Heima er bezt - 01.07.1959, Side 5

Heima er bezt - 01.07.1959, Side 5
verið búhöldar góðir og atkvæðamenn í héraði. En í móðurætt Sigurðar voru klerkar og fræðimenn. Standa [lannig að honum merkar ættir úr tveimur landsfjórð- ungum. Má segja að í ættum þessum hafi fallið tveir straumar samtímis, annars vegar framkvæmda og bú- mennsku en hins vegar fræðimennsku og ritstarfa. Séra Jón var hinn lærðasti maður í íslenzkri sögu og forn- fræði, hefir hann skrifað margt um þá hluti bæði í inn- lend rit og erlend. Svo segja kunnir menn, að mjög kippi Sigurði bónda í báðar ættir sínar, þótt störf hans hafi einkum fallið á sviði landbúnaðar og framkvæmda. Sigurður er fæddur 22. marz 1885 að Bjarnanesi í Nesjum, en þar var faðir hans þá prestur. Séra Jón fékk Stafafell 1891 og fluttist Sigurður þá þangað með for- eldrum sínum og hefur átt þar heima síðan. Snemma hneigðist hugur hans til búsýslu og hafði hann þegar á unga aldri hinar beztu forsagnir til allra starfa. Kaus hann sér stöðu bóndans, þótt kost ætti hann langskóla- náms, og hæfileikar ærnir til bóklegrar iðju. Hann lauk gagnfræðaprófi í Flensborg 1903, en gerðist síðan ráðs- maður á búi föður síns 1905. Varð hann brátt umsvifa- mikill um framkvæmdir heima fyrir og einnig kjörinn til forystu í málum sveitar sinnar. Er gaman að lesa í sjálfsævisögu séra Jóns, þar sem hann lýsir framkvæmd- um sonar síns, er hann hafði tekið við bústjórn. Finnur lesandinn þar ánægju og stolt hins lærða klerks, þótt honum ef til vill þyki nóg um sumt. Sigurður kvæntist 1917 og tók það ár við búi af föð- ur sínum. Bjuggu þau hjón síðan óslitið til ársins 1955, en þá var Sigurður sjötugur. Kona hans er Ragnhildur Guðnmndsdóttir, frændkona hans frá Lundum í Borg- arfirði. Hafa þau hjón verið samhent í öllu um að gera garðinn frægan að því, sem mest má prýða íslenzkt sveitaheimili. Eiga þau tvo syni og eina dóttur. Gísli Sveinsson fyrrverandi Alþingisforseti og sendi- herra lýsir búskapnum í Stafafelli í afmælisgrein, er hann reit um Sigurð sjötugan. Leyfi ég mér að taka þann kafla upp óbreyttan: „Stafafellsbúið var eitt af stórbúum þessa lands á sinni tíð. Þegar Sigurður byrjaði sjálfstæðan búskap þar, eins og áður var sagt, kveðst hann hafa átt 300 sauð- fjár, og var mikill hluti af því á leigum beggja vegna Lónsheiðar. Heimilisfólkið var lengi vel um 20 manns, og átti allt vinnandi fólk kindur á kaupi eins og alsiða var, vinnumenn þetta 50 ær og þar yfir, svo að hjörðin var álitleg á heimilinu, er allt kom saman, um 700 fjár yfir veturinn, þegar flest var. Af þessum hópi voru um 250 sauðir við beitarhús og gengu að mestu úti í góðum vetrum. Annar gripafjöldi var og ærinn. Eins og kunn- ugir fara nærri um var þörf mikilla vinnubragða á þess- ari jörð, enda húsbændurnir stjórnsamir. Hlunnindi voru allmikil og voru nýtt til hins ýtrasta, æðarvarp og sel- veiði í eynni Vigur, er liggur þar fyrir landi, rekafjör- ur happasælar og silungsveiði í Jökulsá, er flóir þar meðfram jörðinni, reyndar sveitinni að öðru leyti til óþurftar.... Nýting allra jarðargæða hélzt hjá Sigurði með fullum krafti mátti segja til 1930, er breyta varð Elzta og fegursta reynitréð af nœr 100, sem nú eru i görðum Stafafells, gróðursett um sl. aldamót. Undir trénu standa Sig- urður á Stafafelli og börn hans Nanna og Guðlaugur. til eftir atvinnuháttum. Bátur var gerður út á hverri vetrarvertíð og fiskaðist oft vel. Tún í Stafafelli var áður mjög þýft, eins og víða þar um sveitir, en sléttað var það að fullu að lokum 1930 með þaksléttuaðferð- inni, en eftir það fært út með nýrri aðferðum og telst nú um 16 ha., en engjaheyskapur hefur ávallt verið lang- sóttur. Kálgarða þá, er heima voru við bæinn, gerðu þau hjónin að trjágróðrarstöð í fyrstu með reynhrísl- um, en nú eftir nálægt 40 ár mæna trén yfir bæjarhúsin, sem menn töldu þó vel myndarleg. Fyrir trjárækt og túnrækt hefur Sigurður hlotið verðlaun úr heiðursverð- launasjóðum. Búpeningur Sigurðar hefur verið talinn með því bezta þess kyns í sýslunni, enda sauðfjárkyn breiðst þaðan út um héraðið.“ Lýsing þessi sýnir, að um margt hefur Stafafellsbónd- inn haft að husrsa, og oft mun vinnudagurinn hafa ver- ið langur og erfiður. Virðist það raunar nóg starf ein- um manni að reka slíkt bú með stórframkvæmdum á erfiðri jörð. En Sigurður hefur verið kvaddur til margra annarra starfa. Munu fá þau trúnaðarstörf til fallast í Heima er bezt 225

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.