Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.2002, Blaðsíða 22

Bjarmi - 01.11.2002, Blaðsíða 22
Náóargjöf aminmngarinnar Guólaugur Gunnarsson Gjafir heilags anda eru margvíslegar en hafa þó eitt markmió, aó byggja upp söfnuóinn og draga einstaklingana nær Guói. Ein af þeim gjöfum sem Páll postuli nefnir í 1 2. kafla Rómverjabréfsins er náóargjöfin aó áminna. Hann undir- strikar aó þeir sem hafi fengið slíka gjöf eigi aó sinna henni: „Sá sem áminnir, hann áminni" (v. 8). Hvaó merkir að áminna? Margir misskilja náóargjöf áminningarinn- ar og telja aó hún eigi aóallega við um hvetjandi eða áminnandi predikun úr ræóustól. Gríska oróió parakaleo sem þýtt er í íslensku Biblíunni sem þaó „aó áminna" hefur miklu víótækari merkingu en „sköruleg áminningarræóa". Oróió paraka- leo mætti allt eins þýóa „hvetja" eóa „upp- örva“. Þaó hefur eiginlega margvíslega merkingu og getur þýtt aó kalla til sín, bjóða, vekja (meó áminningu eóa hvatn- ingu). Það er samsett úr tveimur oróum: para = „til hlióar", kaleo = „kalla". Það vís- ar því í hugmyndina að kalla einhvern að hlió sér til aó hugga og styrkja, uppörva hann. Oróió getur líka haft merkinguna aó vara vió eóa áminna varóandi framtíóina, 1. Þess. 4,10. Þaó er skylt oróinu parakles- is sem þýóir aó kalla sér til hjálpar, áfrýja, uppörva, hvetja, leggja fast að, hugga, hug- hreysta (2. Kor. 8,4; Róm. 15,4.) í Jóh. 16,7 er heilagur andi kallaður parakletos, þ.e. „hjálpari", sá sem kallaóur er til aó- stoðar. í 1. Jóh. 2,1 er Jesús kallaður „tals- maóur" meó sama orói. Hvaó er náóargjöf áminningarinnar? Þetta er sérstakur hæfileiki sem Guó gefur ákveðnum einstaklingum í söfnuðinum til aó gefa öórum trúsystkinum huggun, áminningu, uppörvun og ráó þeim til hjálp- ar og andlegrar lækningar. Fólk meó þessa gjöf hvetur okkur og uppbyggir andlega, þaó hughreystir okkur og styrkir. Þaó vekur með okkur löngun til aó lifa fýrir Guó. Þetta felur í sér hæfileikann aó setja sig í spor þeirra sem eiga í vanda, standa meó þeim og byggja þá upp, hvetja þá og styrkja og hjálpa þeim aó bera byróar þeirra. Þessi gjöf Guós gerir þeim sem hana hlýt- ur auóvelt aó ákalla og höfóa til annarra af sannfæringu og bjóða þeim að vera þátt- takendur í verki Guós eóa beina þeim inn á veg hans. Guó gefur einstaklingum þennan hæfileika aó geta nálgast aóra (sem geta átt vió andleg eða tilfinningaleg særindi aó stríóa) og hugga þá með uppörvunaroró- um varóandi það sem þeir hafa gengió í gegnum eða hvetja þá, áminna (segja sann- leikann í kærleika) eða leggja aó þeim og skora á þá, þannig aó þeir gangi á þeim vegi sem Guó ætlar þeim. Gjöf áminningarinnar / hvatningarinnar er lýst sem hluta af þjónustu spámannsgáf- unnar. „En spámaóurinn talar til manna, þeim til uppbyggingar, áminningar og huggunar" (1. Kor. 14,3-4 og31). Þessi gjöf getur einnig tengst náóargjöfum predikunar og kennslu. Aminning er meira en bara hvatning, hún felur í sér áskorun, aóvörun, ákall, uppörvun. Markmióið er að hvetja söfnuóinn til nánara sambands viðjesú. Slík gjöf er dýrmæt í predikun jafnt sem sálusorg- un og samtali milli einstaklinga. Notkun Þaó er svo margt sem drepur niður andlegan vöxt og þroska einstaklinga jafnt sem safn- aða, m.a. ótti, efasemdir, misskilningur og andlegar árásir. Allt þetta notar óvinurinn til þess aó koma í veg fýrir að kirkja Jesú Krists sé lifandi og á verói. Þeir sem eiga náðargjöf áminningarinnar koma auga á þessar hættur og benda á þær hvort sem þær koma innan frá eða utan. Þeir hvetja og áminna líkama Krists, söfnuðinn, og einstaklingana. Oft ger- ist þetta fýrir spámannlegan boóskap, en einnig fýrir bein áminningaroró þeirra. Þessi gjöf er fýrir alla trúaóa, svo vió getum hvatt og uppörvað hvert annaó til aó vaxa í kær- leika og þroska í samfélaginu viójesú. Dæmi Við sjáum hvemig uppörvun og hvatning skiptir miklu máli í Gamla testamentinu: Jósúa uppörvaói t.d. og hvatti Móse og tengdafaðir hans einnig, 2. Mós. 18. I Nýja testamentinu sjáum við enn skýrari dæmi: I Ef. 6,22 kemur fram aó Páll sendi Týkíkus til Efesus til að uppörva söfnuóinn. Páll var þá í fangelsi og söfnuóurinn í mik- illi geóshræringu. - Enn skýrara dæmi um þessa náóargjöf sést í manni sem fékk vió- urnefni vegna hennar og þjónustunnar sem hann hafði í frumkirkjunni. Þaó var maður frá Kýpur aó nafni Jósef sem postularnir kölluðu Barnabas („sonur uppörvunarinnar" eða „huggunar sonur“), Post. 4,36. Ef vió fýlgjum honum eftir sjá- um við í kafla 9,27 hvernig Barnabas tók Pál að sér eftir afturhvarf hans og kynnti hann meóal postulanna og hjálpaði hon- um í erfióri aóstöóu hans sem fýrrverandi ofsækjandi safnaóarins, enda óttuóust hann margir af þeim sökum. Óttinn vió aó taka við því sem Guð hafói gert hvarf fýrir hvatningu og uppörvun Barnabasar. Barnabas tók aó sér Markús eftir aó Páll hafði hafnaó honum og vildi ekki taka hann meó í kristniboðsferð þar sem hann hafói ekki haldið út í fýrri ferð hans. Barna- bas sá annaó í Markúsi en Páll gerói, Post. 15,36nn. Barnabas kom í veg fýrir aó Mark- ús missti móóinn oggæfist upp, fýrir hvatn- ingu hans hélt hann þjónustunni áfram. Áminning er meira en bara hvatning, hún felur í sér áskorun, aðvörun, ákall, uppörvun. Marmiöió er að hvetja söfnuðinn til nánara sambanás við Jesu. Slík gjöf er dýrmœt í predikun jafnt sem sálusorgun og samtali milli einstaklinga. 22

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.