Heima er bezt - 01.02.1960, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.02.1960, Blaðsíða 31
GUÐRTJN FRÁ LUNDI TUTTUGASTI OG SJÖTTI HLUTI Geirlaug ætlaði að koma upp eftir með kaffi um miðjan daginn. Hún fór að búa til kleinur eftir göml- um og góðum sið á þessu heimili. Hún skildi ekkert í því, að hún skyldi missa niður bæði mjólk og hveiti. Það var merki um það, að gestur kæmi í kleinurnar, en slíkt var of óvanalegt til þess að hún gæti haft ánægju af því að hugsa sér að það gæti rætzt. Það hefði getað átt sér stað að Stína gamla spákona hefði kannske litið inn, ef hún hefði ekki verið að taka upp mó með Grími gamla. Þau þurftu að hugsa sér fyrir eldsneyti eins og þeir, sem meira höfðu undir höndum. Hún hafði lokið við að steikja kleinurnar þegar létt fótatak heyrðist út í bæjardyrunum, sem færðist inn göngin. Svo var eld- húshurðin opnuð hægt og hikandi. Geirlaugu fór ekki að verða um sel. Hver gat verið þar á ferð? hugsaði hún. Kannske einhver flækingurinn. En það var þá Rósa, sem birtist í dyrunum. Geirlaug gaf frá sér undr- unaróp, sem kafnaði þegar gesturinn kyssti hana tvo kossa. „Ja skárri er það nú dagurinn. Ekki datt mér í hug að það værir þú, sem sóttir í kleinurnar hjá mér,“ sagði Geirlaug, klökk af gleði. „Hvaðan kemurðu, elsk- an mín? Ertu ein á ferð?“ „Já, ég er ein, Geirlaug mín, og kem bara sunnan frá Þúfum. Þar var ég í nótt. Kom með skipi í gær. Ertu ekki ein í bænum. Okkur sýndust allir aðrir en þú fara að taka upp mó.“ „Er ekki Jón litli með þér?“ spurði Geirlaug. Rósa tók eina kleinu úr fatinu og smakkaði hana áð- ur en hún svaraði: „Hann er ekki með mér núna. Þú býrð til góðar kleinur enn þá, Geirlaug mín.“ „Ég ætla að fara með kaffi til þess í mógröfinni. Kannske þú viljir verða samferða?“ sagði Geirlaug ánægjuleg á svip. er hrædd um ekki, en mig langaði til að sjá org- elið mitt og náttúrlega margt fleira, því eins og þú get- ur kannske ímyndað þér er þetta bara skyndiferðalag fyrir mér. Ég sezt ekki hér að aftur,“ sagði Rósa. „Ekki það,“ sagði Geirlaug, og ánægjan var horfin á svipstundu. „Mér fannst það náttúrlega ólíklegt að móðir þín tæki slíkt í mál. En það er drengurinn. Ég býst við að Kristján langi til þess að fá hann. Hann hefur áreiðanlega saknað hans mikið.“ „Ja, það getur verið, en ég hef líka saknað margs héðan og hlakkað til að sjá Hof og alla kunningjana aftur, því norður ætlaði ég að koma þó sambúðin væri stundum kærleikssnauð. Svo skulum við ekki tala meira um það, Geirlaug mín. Heldurðu að þú getir fundið. lykilinn að skrifstofunni, eða er hún kannske ólæst?“ „Ég held hann geymi hann í tauskápnum inni í hjóna- húsinu,“ sagði Geirlaug. „Þá ætti ég að geta fundið hann,“ sagði Rósa. Þær fylgdust að inn í borðstofuna og þaðan inn í hjónahúsið, sem var ólæst vegna þess að nú var mið- vikudagur og Geirlaug þurfti að skúra gólfið. Rósa at- hugaði allt hátt og lágt. Það var allt hreint og vel útlít- andi. „Þú ert jafn þrifin og dygg, Geirlaug mín, hverj- um sem þú vinnur,“ sagði Rósa með augun full af tárum. Þarna var allt í sömu sltorðum og hún hafði yfirgefið það fyrir ári síðan eða rúmlega það. Þarna héngu handklæðin hennar við þvottaskápinn, hversdags- fötin hennar í tauskápnum. Geirlaug var fljót að finna lykilinn. Rósa tók við honum og hampaði honum stundarkorn í hendinni. Geirlaug sagði henni í hvísl- andi málróm, þó enginn gæti heyrt til hennar: „Hann bar orgelið inn í húsið í fyrra haust þegar fór að kólna og þar var það í allan vetur. Ég lagði alltaf í ofninn þegar frost var.“ Svo leiðrétti hún mismæli sitt. „Ég' sagði í fyrra haust, það er ekki nema vor enn þá. Lík- lega verður margt öðru vísi en það er núna þegar haustið kemur.“ „Það er vel líklegt, Geirlaug mín,“ sagði Rósa. Svo benti hún á uppbúið hjónarúmið og spurði næstum hörkulega: „Hafa þau sængað þarna saman í allan vet- ur?“ „Nei, nei gerðu í guðsbænum nei,“ flýtti Geirlaug sér að svara. „Það veit ég að aldrei hefur komið fyrir. Bezt gæti ég trúað því, að hann hefði læst dyrunum.“ Rósa gekk fram í skrifstofuna og bráðlega heyrðust fínir orgeltónar fram í eldhúsið. Geirlaug stakk bros- andi andlitinu inn í dyrnar. „Það lítur út fyrir að vera óskemmt, sem betur fer,“ sagði hún. „Já, það er í ágætu lagi,“ sagði Rósa. „Það var ágætt. En hvað það er gaman að heyra í orgelinu,“ sagði Geirlaug. Samt sýndist henni Rósa Heima er bezt 67

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.