Heima er bezt - 01.06.1957, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.06.1957, Blaðsíða 32
krá, sem var í þröngu öngstræti, langsum með kvik- myndahúsi einu. Hún vissi, hvað manninum var á hönd- um, og hvers vegna hún átti að hitta hann. Á vissan hátt var hún nú að fremja morð. Hún aðstoðaði hann að minnsta kosti við að fremja afbrot. En þessar ásak- anir höfðu sótt að henni fyrr, en hún átti aðeins eitt svar á reiðum höndum: Gat hún annað gert? Reiðin sauð enn niðri í Cindýju Hilliard og óx um allan helming, er hún kom auga á htla manninn, sem kom inn í þessu, horfði skeytingarlaust í kringum sig og mældi hana síðan hátt og lágt með óskýrum, þám- uðum augum. Frammistöðustúlkan var öll á burtu, og veitingamaðurinn í tiglótta vestinu hafði snúið við þeim baki. Cindý veitti þessu öllu athygli, um leið og augu hennar mættu augum þessa nýkomna gests. Henni var ofurljóst, að hún mundi ekki geta leynt andstyggð sinni og viðbjóði á þessari mannskepnu. Svipur hennar og augnaráð hlaut að koma upp um hana. En þessi kurfur skaut henni skelki í bringu, er hann gekk í humáttina til hennar. Hún vissi ekki, hvað olli, ef til vill réð mestu um, að hún vissi erindi hans, vissi, á hvern hátt hann átti að vinna fyrir þessu fé, sem hún átti að afhenda honum. „Mætti ég tylla mér niður hjá yður andartak, ung- frú?“ spurði hann. Cindý var sér þess meðvitandi, að hún hristi höf- uðið, og hvatti hann með því til að gera það, sem vænta mátti: Harin settist hinum megin við borðið, gegnt henni. „Þér vitið nafn mitt, ungfrú,“ sagði hann með spurn- arhreimi. Aftur hristi hún töfuðið. Annað hvort vissi hún ekki um það eða skeyttti ekki um, hvað hún gerði. Hún óskaði sér aðeins á burtu frá honum, langaði til að hverfa aftur til föður síns, svo að þau gætu haldið heim saman, eins og þeim hafði verið skipað. Raunar gat hún naumast trúað því, að svo meinleysislegt skinn, sem þessi maður virtist vera, — svo stuttur, kringlu- leitur og krangalagur, væri morðingi, leigumorðingi. Hann var að heyra og sjá áþekkastur sölumanni, inn- heimtumanni eða þá skrifstofumanni í stórfyrirtæki, áþekktu því, sem faðir hennar var fyrir. „Hann er farinn að kólna,“ sagði maðurinn, og glanmpalaus augun, sem hún sá, að voru blá, hvörfl- uðu ekki af henni, um leið og hann lagfærði bindi sitt og benti á glasið fyrir framan hana. „Þér ætlið víst ekki að drekka þetta?“ „Nei.“ „Þakka yður fyrir, ungfrú.“ Hann sötraði í sig úr glasinu með áfergju, lá við sjálft, að ánægjubros breiddist út um andlitið, en þess botnslausu, sviplausu augu hvíldu æ á henni. Hún vissi ekki, hvað hún átti að gera. Hún var ekki ennþá viss um, að þetta væri rétti maðurinn. Ef til vill var hér aðeins um að ræða farandsala, sem reyndi að koma henni til við sig. „Ég er sendill,“ sagði maðurinn loks. „Átti ég ekki að taka við einhverju hjá yður?“ Þegar hann sagði þetta, vissi hún, að hann laug, ef til vill vegna þess, að hér var nærri höggvið því, sem vel hefði mátt vera satt. En nú var hún þess fullviss, að þessar hendur, sem hvíldu slyttislegar, en þó án minnsta óstyrks, á borðinu fyrir framan hana, voru morðingja hendur, sem mundu handleika þessa byssu, er yrði manni að bana, — manni, sem hún vissi ekki nafn á. Hún opnaði tösku sína og dró upp bréfið. Maðurinn þreif það, kinkaði kolli og stakk því á sig án þess svo mikið sem að líta á það. Hún horfði á hann og jafn- framt gaf hún gaum að hreyfingum handa sinna, rétt eins og hún væri að horfa á kvikmynd. Þetta svefn- gengils ástand var orðið eins og hluti af lífi hennar. Svo skipti það engum togum, hún sá allt í einu, að heljarmikill skuggi féll þvert yfir borðið, og leit upp. Hún sá, að maðurinn, sem gegnt henni sat, leit upp, sá, að honum varð litið þessum líflausu augum á rum- inn, sem yfir honum stóð, svo hálfluktust augun, án þess að sýnilegs áhuga gætti hjá Htla manninum. „Hvað ert þú með í vasanum, Flick?“ spurði hái maðurinn hásri röddu, sem var ills viti, þótt ekki væri hún ýkja kuldaleg. „Hvað fékk ungfrúin þér?“ „Bréf, herra yfirlögregluþjónn,“ svaraði maðurinn, sem nefndur hafði verið Flick. Cindý tók eftir því, að hávaxni maðurinn, sem auð- sæilega var leynilögregluþjónn, hafði ekki tekið hend- urnar upp úr frakkavasanum. Og einhvers staðar langt inni í hugskoti hennar hvíslaði rödd: Það getur ekki verið satt, nei, það má ekki koma fyrir. „Komdu með mér til stöðvarinnar,“ sagði leynilög- reglumaðurinn. „Svo getur þú skilað bréfinu, Flick.“ Nú varð undrunin að víkja fyrir reiði og uppreisnar- andanum: Það má ekki koma fyrir. Þér getið ekki gert það! Nú sjá þeir fyrir öllu! Hún stóð upp. „Þér getið ekki.... “ hóf hún mál sitt. Hái maðurinn leit aðeins við henni myrkum, en ekki óvingjarnlegum augum. „Ég fer aðeins eftir skipun- um, ungfrú. Það var ekki nefnt, að ég ætti að taka yður líka, en ég geri það, svo að yður sé óhætt. Skiljið þér mig? Ef þér hafið ekkert af yður gert, verðið þér ekki tafin lengi.“ „Nei,“ sagði hún og reyndi að skjótast framhjá honum. „Mér þykir þetta leitt, ungfrú,“ sagði hái maðurinn, og nú varð reiði Cindýjar að víkja fyrir vonleysinu. „Er ég tekin föst?“ „Nei, ekki enn, ekki lagalega séð, nema því aðeins, að þér neitið að koma með mér til stöðvarinnar.“ Hann leit við Flick, sem var að ljúka úr glasinu. „Ég vona, að þér verðið ekki dæmd eftir þeim félagsskap, sem þér eruð í.“ Nú komu tárin fram í augu Cindýjar, tár í fyrsta skipti, eftir að þessi viðureign hófst. Tár reiði, sneypu og örvæntingar! Nú var útséð um allt. Á einn eða ann- an hátt hafði henni orðið á, henni hafði ekki tekizt að leika þetta hlutverk svo, sem henni hafði verið falið. Og hvað mundi gerast, ef hún kæmist ekki heim fyrr 224 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.