Heima er bezt - 01.06.1957, Side 16

Heima er bezt - 01.06.1957, Side 16
PÆTTIR ÚR VESTURVEGI eftir Steindór Steindórsson frá Hlö&um í LANDI MORMÓNANNA, UTAH. Móti sumri og sól. VY eðrið hafði leikið við mig fram að þessu, en ' laugardaginn, sem ég kvaddi Winnipeg, var komin norðanátt, hálfköld, að mér þótti, og var nú auðsætt, að áliðið var hausts; þótti mér því gott að leita nú til suðlægari landa og hlýrri. Þeir Björn Sigurbjörnsson og Haraldur Bessason fylgdu mér á flugvöllinn, en þangað kom einnig Grettir Jó- hannsson ræðismaður til að kveðja mig. Óskuðu þeir mér allra heilla, og gerðu íslendingarnir í Winnipeg þannig ekki endasleppt við mig. En þótt ég væri nú að kveðja íslendinga, þá var förinni heitið beint á fund annarra landa vorra suður í mormónalandinu Utah. Vélin hefur sig til flugs, og nú er flogið í áttina móti sól og sumri. Örstutt dvöl var í Grand Forks til vegabréfsskoðunar. Richard Beck kom út á flugvöll og rabbaði við mig örlitla stund, og svo var flogið áfram á ný. Á leiðinni suður yfir slétturnar brá mér í brún við að sjá breytinguna, sem orðið hafði síðan ég flaug norður um. Þá loguðu öll tré og runnar í rauð- um og gullnum litum, en nú höfðu haustnæðingarnir verið að verki, laufið var fallið, trjálundar og skógar- belti stóðu grá og nakin í lit síðhaustsins, og grænu blettimir á ökrunum höfðu einnig sölnað og gránað. Fegurð haustsins á þessum slóðum er glæst en skamm- vinn. Skipt var um flugvél í Minneapolis, varð þar um tveggja stunda bið. Ekki fór ég samt inn til borgar- innar, en dvaldist úti í flughöfninni, enda var þar hægt að láta fara vel um sig, lesa í bók og fá sér hressingu. Ég hafði hlakkað til þessarar flugferðar, en hún varð mér nokkur vonbrigði. Meðan beðið var í Minneapolis, hafði syrt í lofti, svo að flogið var ofar skýjum mest- allan þann tíma, sem bjart var af degi. Og þegar fjöllin tóku að nálgast og létti í lofti, var komið myrkur. Flugferðin var því fremur tilbreytingarlaus og þreyt- andi. Ég dottaði, eins og flestir föranautar mínir, og vissi lítt hvað tíma leið, þangað til ég vaknaði við það, að flugfreyjan ýtti við mér og spurði, hvort ég vildi ekki kampavínsglas á undan matnum. Ég tók boðinu með þökkum. Er ekki að orðlengja það, að United Airlines sparaði hvorki kampavín né mat við gesti sína. Var hvorttvegja sem í hinni ágætustu veizlu. Aðeins eitt þótti mér á vanta, og það var að hafa einhvem góðvin til að skála við og njóta með mér hinna ágætu rétta. Við vorum nú yfir Klettafjöllunum. Tungl skein í heiði, og lengst neðan undir okkur sáust sundurtætt fjöll, með hvössum tindum og hymum, sem vörpuðu draugalegum skuggum yfir dali og gljúfur, sem tungl- skinið gerði enn draugalegri en ella. Á stöku stað sáust ljós, sem vitni um mannabústaði, eða bíla á ferð. Langt virtist þó á milli byggðra bóla. En loks er Ijóshaf mikið fram undan. Vélin lækkar flugið, og vér lend- um í Salt Lake City, Saltvatnsborginni. Richard Beck hafði skrifað dr. Júlíusi Bearnson, hag- fræðiprófessor í Salt Lake City, og beðið hann að greiða þar götur mína. Hafði hann gert ráð fyrir að mæta mér þegar á flugvellinum. En sá var Ijóður á, að hvorugur þekkti annan. Þegar ég hafði heimt far- angur minn, tók ég að svipast um. Jú, þarna var aldr- aður maður, ljós yfirlitum, og svo líkur íslenzkum bónda, að varla gat verið um annað en íslending að ræða. Ég gekk beint til hans og heilsaði honum. Mér hafði ekki brugðist íslendingssvipurinn, þetta var Beam- son prófessor, og aldrei hefir mér verið hjartanlegar fagnað af bráðókunnugum manni. Ók hann mér heim á Hótel Temple Square, og hét að sækja mig til þess að sýna mér borgina kl. 10 að morgni. Enn var ég ltominn í ókunnan stað og í góðra manna hendur. Ögn um Mormóna. Mormónar eru sértrúarflokkur, eins og kunnugt er. Upphaf hans var, að ungur maður, Jóseph Smith að nafni, taldi sig fá vitranir frá öðrum heimi, og að hann væri kallaður af guði að vera spámaður hans. Þetta var 1823. Honum voru birtar gullnar töflur, sem á vom skráðar guðlegar opinberanir og saga fyrirrennara Mor- móna. Voru honum kennd ráð til að þýða letur tafln- anna, og gerði hann það, og er það hin svonefnda Mormónsbók, kennd við engilinn Mormón. Söfnuð sinn stofnaði Joseph Smith 1830. Heitir hann réttu nafni Jesú Krists kirkja hinna síðustu daga heilögu. Biblían er höfuðtrúarrit þeirra, en við hlið hennar er Mormóns bók og tvö önnur helgirit. Brátt festist Mor- mónanafnið við söfnuðinn, og létu þeir sér það vel líka. í öndverðu sættu Mormónar mildum ofsóknum. Lágu til þess ýmsar orsakir, sem ekki verða raktar hér, en sennilega hefir mestu um valdið, að þeir fóra sínar eigin leiðir og beygðu sig ekki fyrir almenningsálitinu. Hrökklaðist flokkur þeirra stað úr stað, og leituðu sí- fellt lengra vestur á bóginn. Spámaðurinn, Joseph 208 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.