Heima er bezt - 01.06.1957, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.06.1957, Qupperneq 21
fellið ætlaði strax að koma til bjargar, en gat það ekki, þar sem legufæri þess höfðu snúizt saman. Súlan bað þá Selfoss, er lá utar á víkinni, um hjálp, en skip- stjóri hans kvaðst ekki geta komið til hjálpar í slíkum ofsa, enda hefði hann nóg með sig. Súlan setti nú herpi- nótarbáta sína í sjó, en eins og áður var getið, voru þeir í bátsuglunum. Bátarnir slitnuðu samstundis frá skipinu, en er það var laust við þá, kom það betur upp í vindinn og rak nú minna en áður. Meðan á þessu stóð, höfðu skipverjar á Snæfellinu unnið að því, að ná upp legufærum sínum, svo að Snæ- fellið gæti komið til hjálpar, en þetta reyndist mjög erfitt vegna þess, að legufærin höfðu, svo sem sagt var, snúizt saman. Til þess að ráða bót á þeirri flækju, varð það helzt til ráða, að koma vír í stjórnborðs- akkerið og draga það upp á þilfar. Aðstaða til þessa var þó hin erfiðasta, bæði sakir veðurs og svo þess, hversu skipið var hlaðið. Skipstjórinn á Snæfellinu beitti þá þeim ráðum, að hann lét bregða um sig kaðli. Var honum síðan rennt niður í sjóinn. Tókst honum að láta vírinn í akkerið, en naumast hefur þetta verið neinn barnaleikur, því skipstjórinn var að mestu leyti á kafi í sjó, meðan hann lásaði vírinn um hausinn á akkerinu. Þegar nú Snæfellið hafði losnað, hélt það í humáttina til Selfoss, sem það hafði haft samband við. Fékk Snæfellið 50 faðma langan 3” vír hjá Selfossi, og mun hafa gengið greiðlega að koma honum yfir í Snæfellið. Var síðan haldið til Súlunnar, sem var í hálfrar annarar sjómílu fjarlægð. Enn var sama ofsa- rokið, og þegar Snæfellið snéri upp í til þess að leggja að Súlunni, kom sjór á það og braut skjólborð á stjóm- borðshlið. Eigi að síður tókst Snæfellsmönnum að koma vírnum yfir í Súluna, og andæfðu þeir, meðan sett var fast og Súlverjar náðu upp legufærum sínum. Var síð- an haldið af stað gegn veðrinu, en nú hafði heldur dregið úr því. En þegar skipin höfðu farið nokkurn spöl, slitnaði dráttartaugin enn, og rak Súluna nú und- an veðri skammt vestur af Svaðaboðum. Snæfellið bjóst enn til bjargar, en þegar skipunum var lagt saman aftur til þess að koma dráttartauginni af nýju milli þeirra, komu stjórnborðskinnungar skipanna saman. Laskaðist Snæfellið lítilsháttar, en annars geklc greiðlega að koma tauginni á milli. Enn var haldið af stað í áttina til Ólafs- víkur, og þótt hægt gengi, þá mjakaðist þó, og upp úr hádeginu lögðust skipin grunnt út af bryggjunni í Ólafsvík. Voru þá liðnar fullar 12 stundir frá því, er þau köstuðu akkerum þar í fyrra skiptið. Höfðu áhafnir skipanna allan þenna tíma barizt við veður og vind, í hinu mesta fárviðri, en þessa nótt fórust níu sjómenn, er geysisterk stormhviða hvolfdi síldveiðaskipinu Eddu á Grundarfirði. Það er næst af Súlunni að segja, að vélbáturinn Aðalbjörg frá Reykjavík dró hana upp að bryggju í Ólafsvík. Hafði Snæfellið ekki frekari afskipti af henni. Lá hún þarna í tvo sólarhringa, en þá dró björgunarskipið Sæbjörg hana til Reykjavíkur. Snæ- fellið fór einnig