Heima er bezt - 01.01.1955, Síða 21

Heima er bezt - 01.01.1955, Síða 21
Nr. 1 Heima er bezt 17 Geitaskarð. ferð„ búinn fallega bryddum, ís- lenzkum leðurskóm, með buxur girtar í sokka niður. Sá búning- ur var snotur og hentugur þá. Nú birtist þessi bóndi mér, að vísu við hátíðlegra tækifæri en fyrr greinir, svo hámóðins að búnaði, sem klipptur væri úr tízkublaði, eða heilsteyptur borgarbúi. Fínfataður, vestis- laus, hvítskyrtaður, með flak- andi hálsmál. Þessi nýtízku bún- aður bóndans úr framdalsbotni var mér frekar til geðfeldni, að öðru en því, að illa féll mér vest- isleysið. Það er skrambans leitt að týna niður vestinu frá hinum fallega evrópska jakkafatabún- aði. Það má helzt ekki henda heiðarlegan dalbónda ná breið- byggðarbúa. Ýmislegt sá ég og heyrði í þessari för, er vert væri á að minnast, en skal aðeins drepa á til viðbótar því ofangreinda, að yfir Svartá sá ég byggða ein- hverskonar hengibrú — byggða úr stálvír, steinlími og timbri. Það hafði gert einn bústærsti dalbóndinn, hann nytjar tvær stórjarðir sitt hvoru megin Svartár; nú var áin honum, heimaliði hans og fénaði ekki lengur farartálmi. Þessi bóndi hafði aldrei á þeim skólabekk setið, er verkfræðingar nema sína útreikningakúnst; samt hafði hann borið sigur af hólmi í viðskiptum við árflauminn þarna. Er ég steig upp í heimferðar- bíl, hvarflaði hugur minn glað- ur að því, hve vel og drengilega þessu dalafólki hefði tekizt á síð- ustu stund að tjá þessum horfna stéttarbróður og heiðursmanni þakkir sínar, virðingu og hlý- hug, gamla bóndanum, er dal- moldin hlúði nú að með mjúk- um höndum. Réttardagur. Það munu orðin tíu ár síðan ég hef komið í þessa háfjalla- rétt — Krapatungurétt — né nokkra aðra fjármarga skilarétt. Nú réðist það svo, að ég hafði að mér tekið fyrir syni mína að reka ásamt afbæjarmönnum úrtýning frá heimalandasmölunum Mið- Langdælinga — reka hann til Skrapatunguréttar. Ég var fús þessarar farar, vissi að hún myndi rifja upp fyrir mér gaml- ar, skemmtilegar réttardaga- minningar, þegar ég, fjármargur bóndi, sótti þessa skilarétt og stiklaði um réttarveggi og sagði vinnumönnum fyrir um fjár- dráttinn; hitt skipti ekki máli, þótt ég nú ætti enga kindar- klauf, því það var alltaf hægt að lifa sig inn í liðna tíma og látast vera maður með mönnum á yfir- standandi tíð. Eins og aðra haustmorgna rann dagur hljóðlátt úr skauti nætur þennan réttardagsmorg- un. Ég var fetilviss og ferðbúinn árla, er afbæjarmenn komu til rekstrar. Við stefndum rekstrar- för í norðaustur til fjallanna. Veðurútlit var með úrgum svip og tvíræðum — óvíst hvernig úr réðist á dagmálum. — Svo fór, að þá norðar dró til fjallanna skall yfir bleytuhríð með roki. Hund- arnir gjömmuðu, hestarnir beittu hnakka í veður, fjárrekst- urinn seig hægt áfram gegn ill- viðrinu. Ég fór að velta því fyrir mér, hvort þetta fjandsamlega veður háfjallanna ætlaði nú að kremja úr mér gömlum og gam- alvönum illviðrasegg líftóruna í réttarför. — Það kom ekki til mála, því nú fann ég, að ennþá týrði einhversstaðar innra með mér svolítið af dug og karl- mannslund, enda kappverjaður hið ytra gegn vosi og hreggi. Reið léttstígum, geðfelldum klár, hafði svolítið víntár í vasaglasi og þarna á aðra hlið við mig reið björt og blikeyg heimasæta frá næsta bæ; sú var í hópi rekstrar- liðs. Skárri væru það nú fjand- ans ámátlegheitin í mér, stæðist

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.