Heima er bezt - 01.06.1957, Síða 25

Heima er bezt - 01.06.1957, Síða 25
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON---------------------------------- NÁMSTJÓRI FORINGINN MIKLI U únímánuður er bjartasti mánuður ársins. Fyrir ylgeisla sólarinnar, vex gróður íslenzkrar moldar og nær fullu frjómagni í lok mánaðarins. í þessum mánuði er ríki vorsins í fullum blóma. Fyrir ís- lendinga er þessi mánuður líka ímynd frelsis og full- veldis. í þessum mánuði endurheimtu íslendingar að fullu frelsi sitt og fullveldi. Hinn 17. júní 1944, var því lýst yfir á Alþingi að Þingvöllum að ísland væri frjálst og fullvalda ríki og var þetta viðurkennt af flest- um ríkjum og stórveldum heims, og þar á meðal af hinu gamla sambands-ríki Danmörku. Um næstu alda- raðir verður þetta ártal öllum minnisstætt við hlið hinna þekktu ártala 814, 930 og 1000. Hinn 17. júní er nú sem öllum er kunnugt löghelg- aður þjóðhátíðardagur íslendinga. En 17. júní á sér fleiri rætur sem minningadagur. Hann er afmælisdag- ur Jóns Sigurðssonar, mestu sjálfstæðishetju þjóðar- innar og ástsælasta íslendings á síðari öldum. Jón Sigurðsson er fæddur að Rafnseyri við Arnar- fjörð lúnn 17. júní 1811 og eru því í ár liðin 146 ár frá fæðingu hans. Þetta er nokkuð langur tími, en þó hafa fram á síðustu ár verið á lífi menn og konur, sem munað hafa Jón Sigurðsson. Séð hann með eigin aug- um, á bams- eða unglings-árum. Hann dó í desember 1879. Þeir sem vom 10 ára, þegar Jón Sigurðsson dó, eru nú 88 ára, ef þeir era á lífi. Hér á landi er nú á lífí allmargt fólk um nírætt. Það fólk hefði allt getað séð Jón Sigurðsson síðustu ár hans. í minni 10 ára bams geta fest þeir atburðir, er það man til æviloka, og jafn- vel man gamalt fólk vel atburði frá 5 ára aldri, ef þeir hafa hrifið það eða valdið þeim sorg. Flestar þekktir myndir af Jóni Sigurðssyni sýna gáfu- legt og svipfagurt andlit. Silfurhvítt hárið eykur feg- urð mannsins. Hinn bjarti, hreini, göfugmannlegi svip- ur er ógleymanlegur. En ef til vill er til heima hjá ykkur, sem þessar línur lesið, bók, sem heitir Jón Sigurðsson, foringinn mikli, samin af Páli Eggerti Ólafssyni. í þessari bók gætuð þið fundið mynd af Jóni Sigurssyni, sem er að sumu leyti ólík þeim myndum, er oftast sjást af þessum ást- mög þjóðarinnar. Þessi mynd er á bls. 58 í bókinni. A þeirri mynd er Jón Sigurðsson aðeins 26 ára. Þessi mynd sýnir ungan, blíðlegan, sviphreinan mann, með liðað dökkt hár, — nær því hrafnsvart. Myndin er ekki ljósmynd, heldur er hún máluð, — en vafalaust er hún lík honum. Þessi mynd sýnir það, að þegar á æskuár- um hefur Jón Sigurðsson verið óvenjulega eftirtektar- verður maður. Dagurinn 17. júní 1811, hefur verið mikill gleði og hamingjudagur á Rafnseyri. Hinn fagurskapaði, dökk- hærði drengur, er fyrsta barn þeirra prestshjóna. Þau Jón Sigurðsson 1837 (mál. Comradt). Heima er bezt 217

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.