Heima er bezt - 01.07.1959, Blaðsíða 29
GUÐRÚN FRÁ LUNDI
NITJÁNDI HLUTI
„Það var svo sem hvorugt, enda lítið að marka lygina
úr kerlingarfjandanum,“ var hann búinn að segja áður
en hann gætti að. Svona talsmáti gengi sjálfsagt fram
af þessari silkitungu. „Fyrirgefið þér orðbragðið, prest-
ur minn, en þetta gengur svo nærri mér, að ég óttast
að ég verði brjálaður. Sárast af öllu er að hafa ekki
drenginn hjá sér,“ sagði Kristján.
„Þér eruð nú svo skynsamur maður, Kristján minn,
að þér reynið að beygja yður undir vilja Drottins,“
svaraði prestur í hógværum prédikunartóni.
Kristján stikaði fram og aftur um gólfið og hugsaði,
að það væri víst nær að segja sér að beygja sig undir
vilja maddömunornarinnar. Það var hún, sem var búin
að ná bæði tagli og högldum á lífskjörum hans.
„Það er þetta, sem ég ætlaði að segja við yður,“ sagði
presturinn. „Ég fer núna með næstu skipsferð suður. Ég
skal taka af yður bréf til konu yðar og koma með svar-
bréf til baka. Ég heimsæki frú Karenu alltaf, þegar ég
kem til Reykjavíkur. Það kalla hana ailir frú þar. Þessi
maddömutitill er að hverfa úr málinu. Þér getið fengið
skriffæri hjá mér og skrifað heima á herberginu mínu,
ef þér viljið.“
„Þakka yður kærlega fyrir. Það er vel boðið, en ég
er í svoleiðis skapi núna að ég get ekki skrifað. Sendi
þá heldur strákangann með það á morgun.“
Svo kvaddi Kristján og reið heimleiðis, jafnhryggur
og áður. — Hvernig gat nokkur manneskja lifað í marg-
ar vikur og jafnvel mánuði, sem hafði alltaf hita? Hann
hefði verið orðinn brjálaður í sporum Rósu. En svo gat
það iíka átt sér stað, að hún hefði verið þarna heima
hjá móður sinni og hlustað á það, sem hún talaði við
hann í símann. Það var ómögulegt að vita, hvað þetta
kvenfólk léti sér detta í hug.
Kristján gat þess ekki við nokkurn mann, að hann
hefði talað suður og skilaði aldrei kveðjunni til Geir-
laugar.
Næsta morgun settist hann niður og skrifaði konu
sinni. En það gat ekki orðið eldheitt ástabréf eins og
þau, sem hann hafði sent henni fyrir sjö árum. Sá eldur
var orðinn svo fölskvaður, að ekki var hægt að glæða
hann aftur, hvernig sem reynt var að blása í glæðurnar.
Samt varð þetta hlýlegt bréf. Hann sagði, að heimilið
væri eins og hálfhrundar rústir síðan hún hefði farið.
Tómleikinn ætlaði að gera út af við sig. Sig dreymdi
drenginn og hana næstum því á hverri nóttu. Frá þeirri
draumasælu væri ömurlegt að vakna. Nú langaði sig
ósegjanlega til að fá drenginn norður, fyrst hann væri
heilbrigður. Séra Gísli ætlaði að taka hann að sér og
hugsa um hann, eins og hann ætti hann sjálfur. Dreng-
urinn hefði beðið sig að koma og sækja sig, þegar hann
hefði talað við hann í símanum.
Svona hljóðaði bréfið. Kristján fór með það út í
kaupstað áður en nokkur kom á fætur. Það var rétt
búið að opna búðina, þegar hann kom út eftir. Líklega
væri presturinn í rúminu ennþá. En það gerði ekki
mikið til.
Kristján þurfti að kaupa ýmislegt í búðinni. Þegar
því var lokið, fór hann heim í kofann til Leifa og Gerðu
og fékk þar morgunkaffið.
Gerða var heima þessa daga, vegna þess að það hafði
verið uppgripaafli, og hún hafði vinnu við fiskinn. En
annars fengu hana færri en vildu við heyskapinn.
Leifi var nýlega kominn af sjó og svaf.
„Einhvern tíma þurfa þeir að sofá, sjómannagreyin,“
sagði Gerða. Hún þóttist vera búin að sannfrétta það
að sunnan, að Rósa væri komin heim til móður sinnar.
Ekki gat hún samt munað, hver hefði sagt henni það.
Það máttu heita bærilegar fréttir, fannst Kristjáni.
Kannske kæmu þau nú heim með prestinum, Jón iitli
og moðir hans. Hann hugsaði sér að taka vel á móti
þeim. Það yrði gaman að heyra í orgelinu aftur. Þögnin
var eitt af því, sem gerði heimilið eins og gröf. Honum
hafði alveg láðzt að minnast á það í bréfinu til hennar.
Kristján stanzaði lítið í kofanum og flýtti sér síðan
heim í læknishúsið. Presturinn var kominn á fætur, sem
annað hvort var í glaðasólskini.
Kristján fékk honum bréfið og bað hann fyrir dreng-
inn, ef hann fengi að fara með honum heim.
„Mér væri það sönn ánægja að koma með hann norð-
ur, angann litla,“ sagði prestur. „Óiíklegt, að hann vilji
ekki fara með mér.“
Kristján reið heim léttur í skapi, með nýjar vonir í
Heima er bezt 249'