Heima er bezt - 01.02.1960, Síða 24

Heima er bezt - 01.02.1960, Síða 24
Til vinstri: Námugöngin gegnum fjallið Kirunavara. — Til hægri: Kirunavara í nœturljósum. eftir á teinunum, eða voru tengdir við lestir sem fóru í aðrar áttir. Endastöð lestarinnar, sem hélt í norður- átt, var í borginni Kiruna, en sú borg er um 160 km fyrir norðan heimskautsbauginn. Þangað var ferðinni heitið hjá mér. Ég gat þess fyrr, að við hefðum ekið um skógivaxið land. Enn er mikill skógur. Umhverfið breytist fyrst lítið, þótt komið sé inn í kuldabeltið, en smátt og smátt fór þó breyting að korna í Ijós. Greniskógurinn verður gisnari og gisnari, en birki- og víðirunnar komu í ljós og var sá skógargróður ekki ólíkur því, sem ger- ist þar sem gamlar skógarleifar eru á Islandi. En þó var sá munur á, að þótt birkitrén séu lágvaxin, þá voru þau beinvaxin en ekki kræklótt eins og á íslandi. Þegar lengra kom norður voru víða skóglaus svæði, fúamýrar og stórgrýtt, mosagróin heiðalönd. Var þetta skóglausa land ófrjótt og ömurlegt yfir að líta. Gerðist byggðin nú mjög strjál. Býlin sem sáust voru lágreist og fátæk- leg. Var mér sagt, að í þessum kotum byggju yfirleitt duglitlir, fátækir Lappar, sem gefizt hefðu upp á hjarð- mennskunni, og byggju þarna við mikla fátækt með eina eða tvær kýr eða nokkrar geitur, en stunduðu auk þess veiðiskap og daglaunavinnu; aðallega skógarhögg. Mér var sagt að það væri talin mikil niðurlæging og ógæfa að gefast upp við hjarðmannalífið og gerast kot- bóndi og daglaunamaður. Er það hjátrú Lappanna að sumum mönnum fylgi fjárheill, en aðrir séu óheppnir hjarð-menn og séu þessir menn neyddir til að hrökklast frá hjarðmennskunni og gerast veiðimenn í vötnum eða kotbændur. Það var að kvöldi hins 26. maí, sem ég kom til Kiruna. Ég fékk mér herbergi í einu gistihúsi borgar- innar. Það var kvistherbergi á fjórðu hæð og sneri glugginn í norðvestur. Þegar ég hafði borðað kvöld- verð og hvílzt um stund eftir ferðalagið, settist ég við gluggann og athugaði umhverfið. Var þá iiðið nær miðnætti. Albjart var eins og um hádag, og hæðir og hlíðar fjallanna baðaðar í sól, en geislar sólarinnar náðu ekki að skína á láglendið umhverfis borgina. Mér lá ekkert á að hátta og sat því við gluggann og naut hins fagra útsýnis. Áður en klukkan var orðin eitt, skein sól um allar jarðir. Veður var kyrrt og blítt. Vestur við landamæri Noregs skein á snæþakta fjallatinda bað- aða í miðnætursól. Birkið í trjágörðunum var allaufg- að og sóleyjar voru í fullum blóma á túnblettunum, en í skuggsælum krókum bak við húsin voru óhreinir hjarnskaflar eða klaki, sem vatnið seitlaði úr. í skurða- bökkum norðan í móti var sums staðar klald og snjór. Þrem vikum áður var ég í Stokkhólmi og spurðist þá fyrir urn það í sírna, hvernig veðrátta væri í norður- hluta Lapplands og var þá sagt, að þar væri nokkur snjór nýfallinn ofan á gamla hjarnskafla og freðna jörð. Einnig var mér sagt að bjarndýraspor hefðu sézt í ný- föllnum snjónum. Væri þetta mjög sjaldgæft hin síðari ár. Ekki var talið rétt að eggja ferðamenn á að heim- sækja Lappland svo snemma vors, meðan snjóföl væri á jörð. Skildist mér að vel gæti farið svo, að bjarndýr yrðu nærgöngul mannabyggðum, er þau röltu um snæ- þakið láglendið, grannholda og hungruð eftir dásvefn vetrarins. Ég frestaði því ferðinni. En mikil hafði breytingin orðið á þessum þremur vikum. Blessuð sól- in hafði gert kraftaverk á þessum þriggja vikna tíma. Frá 28. maí og fram undir lok júlímánaðar er sól á lofti allan sólarhringinn í Kiruna og nálægum byggð- um, sem liggja á sama breiddarstigi. Þá þýtur gróður- inn upp. Jörðin er hlý allan sólarhringinn. Það er nærri því tveggja mánaða samfelldur sólardagur. Borgin Kiruna er nú víðlendasta borg í heimi, þótt hún telji ekki nema 14—15 þúsund íbúa. Fyrir nokkr- um árum voru nágrannabyggðir sameinaðar borginni, svo að nú er flatarmál hennar meira en heimsborganna stóru Lundúna og New York. Nafn borgarinnar er víst finnskt að uppruna, en orðið kiruna merkir rjúpa. Rétt utan við borgina er fjall all mikið, sem heitir 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.