Bjarmi - 01.11.2002, Blaðsíða 14
son. Einnig hafa þar stutt okkur vel þær
Ragnheióur Sverrisdóttir og Bryndís Val-
bjarnardóttir. Ábyrgóarmaður gagnvart
sóknarnefnd og út á vió hefur verió Marinó
Þorsteinsson, varaformaóur sóknarnefndar-
innar okkar. Þaó hafa verið talsveró tengsl
milli æóruleysismessunnar og miðborgar-
starfsins og á milli Dómkirkjunnar og mió-
borgarstarfsins. Þaó skiptir miklu máli því að
ég sé aó hvaó styrkir annaó í þessum málum.
Finnst pér pú hafa séð ákveðna próun á peim
tíma sem ceðrueysismessan hefur verið í boði?
Það mótaóist mjög fljótlega ákveóinn
kjarni fólks sem sótti messuna og hann hef-
urverió nokkuó stöóugur. Hann hefur end-
urnýjast dálítió en þaó er alltaf dálítill
kjarni og flestir koma oftar en einu sinni
sýnist mér. Sækí einhverjir sér styrk í þetta á
ákveónum áfanga þá er þaó gott og e.t.v.
veróur þaó til aó þau fari að sækja kirkju
reglulega. Þó hefur í haust oróió mikilvæg
nýbreytni í tengslum vió þetta starf. Vió
höfum hafió biblíulestra í tengslum vió
sporin tólf meó reynslu alkohólista í huga.
Sömuleiðis veróa kyrrðardagar í Skálholti á
sömu nótum í nóvember. Þungamiðjan er
og veróur þó þessi reglulega samkoma í
húsi Guðs þar sem „vió samhæfum reynslu
okkar, vonir og þrá“ í Heilögum anda.
KÍNA
Leynileg bænasamkoma
Um þaó bil 30 kaupsýslumenn, læknar og framkvæmda-
stjórar söfnuóust saman nýlega í dögun á efstu hæð
skrifstofuháhýsis til aó fara á leynilegan bænafund. Staö-
setningunni er haldið leyndri. Samkvæmt Telegraph UK
veróa kristnir menn aó grípa til þessara neyóarúrræóa til
þess aó koma í veg fýrir aó kommúnistastjórnin í Kína upp-
götvi þetta. Það voru þessar aóstæður sem Bush Bandaríkja-
forseti talaði um í heimsókn sinni til Kína nýlega. Hann sagói
aó „trúfrelsi væri ekkert til aó óttast, heldur ætti það aó vera
sjálfsagt."
Einn úr hópnum sagði: „Síóastlióin 50 ár hafa margar af
sterkustu heföum Kína, eins og Konfúsíusismi, glatast.
Kristindómurinn fýllir þetta tómarúm fyrir marga eins og
mig.“ Það er álitiö aó meira en 60 milljónir Kínverja safnist
saman reglulega á fjölskyldusamverum (jia ting ju hui), sem
mynda hina leynilegu kristnu kirkju I Kína.
Annar í hópnum sagói: „Kommúnisminn er nú þegar bú-
inn aó missa tökin á huga fólksins en ríkisstjórnin óttast enn
samkeppni kristninnar um hjörtu fólksins.... Vió þörfnumst
leiótoga eins og Bush til aó skapa þrýsting til aó tryggja okk-
ur trúfrelsi."
(Religion Today)
BANDARÍKIN
Kross út í geiminn
Bandaríkjamaóurinn Arthur Blessitt hefur í 30 ár gengió
með kross á bakinu um mörg lönd heims. Hann hefur
gengió 5.667 mílur um 292 lönd. Nafn hans hefur því verið
skráð í Heimsmetabók Guinness. Nú hefur Blessitt uppi ný
áform. Hann hyggst senda
krossinn út í geiminn eða rétt-
ara sagt kross sem er skorinn
út úr krossinum sem hann
hefur gengiö meó í gegnum
árin. Ætlunin er aó setja
krossinn í gervihnött sem
koma á á braut umhverfis
jöróu. Auk krossins ætlar Blessitt aó setja litla Biblíu í gervi-
hnöttinn.
Reiknað er með aó gervihnötturinn fari umhverfis jörðu á
hálfum öðrum klukkutíma og að hann geti verið á sporbraut
í um 150 ár. Þá veróur krossinn búinn aó fara u.þ.b. milljón
sinnum umhverfis jöróu.
( Budbáraren)
um^ i
viöa'
—iveröld
14