Heima er bezt - 01.01.1955, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.01.1955, Blaðsíða 20
16 Heima er bezt Nr. 1 Þorbjörn Björnsson, Geitaskarði: Sumargleði og vetrarþankar Þegar hinn norðlenzki vetur leggst að dal og breiðbyggð með fjúki sínu, frosti og blástri nöpr- um — Sól, móðir lífs og gleði, virðist tímanaum til ljóss og yl- gjafa okkur norðurhjarans börn- um, svo að myrkur skammdegis- ins leggst að okkur og um okk- ur, þá bjargar furðanlega vel gömlum sem ungum frá þungum skammdegisþönkum að bregða upp myndum minninga og at- hafna frá björtu vori, blikandi sumri og haustsins mildu dögum — upplifa í húsum inni eða við utanbæjar stympingar, við krapa og hríðargjóst — upplifa í hug- ans heimi það, sem sumarið okk- ur að höndum færði, gott og minnilegt —- nú, og ekkert sakar þótt eitthvað af erfiðleikagrett- um skjóti upp kolli í og með. Því í þeirra kjölfar sigla oft minn- ingar dugandis átaka og sigur- gleði. Nú lít ég um öxl til horfins sumars og haustdaga, það er ýmislegt, sem fyrir sjónir ber, sumt hlýtt, vermandi og elsku- legt, annað dálítið leitt, ,en eig- inlega allt gott og blessað. Tjáir nú penni minn hér frá nokkru. Það er skínandi bjartur en dá- lítið svalur síðsumardagur. Ég stend við heimreiðarhlið Geita- skarðs, búinn til farar — jarðar- farar. Bíll hirðir mig upp og rennir fram Langadal, fram til miðs Svartárdals. Ég er að fylgja horfnum kunningja mín- um, bændaöldungnum fjölgefna, gáfumanninum og fræðaþulnum Jónasi Illugasyni frá Brattahlíð, síðasta spölinn að grafarbrún. Mér er furðu glatt í sinni. Skrít- inn þankablær það, að bera glaða hyggju í miðri líkfylgd, vinar og mæts manns. Svo mun mörgum finnast, er þessa frásögn líta, það er víst nær eðlilegt að sumir telji til undarlegheita þessa skaplýs- ingu mína, því gömul hefð hefur helgað þá venjú til þessa dags, að allir, er að greftran ganga lát- innar manneskju, beri að öllum ytri háttum grafar og dapurleik- Þorbjörn Björnsson á yngri árum. ans svip. Hitt mun þó nær sanni, að gleðjast megi þá árahátt, elli- kramið, sárþj áð gamalmenni losnar af jarðlífsins þrautaklafa. Maður eða kona„ sem skilað hafa þörfum dagsverkum og góðum fyrirmyndum, til eftirbreytni lif- andi fólki. Likfylgd stöðvast við túnhlið Brattahlíðar, þar sem hinn látni hefur eytt flestum starfsdögum ævi sinnar. Það eru hans handa- verk, þessi velhlaðni grjótgarð- ur, þetta slétta tún. Hér eru Svartdælingar — Hlið- hreppingar fjölmennir, konur og menn frá flestum býlum dalsins. Roskinn bóndi, gamall nágranni hins látna, stígur fram úr fylk- ingu þessa skarpdrátta, veður- bitna fólks og flytur fallega, vel orðskipulagða kveðju frá sér og sveitungum. Hann talar blaða- laust og fipast hvergi. Karla- kór Bólhreppinga syngur fög- ur sálmavers. Brattahlíðarfjöll bergmála ljúfa hljóma. „í berg- málsins öldu við björgin há, sem brotna við þagnandi hlíðar“, segir stórskáldið Einar Ben. ein- hversstaðar. Áfram er haldið til Bergstaða, það er síðasti áfanginn, bar bíð- ur opin gröf í kirkjugarði. Tveir prestar flytja ræður í kirkju við kistugafl. Læknir héraðsins talar af grafarbrún. Prestur með litla reku í hendi gengur til og kast- ar þrem lúkum moldar á kistu- lok. Mér eru gamalkunnar þær þrjár setningar, er klerkar hafa þulið við þennan verknað, nú brá mér undarlega við, þvi hér var önnur og ólík orðskipan á ferð, en ég hafði áður vanizt við slíka athöfn; þetta var allt annað orð- bragð. Hér hafði kirkjan og klerkar lagað í hendi sér eftir tímans og fólksins skilningi. En sannindi hinna gömlu áður við- höfðu setninga eru hverjum ljós — þau, að af mold séum við komin og að mold munum við aftur verða; hinu festi ég ekki trúnað á, upprisu eða fötaferð fúnaðra í mold. Til íslenzkra sveita er ennþá uppi haldið þeim forna, ramm- íslenzka sið að drekka erfi lát- ins heiðursfólks. Nú var setzt að veizluborðum; fannst mér um leikni og kúnst þeirra sveitakvennanna að búa svo fagurt og kostulega veizlu- borðin, sem raun gaf hér vitni um. — Þessar konur, sem höfðu þó ærna önn langra vinnudaga í heimahúsum. En góðhugur, geta og verkleg afköst sveitakvenn- anna eru óútreiknanlegir hlutir. Þegar ég nú hvarf frá borð- um, fór ég um að litast, hingað í þessa dalbyggð hafði ég ekki fæti stigið í 40 ár. Nú var mér sjón sögu ríkari. Það var augljóst, að hér hafði umbrotaelfi nútímans tækni og framfara frjóvgað og fágað næstum hvert býli um endilangan dal. Þar sem áður kúrðu lágreist hreysi í litlum þúfutúnum, vöfðu sig nú víð- lendar nýræktarflatir upp að vel hýstum býlum. Þetta framdala- fólk stendur ekki að baki þeim, er búa við breiðgötu alfaraleiðar. Hér mæti ég nú rosknum bónda úr framdal, þeim, er ég hafði síðastan séð í kaupstaðar-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.