Heima er bezt - 01.02.1960, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.02.1960, Blaðsíða 27
TÍUNDI HLUTI — Á ég að reyna að brjótast suður í fjárhús? Lilja hefur naumast lokið spurningunni, þegar baðstofuhurð- inni er hrundið upp, og feðgarnir í Vesturhlíð bera Jón inn í baðstofuna. Þeir leggja hann á rúmið, sem næst þeim er, en lengra ætla þeir ekki. Mæðgurnar fleygja frá sér handavinnunni og spretta á fætur. — Jónatan! líður af vörum Lilju. — Hvað hef- ur komið fyrir pabba? Jónatan fær ekki ráðrúm til að svara Lilju. Anna horfir hatursfullum augum á þá feðg- ana og segir: — Hvað hafa þeir nú gert þér, Jón. — Bjargað lífi mínu, ég er stórslasaður. Anna hlær með kaldri fyrirlitningu. — Þeir bjargað lífi þínu! Lilja, hjálpaðu mér að afklæða föður þinn. Atli býst til að ganga fram úr baðstofunni án þess að mæla orð, en Jón réttir honum höndina. — Lofaðu mér að taka í hönd þína, Atli, og þakka þér drengskap þinn við mig, segir hann klökkum rómi. Atli tekur í útrétta hönd Jóns og mætir um leið augum hans. Á þessari stundu er báðum það ljóst, að hér eftir geta þeir ekki hatað hvorn annan. Atli þrýstir hönd Jóns og segir hlýrri röddu: — Það er ekkert mér að þakka, Jón. Síðan gengur hann út úr baðstofunni, en Jónatan hefur enn ekki lok- ið erindi sínu þar og stendur kyrr. Anna lýkur við að afklæða mann sinn, og henni er orðið það ljóst, að hann er brotinn á báðum fótum. — Hver nær í lækni til að hjálpa mér, stynur Jón upp, honum líður auðsjáanlega mjög illa. Önnu er þungt um svar. Engum kvenmanni er fært út í þetta ægi- lega veður, en Vesturhlíðarfeðgana skal hún aldrei biðja um aðstoð, hvað sem á dynur. Hún hatar þá enn, engu síður en áður. En Jónatan hefur beðið eftir tækifæri til að bjóða hjálp sína að ná í lækni. Hann færir sig nær rúmi Jóns og segir: — Ég skal ná í lækni fyrir þig, Jón. — Ætlar þú að leggja líf þitt í hættu fyrir mig, Jónat- an? Er veðrið ekki næstum ófært? — Ekki held ég það. Ég er ekkert óvanur því að bregða mér út í vetrarveður, og þetta er ekki svo löng leið. — Jón fær kvalakast, og líðan hans fer stöðugt versnandi. Anna reynir að hagræða manni sínum og skipar Lilju að hjálpa sér, en drengilegu boði Jónatans svarar hún engu. Hún vill ekki þiggja það. Lilja hefur enn ekki komizt að rúminu til að veita móður sinni aðstoð sökum fyrirferðar hennar sjálfrar; en nú rýmir Anna loks til fyrir dóttur sinni. Jónatan ætlar ekki að ræða málið frekar og snarast fram úr baðstofunni. Hingað verður læknir að koma, eins fljótt og auðið er. Atli stendur innan við bæjardyrnar og bíður eftir syni sínum. Jónatan nemur staðar hjá honum og segir: — Ég fer beina leið héðan og næ í lækni. Það má ekki dragast. — Treystir þú þér til að rata þá leið í þessu voða veðri? — Já, ég hræðist það ekki, hjálpin verður að berast fljótt. — Ætlarðu ekki að koma heim fyrst? — Nei, mér er ekkert að vanbúnaði, ég fer strax héðan. — Ég ætla þá ekki að reyna til að aftra för þinni, Jónatan. Þú ert sannur drengur. Guð fylgi þér. Rödd Atla ldökknar, en slíkt er óvanalegt. — Ég þakka þér fyrir, pabbi. Skilaðu kveðju til mömmu. Vertu sæll. Jónatan opnar bæjardyrnar og hverfur út í sortann, en Atli heldur heim að Vesturhlíð. Kristín er orðin óróleg yfir óvenju langri fjarveru feðganna við fjárhús- störfin. Hún er komin fram að bæjardyrum og ætlar að freista að opna þær og vita, hvort hún verði einskis vísari. En Atli er fyrri til að opna dyrnar að utan og kemur inn. —' Það er gott að sjá þig, segir hún. En hvar er Jónatan? — Hann fór að ná í lækni. — Ná í lækni? Handa hverjum? — Jóni í Austurhlíð. — Hvað ertu að segja, maður? Jóni í Austurhlíðl Þú ert varla með réttu ráði. — Jú, Kristín, ég er algáðdr. Jón í Austurhlíð lá fyr- ir stundu síðan á fjárhúshlaðinu sínu stórslasaður. Við feðgarnir bárum hann heim að Austurhlíð, og Jónatan er farinn af stað að ná í lækni. Hann bað mig að skila kveðju til þín. — Því léztu ekki karlinn liggja afskiptalausan? — Hefðir þú gert það, Kristín? — Já, með köldu blóði. Ég hata Austurhlíðarhyskiðf Heima er bezt 63-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.