Heima er bezt - 01.06.1957, Síða 11

Heima er bezt - 01.06.1957, Síða 11
um þessar mundir, og var þessi breyting gerð til þess að veita honum hvíld. Bömin vom nú orðin 7. Árið 1884 hafði þeim fæðst dóttir, Oddný Kristín, 1886 sonur, Guðmundur Krist- inn, 1889 dóttir, Ingibjörg, 1891 sonur, Kristján Jósef, og 1894 fæddist þeim síðasta barnið, Guðný Lilja, sem aðeins lifði nokkra mánuði. í október 1894 tóku þau Sigurbjörn aftur við land- inu og húsum sínum. Bjó hann síðan á Brautarholti, þangað til 1908, er hann, vegna heilsuleysis og þreytu, treystist ekki til þess að standa í búskaparstritinu leng- ur. Þá var vélaöldin ekki ennþá gengin í garð, svo að bændur urðu að erja jörðina hörðum höndum. Sigur- björn seldi Birni, syni sínum, í hendur býlið, en byggði sér laglegt íbúðarhús í nánd við býli Guðbjargar, dótt- ur sinnar, og Magnúsar Björnssonar, eiginmanns henn- ar. Þar bjuggu þau síðan þangað til Anna Sigríður and- aðist 25. nóv. 1911. Hjónaband þeirra hafði verið hið ástúðlegasta, enda voru þau samrýnd og samataka. Oft minntist hann hennar með hlýjum orðum í vísum sín- um og kvæðum. Þessa vísu mælti hann fram við hana, er hann kom heim, og var þungt í skapi: Gleður einatt geðið þreytt, góð því reynist stundin, þig ég eina elska heitt, eðalsteina grundin. Árið 1907 orti hann svona til hennar: Böls þó gustur blási kalt, bót er stór í kífi, meira virði en annað allt ert þú mér í lífi. Þessi vísa úr kvæði, sem Sigurbjörn orti 1912, lýsir vel söknuði hans og sorg yfir konumissinum: Þó stundum hrynji höfug tár, og falli niður fölar kinnar, í fylgsnum innstu sálar minnar mun lengi ríkja sorgin sár. En guð þó lofa af hreinu hjarta, ég hef ei undan neinu að kvarta, lofa hann fyrir líkn og náð, lofa hann fyrir allt hans ráð. Eftir lát konu sinnar dvaldist Sigurbjörn hjá börnum sínum, ýmist í Kanada eða Bandaríkjum. En árið 1914 hnignaði svo heilsu hans, að hann leitaði lækna til Winnipeg. Var hann tekinn til skurð-aðgerðar, en andaðist 12. maí 1914 af völdum hjartabilunar. Áður en Sigurbjörn gekk undir skurðaðgerðina skrif- aði hann Guðbjörgu, dóttur sinni, þetta bréf af sjúkra- húsinu: Hús Guðbjargar og Magnusar á Mountain. „Elsku Bogga mín. Innilegar þakkir fyrir allt og allt, og seinast fyrir bréfið, sem ég fékk frá þér í gær. Engar held ég að ég hafi gefið þér afmælisvísur í vor eða þá glatað þeim. Jæja, þá, nú á að skera mig upp á morgun. Elskurnar, kvíðið engu mín vegna. Við skulum vona að ég verði sem nýr maður eftir uppskurðinn. En ef ekki, þá er svo sælt að komast heim í hina fögru og friðsælu bú- staði hinumegin. Ég ber ekki kala í brjósti til nokkurs manns, en ég ber hlýjar kærleiks tilfinningar í brjósti mér til byggðarinnar minnar, vinanna og kunningjanna, og elsku til alls blessaða skyldfólksins míns, og hjarta mitt rúmar ekki meira. Ég er svo undur rólegur í dag. Guð veitir mér styrk og ró. Það er engu að kvíða. Svo flytur þú frá mér innilega hjartans kveðju til Magn- úsar, manns þíns, og allra elsku barnanna þinna. Já, bezta þakklæti til Magnúsar og þín, elsku Bogga, fyrir öll gæði við mig frá því fyrsta. Guð launi það. Svo kæra kveðju heim á gamla heimilið mitt og til Rósu minnar og Alla, til Árna Björnssonar, Sigurgeirs, Ind- riðasons og Gríms og Ollu og margra fleiri. Svo óska ég ykkur Magnúsi með allan hópinn ykkar, allrar guðs blessunar og lukku. Guð veri með þér, elskan. Þinn elskandi faðir.“ Guðbjörg kemst svo að orði í minnisgreinurti sínum: „Eoreldrar okkar skildu ekki mikið eftir af verald- legum auð, voru samt sjálfstæð til enda, en þau létu okkur eftir arf, sem ég álít meira virði: gott mannorð, trú, von og kærleika. Þegar ég hugsa um rólegt ævi- kvöld þeirra, þá er ég guði svo þakklát. Ég sé föður minn enn fyrir mér, er hann kvaddi mig á spítalanum í Winnipeg og bað guð svo undur vel fyrir okkur öll skyldmennin.... Faðir okkar var fluttur suður í gömlu byggðina og jarðaður frá Mountainkirkju, en í Eyfordgrafreit hjá konu sinni og litlu Lilju.“ Heima er bezt 203

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.