ég steig trúarlega skrefið að fullu. Þegar ég fer að hugsa um vinnuna með myndirnar þá er um sjö ára tímabil að ræða. Þetta var mikill umbreytingartími. Guö hefur alla tíö gefið mér myndir, ég sé í myndum. Guó er skapari og upphaf allr- ar sköpunar. Þegar hann skapaði jörðina vissi hann nákvæmlega hvað hann ætlaði að skapa, hann var búinn að sjá hvaó hann ætlaði að skapa. Síðan talaði hann og þaó varð. Guð talar í myndum. Jesús talar mjög myndrænt. Ég finn hvernig Guó hefur gefið mér myndir, hvernig hann hef- ur verió að vinna með mér. Hvernig vinnur þú myndirnar? — Þegar ég er á vinnustofunni bið ég stöðugt um handleiðslu Guðs. Margir 32

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.