Heima er bezt - 01.06.1957, Síða 5

Heima er bezt - 01.06.1957, Síða 5
Einn þeirra manna, sem mest hafa unnið að kynn- ingu á íslandi og íslenzkri menningu í Vesturheimi, er dr. Richard Beck, prófessor við ríkisháskóla Norður- Dakota í Grand Forks, en hann átti sextugsafmæli fyrir nokkrum dögum. Dr. Richard Beck er fæddur að Svínaskálastekk í Reyðarfirði 9. júní 1897. Foreldrar hans voru Hans < Kjartan Beck (d. 1907), bóndi þar, og kona hans, Vigfúsína Vigfúsdóttir, sem enn lifir í hárri elli vestur í Ameríku. Þar er og einn bróðir Richards, Jóhann Þorvaldur, prentsmiðjustjóri í Winnipeg. Þegar Richard var í bernsku, fluttust foreldrar hans að Litlu-Breiðuvík í Reykjarfirði, og ólst hann þar upp. Var honum haldið til allrar vinnu, en sjómennska lét honum bezt, jafnsnemma og aldur leyfði. Stundaði hann sjómennsku frá fermingaraldri, og þar til hann lauk skólanámi, og var oft formaður hin síðari árin. Kunni hann þeim störfum vel og telur sig ætíð síðan í hópi sjómanna. Skilur hann manna bezt störf þeirra og lífsviðhorf. Snemma þótti Richard vera hneigður til bóklegra fræða, og tók hann að búa sig undir skólanám í heima- húsum. Naut hann þar handleiðslu móðurbróður síns, Sigurðar Vigfússonar, ágæts kennara. Lauk hann síðan gagnfræðaprófi á Akureyri, utan skóla, vorið 1918, með mjög hárri einkunn. Veturinn eftir sat hann í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík, en las síðan tvo bekki á einum vetri, og lauk stúdentsprófi 1920, og var þá meðal hinna hæstu bekkjarbræðra sinna. FTafði hann þó stundað kennslu og fengizt nokkuð við ritstörf samhliða náminu. Kom þar þegar fram það, sem síðan hefir einkennt vinnubrögð hans, að hann er vart ein- hamur, að hverju, sem hann gengur. Um þessar mundir kvæntist hann Ólöfu Daníels- dóttur, ágætri konu, en inissti hana eftir mjög skamma sambúð. Veturinn 1920—21 hélt Richard Beck einkaskóla á Eskifirði, en nú hneigðist hugur hans til meiri frama og verka en að vera unglingakennari heima á íslandi. Hélt hann því vestur um haf haustið 192 f, og kenndi þann vetur íslenzku á vegum Þjóðræknisfélags íslend- inga í Winnipeg. Haustið 1922 hóf hann síðan nám við Cornell háskóla í Ithaca í Bandaríkjunum. Mun hann hafa verið einn hinn fyrsti íslenzkra stúdenta, sem leituðu til náms við amerískan háskóla. Cornell háskóli er einn hinna fremstu háskóla Ameríku, og voru þar miklar kröfur gerðar til námsmanna. En brátt kom í ljós, að Richard hafði hlotið haldgóða mennt- un, þótt skólavist hans væri stutt og slitrótt, því að hann settist þegar á belck með þriðja árs stúdentum í háskólanum, og lauk hann meistaraprófi M.A. í nor- rænum og enskum fræðum vorið 1924 og doktors- prófi (Ph. D.) tveimur árum seinna, hvorttveggja við góðan orðstír. Ekki gat hanna þó gefið sig óskiptan við náminu, því að jafnan þurfti hann að vinna fyrir sér og skólavist sinni, en nokkuð létti það róðurinn, að hann naut námstyrkja og námsverðlauna í ríkum mæli, en slíkt hljóta einungis úrvalsnemendur. Jafn- framt tók hann mikinn þátt í félagslífi stúdenta og var um skeið formaður í allsherjarfélagi erlendra stúdenta (Cosmopolitan Club) í Cornell. Að Ioknu námi var Richard Beck um skeið prófessor í enskum bókmenntum og samanburðarbókmenntum við St. Olafs College, Northfield, Minnesota, og Thiel College, Greenville, Pennsylvania. En 1929 gerðist hann prófessor í Norðurlandamálum og bókmenntum við Ríkisháskóla North-Dakota í Grand Forks, og varð jafnframt forseti þeirrar háskóladeildar. Hefur hann gegnt því embætti síðan. Aðalkennslugrein hans hefir verið norska og norskar bókmenntir, því að margt er um Norðmenn í Norður-Dakota, og hafa þeir þar mikil ítök. Hefir hann því haft mikil skipti við Norð- menn og staðið framarlega í félagssamtökum þeirra, og gegnt formannsstörfum í félögum þeirra. Auk þess hefir hann kennt þar íslenzku, þótt nemendur hafi verið þar færri en í norskunni. Um allmörg undanfarin ár hefir hann verið forseti hinnar erlendu tungumála- deildar háskólans; er það mikið trúnaðarstarf, og fylgja því mörg umsvif. Náms- og starfsferill Richards Beck í Bandaríkj- unum segir sína sögu. Þangað kemur hann erlendur námssveinn, óstuddur af öllum, nema eigin dug og vilja. Hann vekur þar þegar athygli vegna námsafreka. Gerist forystumaður í félagsskap stúdenta, og eftir fá ár er hann orðinn prófessor og deildarforseti við mikils- virtan háskóla. Slíkt er ekki á meðalmannsfæri, því að slíkar stöður eru ekki veittar vegna kunningsskapar eða af pólitískum ástæðum, heldur einungis fyrir verð- leika mannsins sjálfs, og af því að hann skapar sér traust þeirra, sem ráðin hafa, og reynist maklegur þess trausts. En þótt kennslustörf við háskóla virðist ærið starf, hefir Richard þó jafnframt því haft mörg járn önnur Dr. Richard Beck flytur rceðu sína á Lýðveldishátiðinni á Þingvöllum. Heima er bezt 197

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.