Heima er bezt - 01.06.1957, Side 7

Heima er bezt - 01.06.1957, Side 7
gefin, og því vel fallin til að vekja athygli bókamanna. Síðan, eða 1943, gaf hann út í New York, Icelandic Poerns and Stories, eins konar framhald þessarar bók- ar, þar sem bæði eru þýdd Ijóð og smásögur, og ritar hann sem fyrr inngang og æviágrip. í ritsafninu Islandica gaf hann út sögu íslenzkrar nútímaljóðlistar: History of lcelandic Poets, 7800—1940, mikið rit og merkilegt. Er það enn eina heildaryfirlitið, sem vér eigum um þennan þátt bókmennta vorra. Þá var hann meðhöfundur að mikilli bókmenntasögu Norðurlanda: The History of Scandinavian Literature, New York 1938, skrifar hann þar um ymsa þætti norrænna bók- mennta, auk íslenzku bókmenntanna. Einnig hefir hann skrifað um íslenzkar bókmenntir og æviágrip skálda í alfræðibókina Encyclopedia of Literature, New York 1946. Auk margra annarra ritgerða, stórra og smárra. Ritstjóri Almanaks Ólafs S. Thorgeirssonar var Rich- ard Beck frá 1941—54, að það hætti að koma út. Safn- aði hann í það mörgum fróðleik, og ritaði mikið, svo að nema mundi !500—600 blaðasíðum. Meðritstjóri rits- ins Scandinavian Studies hefur hann verið síðan 1947. Þótt hér sé einungis getið um helztu ritgerðirnar og ritin, nægir það til að sýna, að vinnuafköst Richards Beck eru langt fyrir ofan meðalmennskuna. Enda er það almennt mál samborgara hans í Grand Forks, sem þekkja til vinnudags hans, að hann vinni flestum mönn- um meira þar í borg. Það þarf heldur ekki að fara í nokkrar grafgötur um það, hvílík kynning á Islandi og íslenzkum málefnum ritstörf hans og ræður eru. Má í því sambandi minna á, að eftir heimkomu sína frá Lýðveldishátíðinni 1944 flutti hann milli 30 og 40 erindi víðsvegar um Bandaríkin og Canada um lýð- veldisstofnunina, og ritaði fjölda greina um sama efni í amerísk blöð. Þá er ekki minna um vert, hvert lið hann hefur lagt íslenzkum þjóðernismálum vestra og Framhald d bls. 214. Dr. Richard og frú Bertha Beck á heimili þeirra í Grand Forks, Norður-Dakota; myndin er tekin i marz 1957. Heima er bezt 199

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.