Heima er bezt - 01.01.1955, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.01.1955, Blaðsíða 19
Nr. 1 Heima er bezt 15 Taktu maður, vara d þér Kona ein í Kanada sendi mér nýlega sögu þá, sem hér fer á eldri getum við kallað Miriam, en Luise þá yngri. Það eru ekki þeirra réttu nöfn, en að lestri sögunnar loknum mun öllum ljóst, hvers vegna þeim er haldið leyndum. Siðustu árin, sem faðir þeirra lifði, var hann ekkjumaður, en þær sáu um heimilið fyrir hann. Þegar hann dó, var Luise aðeins sextán ára gömul, en Miriam nokkrum árum eldri. Það var ár- ið 1912. Eigur hans féllu þá ó- skertar til þeirra systranna, og þó að arfurinn væri ekki mikill, var þeim þó nokkur styrkur að honum. Kvöld eitt, skömmu eftir að faðir þeirra var jarðaður, sátu þær og ræddu um framtíðina. „Það, sem ég óska mér helzt, er að ferðast. ... Ég vildi óska, að við gætum farið í ferðalag og séð einhverja af þessum fögru stöðum, sem við höfum lesið um“, sagði Luise og dró djúpt andann af hrifningu við tilhugs- unina. „Við höfum ekki ráð á því“, svaraði Miriam. Næsta vor tóku systurnar sig upp og fluttu burt úr átthögun- um. Þær settust að í smábæ í Austur-Kanada og settu þar á stofn litla sveitaverzlun. Þetta heppnaðist vel, enda skorti þær hvorki dugnað né kappsemi. Þar að auki voru þær bæði fríðar og gervilegar stúlkur, og fólkið lað- aðist að þeim. Að fáum árum liðnum var litla sölubúðin, sem þær byrjuðu með, orðin að fjöl- sóttasta verzlunarhúsi, sem þá var til í þessum ómilda lands- hluta. Dag einn var langferðavagni, merktum Flórida, ekið að búðar- dyrum systranna. Nokkrir ungir og myndarlegir menn stigu út úr honum og fóru inn í verzlun- ina. Þar keyptu þeir sér dálítinn forða af niðursoðnum matvæl- um og óku síðan burt. Þegar þeir voru farnir, sagði Luise við syst- ur sína: „Hvað heldur þú, að mér hafi allt í einu dottið í hug? Við ætt- um að loka búðinni svo sem mán- aðartíma í vetur og fara suður á Flórida. ... Hugsaðu þér allt sólskinið þar og pálmana, hvítu gistihúsin og hótelin full af skemmtiferðafólki — og heið- blátt Atlanzhafið!" „Við mundum missa alla okk- ar viðskiptavini, ef við gerðum það“, svaraði Miriam. Svo leið og beið. Tíu árum síðar hafði systrunum græðst miklu meira fé en hugsanlegt var, að þær hefðu nokkurn tíma þörf fyrir eða kæmust yfir að eyða. „Til hvers erum við annars að' hrúga saman öllum þessum pen- ingum?“ varð Luise eitt sinn að orði“. Hvers vegna seljum við ekki verzlunina og förum svo til Kaliforníu — eða ættum við heldur að fara til Mexíkó? ... Þá ættum við þó skemmtilega daga í vændum. Við mundum kynnast fjöldamörgu og allskonar fólki, og hver veit nema við tækjum allt í einu upp á því að gifta okkur!“ „Við getum aldrei selt verzlun- ina fyrir sannvirði", svaraði Miriam. En svo fór nú samt, að ári síð- ar áttu þær systurnar kost á að fá kaupanda að verzluninni. Hann bauð sæmilegt verð fyrir hana, en kaupin strönduðu á því, að Miriam vildi fá miklu meira en hann gat fallizt á, og hún var ófáanleg til að slá af kröfu sinni. Hann setti þá á stofn nýja verzl- un í grendinni, og næstu fimm ár urðu systurnar að hafa sig allar við til að standast sam- keppnina við hann, en að þessum fimm árum liðnum neyddist hann til að hætta verzlun sinni. — Þetta var 1938, og eftir að stríðið brauzt út, gafst þeim systrunum enn þá einu sinni tækifæri til að auka við verzlun sína. Svo var það litlu síðar eða um það bil tveimur árum áður en þetta var upphaflega ritað — þá var Luise orðin hálffimmtug að aldri — að hún lagði kvöld eitt af stað heim á leið ein síns liðs að loknu dagsverki í verzluninni. Þetta var í janúar og það var orðið dimmt úti. Hún ætlaði að stytta sér leið með því að fara beint af augum yfir óslétta móa, en datt svo illa, að hún skadd- aðist um mjaðmirnar og gat enga björg sér veitt. Hún kallaði á hjálp, en staðurinn var afsíðis, og enginn heyrði neyðaróp henn- ar. Það var ekki fyrr en með morgninum, að einn nágrann- anna fann hana þarna, en þá hafði hún ofkælzt, og þremur dögum síðar andaðist hún úr lungnabólgu. Miriam steig aldrei fæti í verzlunina eftir lát systur sinn- ar. Hún gerði jarðarför hennar svo viðhafnarmikla, að annað eins hafi aldrei sézt á þessum slóðum. Luise var lögð til hinztu hvíldar í eirkistu, og á gröf henn- ar var settur mjög vandaður leg- steinn úr dýrum marmara. En nokkrum mánuðum síðar barst viðkomandi yfirvöldum kynleg umsókn frá Miriam. Hún fór þess á leit að fá leyfi til að flytja kistu Luise til Kaliforniu, og var henni veitt það. Þá leigði hún flugvél til að annast flutn- inginn og fór sjálf með til að gæta þess, að allt yrði fram- kvæmt eins og samið var um og til var ætlazt. Fáeinum mánuðum síðar fékk hún aftur leyfi til að flytja kist- una á nýjan stað. Að þessu sinni voru jarðneskar leifar Luise lagð- ar til hvíldar í mexikanskri mold. Það síðasta, sem heimildamað- ur minn hafði frétt um gömlu konuna, var á þá leið, að hún væri enn einu sinni komin af stað með eirkistuna. Að þessu sinni var ferðinni heitið til Hav- anna. Og þar með er sagan öll. Ég hefi engu við að bæta nema því, að hin viðförula líkkista hefur nú sennilega enn þá einu sinni verið lögð í nýja gröf um stund- arsakir einhvers staðar á hnett- inum. Og á einum eða öðrum hótelsvölum þar í grenndinni situr rík, en einmana, gömul kona og veltir því fyrir sér, hvert litlu systur hennar kynni að langa til að fara næst. Sigurður Helgason þýddi.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.