Heima er bezt - 01.06.1957, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.06.1957, Qupperneq 4
 Dr. RicharcL Beck á skrifstofu sinni í ríkisháskólanum i Norður-Dakota; myndin er tekin i marz 1957. DR. RICHARD BECK, PRÓFESSOR Islendingum hefur löngum verið útþrá í blóð bor- in. Þegar í fornöld var enginn sá maður með mönnum, sem ekki hleypti heimdraganum, fór utan og lagðist í víkingu. Frásagnirnar um unnin afrek á framandi slóðum eru margar, og hætt er við að ærið mikið mundi vanta í íslendinga sögur, ef ekk- ert væri þar sagt frá íslendingum erlendis. En ald- irnar hafa liðið, og alltaf hafa margir Islendingar svalað útþrá sinni og afrekalöngun meðal framandi þjóða. Flestir þeirra hafa horfið aftur heim yfir hafið, en á öllum tímum hafa þó verið nokkrir, sem fundið hafa starfssvið erlendis og ílenzt þar. Eftir þeim mönn- um hefir löngum verið séð, og því meir, sem þeir hafa verið efnismeiri og vænlegri til forystu. En ein hefir löngum verið bót í því máli. Þessir menn hafa gerzt útverðir íslands meðal framandi þjóða. Þeir hafa ekki einungis aukið hróður ættlands síns með störfum sín- um og góðu fordæmi, heldur einnig unnið ótrauð- lega að því að kynna menningu þess úti í hinum stóra heimi og vinna því það gagn, er þeir máttu. Elópur þessara manna er þegar orðinn býsna stór, og langflestir þeirra, sem víðast hafa borið hróður íslands, eru úr hópi menntamanna. Fyrr á tímum mátti svo heita, að þeir sætu eingöngu í Kaupmanna- höfn, síðar leituðu þeir til Bretlands, og á þessari öld hafa nokkrir lagt leiðir sínar til Vesturheims. 196 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.