Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.2002, Page 25

Bjarmi - 01.11.2002, Page 25
Fjöldi unglinganna hélt áfram aó aukast og að lokum sprengdi unglingastarfið utan af sér húsnæði kirkjunnar. Þetta varð til þess að starfsemin var flutt til Willow Creek kvikmyndahússins, sem var leigt um helgar. Það gat tekió 970 manns í sæti. Vörubíl fullum af hátölurum og öðrum tæknibún- aði var ekió þangaó klukkan (jögur á hverj- um sunnudagsmorgni. Síðan tók við mikil vinna við aó setja allan búnanðinn upp. Þetta var gert á hverjum sunnudagsmorgni í fimm og hálft ár og síðan þurfti að taka allt saman þegar guðsþjónustunni var lok- ið. Leiklistarhópur mætti kl. sex á æfingu og til hljóðprufu. Síðan hófst guðsþjónustan kl. níu þar sem allir gerðu sitt besta. Vel undirbúin margmiðlunarsýning var hluti af dagskránni, ritningarlestur og prédikun. Flutningurinn til kvikmyndahússins var stórt skref og Bill Hybels, sem var aóeins 23 ára, og vinur hans gerðust persónulega ábyrgir fyrir greiðslu húsaleigunnar. Vióhorfskönnun Fólk á þessu svæói stundaói að jafnaói ekki kirkjugöngur og því gerói Bill og nánasta samstarfsfólk hans könnun á því hvers vegna svo væri. Gengið var í hús og spurt hvort viðmælendur sæktu kirkju. Svarió var yfirleitt nei. Þá voru þeir spuróir hvort þeir vildu segja ástæðuna. Svörin féllu í fjóra flokka. 1. Kirkjan höfðaði ekki á neinn hátt til dag- legs lífs. Dæmigert svar var á þessa leið: „Hjóna- bandið mitt er í miklum vanda. Ég hef ekki stjórn á elsta syni mínum. Eiginmaóur minn getur ekki sýnt börnunum kærleika. Ég er að missa vonina og veit ekki hvað ég á aó gera. Stundum langar mig til aó binda endi á þetta allt saman en er hrædd við dauðann. Aóur fýrr taldi ég að Guð gæti 25

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.