suður sama daginn, enda var för þess upphaflega þangað heitið til þess að losa aflann. Lauk þar með orustunni við náttúruöflin, en nú barst leikurinn inn í dómsalina. Fyrir dómstólunum hófst mál þetta með því, að haldin voru sjóferðapróf, bæði í Reykjavík og á Akur- eyri. Gáfu skipverjar beggja skipanna skýrslur um það, sem fram hafði farið, og er saga sú, er nú var sögð, á þeim skýrslum byggð. Eigandi Snæfells setti nú fram fjárkröfur á hendur eiganda Súlunnar. Krafðist hann í fyrsta lagi þeirra 12 þús. kr., sem um hafði verið samið fyrir að draga Súluna til Reykjavíkur. í öðru lagi krafðist hann 300 þús. króna björgunarlauna fyrir að hafa bjargað Súl- unni óveðursnóttina miklu, er hún slitnaði frá Snæ- fellinu út af Ólafsvík. Loks krafðist hann 8 þús. króna fyrir skemmdir á Snæfellinu. Kröfu sína um 12 þús. kr. fyrir drátt á Súlunni studdi hann þeim sökum, að hann hefði af sinni hálfu verið reiðubúinn til þess að draga Súluna til Reykjavíkur, samkvæmt þeim samn- ingi, er gerður var, en honum hefði að ófyrirsynju verið riftað af eiganda hennar með því að ráða annað skip, Sæbjöm, til að draga Súluna frá Ólafsvík til Reykjavíkur, án þess að bera það undir sig eða fá samþykki sitt til þess. Björgunarlaunakröfuna byggði eigandi Snæfells hins vegar á því, að Snæfellið hefði bjargað Súlunni úr yfirvofandi háska, er hana# rak út af legunni í Ólafs- vík óveðursnóttina. Kvað eigandi Snæfells, að samn- ingurinn um dráttinn skerti ekki á nokkurn hátt rétt þeirra Snæfellsmanna til björgunarlaunanna, þar sem hjálp sú, er þeir veittu Súlunni, hefði farið langt fram úr því, sem þeim hefði verið skylt að inna af hendi samkvæmt dráttarsamningnum. Þeir hefðu, er þeir urðu að snúa við hjá Malarrifi, komið Súlunni heilu og höldnu til hafnar í Ólafsvík, og hefði það aðeins stafað af vanbúnaði hennar sjálfrar og hinu ofsafengna veðri, að hana sleit upp þar. Eigandi Súlunnar krafðist þess hins vegar af sinni hálfu, að Snæfellinu yrði aðeins dæmd hæfileg þókn- un fyrir dráttinn, þó ekki yfir 12 þús. krónur, en að algerlega yrði sýknað af björgunarlaunakröfunni. Var því haldið fram af hans hálfu, að Súlan hefði að öllu leyti verið í ábyrgð Snæfells, meðan á drættinum stóð, og Snæfellsmönnum því borið skylda til þess að veita henni alla þá aðstoð, er þeir gátu. Þá hélt eigandi Súl- unnar því fram, að hún hefði ekki verið í bráðri hættu. Loks kvað hann það hafa verið með samþykki skip- stjórans á Snæfelli, að Sæbjörg var til þess fengin, fyrir kr. 6000.00, að draga Súluna til Reykjavíkur. Samkvæmt 229. gr. siglingalaganna frá 1914 skal hver sá, er bjargar skipi, sem statt er í neyð, fá björgunar- laun. En hafi maður tekizt á hendur að draga skip og því hlekkist síðan á, þá skal sá maður, er tók að sér dráttinn, aðeins eiga rétt á björgunarlaunum að því leyti, sem talið verður, að aðstoð sú, sem hann veitir, fari fram úr því, sem honum bar skylda til að inna af hendi. Sjó- og verzlunardómur Akureyrar, sem dæmdi í máli þessu, tók fyrst til athugunar það atriði, hvort Heima er bezt 213

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.