Heima er bezt - 01.06.1957, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.06.1957, Blaðsíða 13
í anda til íslands. Þegar laus við líkamann lyftir vængjum nýjum, máske yfir hafið hann hreyfist ofar skýjum. Kveðja til þeirra, sem fluttu 1902 vestur í Ward County frá Mountain. Á ómælandi sléttu, þar sem enginn skógur grær, þér ætlið nú að flytja, og mannabyggðum fjær, og reisa þar í auðninni byggð og fögur bú, og blómgast þar í framtíð, já, það er ykkar trú. Ég veit þið hafið vilja og þrek og kjark og þor, að þreyta ykkar skeiðhlaup í framfaranna spor, en bræðralag og eining þó bætir allra mest, því bindið það og eflið og rækið æ sem bezt. Þessum orðum fer Guðbjörg um æskuárin í bjálka- kofanum: „í gegnum alla æsku okkar vorum við látin sitja í hóp í rökkrinu við arin-logann og lesa kvöldbænir okk- ar. Eitt barnið Ias hátt, en hin fylgdust með lágt, og móðir okkar sat hjá okkur. Eins vorum við látin lesa borðbænir. Faðir okkar las sunnudagalestra, og allan veturinn kvöldhugvekjur og allir sungu sálm. Öll fjöl- skyldan kom saman við þessar guðsþjónustugjörðir. Ekki voru jólatré eða jólaglingur meðan við vorum að vaxa. Ég var 15 ára, þegar ég sá fyrsta jólatréð, og ekki voru aðrar jólagjafir en heimatilbúnir sokkar og heima- tilbúin jólakerti, sem móðir okkar steypti. En tilhlökk- unin til jólanna var mikil hjá okkur.“ Sigurbjörn gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í hérað- inu. Um skeið var hann í skólanefnd, sveitarstjórn og starfaði mikið í Góðtemplarareglunni. Einnig átti hann sæti í safnaðarstjórn eftir að Eyfordkirkja var byggð 1890. Átti hann oft sæti á kirkjuþingum, meðal annars á þingunum í Argyle og Winnipeg. Þegar Matthías kom til Dakota eftir að hann hafði verið í Chicago árið 1893, þegar hann sótti heimssýn- inguna í boði Vestur-íslendinga, var honum haldið veg- legt samsæti á Óðinssæti. Var þar margt manna saman komið og margar ræður fluttar. Sigurbjörn var beðinn að flytja þar tölu. Gerði hann það og ræddi aðallega um íslenzku skáldin, en þó einkum Kristján Fjallaskáld, og flutti að lokum þetta kvæði um hann: Þó enginn legsteinn skreyti skáldsins leiði, skín hans verkum dýrðarbirta af, hún er sem röðulsaftanskin í heiði, þá unaðsfagran ritar geislastaf. Hann varð að hníga í ítrum æskublóma, fyr örlög fram og Skuldar ráðin grimm, en starfað hafði hann sinni þjóð til sóma, þó særðu hjartað mæðuélin dimm. Hans ljóð þau munu í lýða hjörtum geymast, svo lengi sem að streymir íslenzkt blóð, Fjórir attliðir i Ameriku: Magnús Björnsson, Sigurbjörn, Magnús og Kevin. þau munu aldrei, aldrei fymast, gleymast, en ávalt verða metin dýr og góð. Sigurbjörn var lipur við sjúka og hljóp undir bagga, þegar veikindi steðjuðu að. Eftirfarandi frásögn Guð- bjargar er dæmi um fórnarlund hans: „Hann elskaði þessa byggð og gjörði oft gott af sér, þar sem veikindi voru. Einu dæmi man ég eftir, þar sem lágu þrjár systur, 10—14 ára, í smitandi taugaveiki. Enginn nágranni þorði að hjálpa móður þeirra að hjúkra. Hún var ekkja. Faðir minn var þar alla sólar- hringa meira og minna, þar til hann hafði lokað öllum litlu augunum. Þær fóm allar í eina gröf. Hann sagðist vona, að guð varðveitti sig frá að bera veikina heim í sinn bamahóp. Það varð heldur ekki. Ekkjan sorgmædda var honum þakklát til dauðadags. Hjá þessari ekkju, mrs. Jóhann Geir, var skáldið K.N. í fjölda mörg ár, og þar dó hann. Faðir minn var mjög lipur við veika, og þessvegna var hann sífeldlega beðinn að koma.“ Sigurbjörn var einn hinna íslenzku landnema í Norð- ur-Dakota. Hans er þó ekki getið í sögu íslendinga í Norður-Dakota eftir Þorstínu Jackson, sem var prent- uð árið 1926. Ræktaði hann heimilisréttarland sitt, byggði þar þokkalegt býli og bjó þar í 24 ár góðu búi. Nú býr þar Guðni Bjöm, sonur hans, en hann er kvænt- ur Ingu Miller, konu af sænskum ættum. Sigurbjörn fór með tvær hendur tómar út í barátt- una við óbyggðir Vesturheims. Sigraðist hann á öllum erfiðleikum landnámsins, og lifði menningarlífi ættjarð- arinnar til hinztu smndar. Sannaðist þar, eins og svo oft áður, „að römm er sú taug, er rekka dregur föður- túni að“. Sigurbjörn var einn af þeim, er „sýndu það svart á hvítu með sönnun, er stendur gild, að ætt vor stóð engum að baki að atgervi, drengskap og snilld“. Heima er bezt 205

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.