Bjarmi - 01.11.2002, Qupperneq 21
l1 \
—4 I )
\ inuy
lLLcuajii^
Síóast, en alls ekki síst: Við fáum hvatn-
ingu til aó halda áfram aó útbreióa fagnað-
arerindi Jesú Krists meóal unga fólksins í
samfélagi okkar.
Reist verður KFUM þorp í Letna-garði í
Prag. Þetta svæói er um tveggja kílómetra
langt og einn kílómetri að breidd, nálægt
Moldá, um fimm mínútur frá miðborg
Prag. I einu horni þorpsins verður reist stórt
svið og víðs vegar um svæðið verða um 800
önnur tjöld. Einhverjar uppákomur veróa
svo á Gamla torginu, við Karlsbrúna og á
fleiri stöóum víðs vegar um miðborg Prag.
I KFUM þorpinu verður meóal annars
boóið upp á: Lofgjörð, kapellur, internet,
,,chill“ svæði, ýmsar uppákomur og ræóu-
menn.
Daglega veróa í boói um 100 verkstæði
(workshops) og málstofur um allt milli
himins ogjaróar. Sýningarbásar verða fyrir
aóildarfélög KFUM, kynning á verkefnum,
upplýsingar um KFUM gistihús og tjald-
svæói, hægt verður aó mynda samstarf vió
önnur KFUM félög, kynning verður á sjálf-
boóastarfi innan KFUM, kaffihús, veitinga-
tjald, verslanir, banki, fréttamióstöó, kjör-
búð og minjagripir.
Á kvöldin verður meðal annars boðið
upp á diskótek, kvikmyndahús, hljómsveit-
ir, listviðburði og kabarett.
Iþróttir skipa stóran sess á mótinu. Allir
geta tekið þátt og haldnar veróa keppnir í
nokkrum greinum en hér er ólympíski hátt-
urinn hafður á, þar sem þáttaka er meira
virði en sigur.
Meðal þess sem veróur í boði er blak, úti-
vist, tómstundasvæói, götu-körfubolti, fót-
bolti, handbolti, ratleikur í skóginum,
hjólabretti, hlaup, borðtennis, þríþraut,
fiskveióar, sigling á kanó o.fl. o.fl.
Allt þetta veróur í boói og margt
margt margt margt fleira...
Hefur þú efni á aö missa af þessu?!?
Geturðu ímyndað þér stemmninguna aó
borða morgunmat meó 8.000 öðrum
KFUM-urum í Prag?!?!
Ef þú hefur spurningar, fýrirspurnir eóa
athugasemdir sendu þá íslensku undirbún-
ingsnefndinni póst á prag2003@strik.is
Eg vil bjóða öllum þeim sem verða orón-
ir 18 ára aó fylkja liði og koma meó mér til
Prag. Stemmningin veróur gríðarleg! ís-
lenska undirbúningsnefndin ákvað að setja
aldursmörkin við sjálfræðisaldurinn því all-
ir sem eru undir 18 ára aldri þurfa aó hafa
meó sér leiótoga á mótió.
Og verðið...
280 Evrur fýrir þá sem eru 19 ára og eldri
(fædd fýrir 3. ágúst 1984). 215 Evrur fýrir
þá sem eru yngri en 19 ára (fædd frá og
með 3. ágúst 1984)
Innifalið í verðinu er gisting í ágætis her-
bergi á stúdentagöróum, þrjár máltíðir á
dag, öll dagskrá mótsins, tímarit sem búió
veróur til fýrir mótió, miöi í almennings-
samgöngur borgarinnar, tónleikar og fleira.
Eg veit að þetta er ekki spurning um
HVORT þú ætlar aó skrá þig heldur
HVENÆR. Af því tilefni vil ég geta þess að
því fýrr sem þú skráir þig, því betra vegna
þess aó síðasti skráningardagur er 19. des-
ember. Ekki gleyma því!
Skráning fer fram á netfanginu:
prag2003@strik.is
Kíktu líka inn á heimasíóuna:
www.2003.eay.org
Jóhanna Sesselja Erludóttir er alpjóðafulltrúi
KFUM og KFUK.
21