Heima er bezt - 01.01.1955, Side 26

Heima er bezt - 01.01.1955, Side 26
22 Heima er bezt Nr. 1 sálarinnar og seinkað framför heimsins, er það hefur lagt ok sitt beinlínis á skynsemi og sam- vizku og hefur haft guðs nafn að skálkaskjóli heimsku eða hrekk- vísi.“ Langa frjádag. Um dauðann:---------— „Ekki mun holt að deyja með hatur í hjarta, og ekki mun það góður förunautur yfir í hinn heiminn.“ — — „Ef þú ert hniginn á efra aldur og það verða hinir yngri menn, sem gráta yfir þér, þá sæmir að sýna, að þú sért ekki hafir eitthvað heyrt og séð um dagana, eitthvað reynt og eitt- hvað lifað frekara en þeir; þér sæmir að sýna, að þú sér ekki óuppfræddur, ekki hugsunarlaus, ekki stefnulaus, enginn leik- soppur í hendi forlaganna, ekki óviðbúinn þeim degi og stund.“ Fimmta sunnudag eftir þrenn- ingarhátíð.. — — „Framfaraleysi í einu mannfélagi er ófyrirgefanlegur hlutur, og þess vegna óþolandi, og kemur það beint af því, að það stríðir á móti guðs og manna lögum. Maðurinn er skapaður til framfara, til óendanlegra fram- fara og fullkomnunar, og ef nokkur hrópandi rödd er sterk, ef nokkur reiðarþruma lætur til sín heyra, þá er það sú, sem kall- ar eigi aðeins af himnum ofan, heldur frá einu skauti j arðarinn- ar til annars og segir: Áfram, áfram!------Framför er lögmál vort og rétta eðli, skylda vor, ákvörðun vor og sjálft vort sanna líf. — — Það mannfélag, sem misskilur eða vettugi virðir þenna hæfilegleik eða fylgir honum ekki af alefli fram, það misskilur lífið frá rótum og hlýtur að leiða bölvan yfir sig og eftirkomendur sína.“ Níunda sunnudag eftir þrenn- ingarhátið. Urp menntun:-----------„Hvað er þá það, sem að réttu má menntun kalla? Vér segjum þá fyrst: Menntun er ekki þekking eingöngu, ekki samvizka ein- göngu og ekki vilji eingöngu, heldur er menntun jafnhliða vöxtur og framför allra sálar- krafta, skynsemi, samvizku og vilja. Fari þetta ekki allt sam- an, nái sálin ekki að menntast á allar hliðar jafnt, þá fáum vér hálfgjörvinga af mönnum, og getum meira að segja fengið and- lega vanskapninga, sem þrátt fyrir mikla uppfræðing og margra ára nám verða lítt nýtir sjálfum sér og öðrum.“------ Tíunda sunnudag eftir þrenn- ingarhátíð. Þannig lítur hann á vanann: -----„Hvað er það annað en vaninn, hvað er það annað en ok og ofríki vanans, sem heldur mönnum og þjóðum hreyfingar- lausum í sömu sporum, ef til vill öld eftir öld?-----Ég vil hafa manninn frjálsan og óháðan.“ — Og síðar í sömu ræðu: „Enginn hlutur gengur erfiðar í heimi hér en að afla þekkingar, og þekking, sönn þekking, reynist að vera einn hinn langdýrasti hlutur, sem til er.“ Einnig í sömu ræðu: — „Þegar næst kemur kornskurðartími og siðabót, sem óumflýjanlega hlýt- ur að verða, þá mun villum fækka enn meir og sannleikur- inn skýrast enn betur. Ekkert verður gjört í þeim efnum, fyr en hinir réttu kornskerumenn koma. Þar til duga ekki kveifar- menni eða jábræður veraldarinn- ar. Nei, það verða að vera harð- skeyttir menn með sigð í hönd- um, og hafa þor til að beita sigð- inni. Hvorki mega þeir óttast hótanir yfirvaldanna né heigul- skap alþýðu; þeir verða að vera undir það búnir að standa ein- ir uppi síns liðs, ef á liggur.“ Og enn segir hann í sömu ræðu: -----„Ef þú þar á móti eignast sannleika, ef einhver nýr sann- leiki — hann má auðvitað vera gamall í sjálfum sér, það nægir, ef hann er þér nýr — en ef ein- hver nýr sannleiki, segi ég, birt- ist og rís upp kröftuglega í sál þinni, þá hefir sál þín þar fund- ið óendanlega auðlegð.------Og þessi eini mikilvægi sannleiki skal yngja þig upp allan.“ Og að síðustu í sömu ræðu: — — „Hann meistarinn tók ung- börnin sér í faðm og vafði þau að sér og blessaði þau„ og fann ekk- ert út á þau að setja, heldur sagði, að slíkum heyrði guðs ríki til. ' En hún, kirkjan, sem kveðst Vera lærisveinn þessa hins mikla meistara, hún ber þá kenningu fram opinberlega, að ungbörnin séu djöfulóð komin frá móður- lífi. Ég fæ ekki betur séð, en að hver rétt hugsandi maður hljóti að verða, ef ekki sturlaður yfir þvílíkri kenning, ,þá samt bæði hryggur og forviða.“ Þrettánda sunnudag eftir þrenn- ingarhátíð. „Þegar vér skoðum hinar ýmis- legu tegundir af kúgun, sem mannkynið hefir mætt og það í kristninni sjálfri, þá mun fátt hryggilegra bera fyrir augun en hið almenna ástand mannlegrar skynsemi. Vér hittum alstaðar og í öllum stéttum menn, sem hafa glatað frelsi og krafti hugsunar- innar, hverra trú, ef nokkur er, þá er hún háð mönnum og tím- um, menn segi ég, sem aldrei á ævi sinni hefir hugkvæmst, að þeir þyrftu að leita sannleikans.“ Eins og sjá má af þessum fáu setningum, sem hér eru birtar úr ræðum séra Páls, þá hefir hann verið sannur umbótamaður og unnandi alls frelsis og framfara, mannúðar og menntunar, bæði á verklegum og andlegum sviðum. Á dögum séra Páls var ritað mál meira og minna dönskuskot- ið og knúsað, hjá flestum emb- ættismönnum þess tíma. En í þessum ræðum streymir málið fram, létt og eðlilega, eins og tær lind. Jóh. Ásgeirsson. Efnilegur snáði Sonur okkar, tólf ára gamall, var hræðilega skeytingarlaus í peningasökum. Við, foreldrar hans, urðum ásátt um, að nauð- synlegt væri að koma honum í skilning um þýðingu peninganna. Því skipuðum við honum að halda nákvæma skýrslu yfir tekjur og gjöld, og hvað hann gerði af vasapeningunum sínum. Kvöld eitt, er hann var önnum kafinn við að reikna út, sagði hann allt í einu: „Veiztu það, mamma, að síðan ég fór að skrifa allt niður, hugsa ég mig vel um áður en ég kaupi nokkuð." Ég varð ánægð yfir þessum góða ár- angri af uppeldisaðferð okkar og Frh. á bls. 29

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.