Bjarmi - 01.11.2002, Qupperneq 13
vegar fyrirbænaþjónusta og þess vegna
þurfum við aó vera mörg, prestarnir. Vió
höfum verió vió þetta fimm prestar mest og
fengió stuóning frá leikfólki og djákna. Hitt
atrióið var aó vió þurfum að hafa létta
músík, þaó var mikió basl til að byrja meó
en svo vorum vió svo stálheppin, og það var
hrein og klár Guós handleiðsla, að vió feng-
um þá bræður Hörð og Birgi Bragasyni og
Onnu Sigríói Helgadóttur söngkonu til þess
aó bera hitann og þungan af tónlistarmál-
unum. Þau eru oróin hluti af ímynd æðru-
leysismessunnar. Anna Sigga syngur bæói
veraldleg lög og sálma og hefur mikla út-
geislun og er einstaklega lífleg. Hún hefur
tengt fólkió vió sig hlýjum böndum. Höró-
ur er ákaflega fjölhæfur tónlistarmaður og
Birgir bróðir hans fylgir honum fast á eftir.
Síðan höfum við fengið gesti til að syngja
og spila. Fólkió syngur mikið og tekur vel
undir, það er mjög mikilvægt í stemmning-
unni við æóruleysismessuna. En það sem
gefur messunni gildi er að einhver kemur og
segir frá reynslu sinni í baráttunni og þá
finnum við að messan hefur gert sig. Þá er
allt orðið opið fyrir hinu talaóa orði sem
við höfum skipst á að prédika, prestarnir.
Þar á eftir er fyrirbæn, fyrst almenn og síó-
an er í flestum messum boðió upp á það að
koma fram og þiggja fyrirbæn við altarió.
Síóan biður presturinn bænar og blessar
fólkið. Vió höfum talsvert notaó smurningu
og fmnst okkur hafa ratað þar á heppilegt
tákn um persónulega hlýju, umhyggju, bæn
og blessun. Við notum hana ekki sem
sakramenti, heldur lítum vió á þetta sem
spenntar greipar, reykelsisilm eða kertaljós.
Fólkið finnur ilm í lófa sér og mýkt löngu
eftir að það er komió úr athöfninni og er
þannig minnt á að það hafi hlotió blessun.
Við höfum reynt aó vera til taks bæði fyrir
og eftir athöfnina ef að fólk hefur viljað
ræða við okkur og panta viðtöl. Form mess-
unnar hefur alla tíð verið afar einfalt og hef-
ur samanstaðið af reynslusögu, prédikun
og fyrirbæn. Eins eru ákveðin innskot sem
stjórnandi ákveóur aó koma með á sam-
komuna. Stundum höfum við verið meö
altarisgöngu og reynt að hafa dálitla til-
breytingu.
Hafið pið fýlgt messunum eftir á einhvern hátt?
Það hefur tengst þessu kristilegt tólf
spora-starf. Þá höfum vió getaó farið í
gegnum sporin með þeim á hreinum kristi-
legum forsendum. Þetta teljum við mikils
virði og góða vióbót við fjölbreytileika kirkj-
unnar. Sjálfir hafa AA-mennirnir svolítinn
ímugust á þessu því þeir vilja allir aó sporin
tólfveröi annaó en eign AA-hreyfingarinn-
ar. Þegar þeir sjá aó vió breytum sporunum
ekki í neinu heldur leggjum inn þá kristilegu
trúarhugsun sem tengjast hverju spori þá
róast þeir nú. Þetta er náttúrlega það sem
hver gerir fyrir sig í vinnunni meó sporin
tólf, að leggja inn þá trú og þann skilning
sem viókomandi hefur. Þannig aó þetta er
meinlaust hvaó það sjónarmið varðar en
stórábatasamt fyrir kristna mannseskju
sem hefur rataó í þessar raunir.
Hvaða fólk hefur komið að pessu með pér?
Þau sem hafa verió meó okkur í þessu eru
sr. Karl V. Matthíasson, sr. Anna Pálsdóttir,
sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og núna seinast
er kominn til liðs við okkur sr. Hjálmarjóns-
13