Heima er bezt - 01.03.1960, Síða 4

Heima er bezt - 01.03.1960, Síða 4
STEINDOR STEINDORSSON FRA HLOÐUM: Olafur Jónsson, rá&unautur. Sumir menn eru gæddir þeirri undragáfu, að geta haft mörg járn í eldi í einu, án þess nokkurt brenni og skilað að kveldi ekki einu heldur margföldu dagsverki, og allt þó vel unnið. Slíkt tekst mönnum þó ekki nema saman fari vinnuþol, kunn- átta og umfram allt sú tækni að kunna að fara svo með tímann, að hver stund komi þar að fullum notum. Og þá er ekki síður nauðsynlegt að eiga áhugamál, sem knýja á og láta mann ekki í friði, nema þeim sé sinnt. Einn þeirra manna, sem þessar listir leikur er Ólafur Jónsson, og skal nú nokkru gjörr frá honum sagt. Olafur er fæddur að Freyshólum í Vallahreppi í Fljótsdalshéraði 23. marz 1895. Foreldrar hans voru Hólmfríður Jónsdóttir og Jón Ólafsson er þar bjuggu. Ekki verður ætt hans rakin hér, en margt dugnaðar- manna er meðal frænda hans og forfeðra þar eystra. Faðir hans var svo kappsfullur við vinnubrögð, að á gamals aldri áttu fullgildir menn á bezta skeiði fullt í fangi með að halda til jafns við hann. Mun Ólafi kippa þar í kynið um vinnuafköst og kapp. Æskuár sín dvaldist Ólafur í heimahéraði sínu og þá oft utan heimilis sem títt er. Haustið 1915 fór hann í bændaskólann á Hvanneyri og lauk þar námi við góð- an orðstír á tilsettum tíma 1917. Þar á Hvanneyri vakti hann brátt athygli bæði kennara sinna og skólabræðra, ekki einungis sem ágætur námsmaður, heldur einnig og ekld síður í öllu félagslífi skólapilta. Var það mál manna þar, að hann hefði verið einn þeirra pilta, sem mest lögðu af mörkum til að auðga félagslíf skóla- sveina að ógleymanlegum ánægjustundum. Kom þar þegar fram, sem síðar reyndist, að Ólafur er hverjum manni starfshæfari í félagsskap, fundvís á verkefni og ólatur að leysa þau af hendi. Að loknu námi á Hvanneyri vann Ólafur um hríð við jarðræktarstörf í Borgarfjarðarhéraði á vegum Búnaðarsambandsins þar. En hugur hans stefndi að aukinni menntun og víðtækari störfum í þágu íslenzkra búnaðarmála. Réðst hann því til utanfarar og náms í Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn, er margir íslendingar hafa sótt fyrr og síðar. En sá skóli er tví- mælalítið í fremstu röð búnaðarháskóla. A námsárum sínum vann Ólafur að ýmsum búnaðarstörfum í Dan- mörku, meðal annars við tilraunastöðina í Heming í Jótlandi, en þar eru reknar víðtækar jarðræktartilraun- ir. Aflaði hann sér þannig góðrar undirbúningsmennt- unar, bæði bóklegrar og verklegrar fyrir það starf, sem nú beið hans, en hann hvarf að framkvæmdastjórn Ræktunarfélags Norðurlands á Akureyri vorið 1924, beina leið frá prófborðinu. Ræktunarfélagið var þá rúmra 20 ára gamalt. Var það um þessar mundir, og hafði verið um alllangt skeið, búnaðarsamband fyrir allan Norðlendingafjórðung. En auk þess hafði það frá öndverðu rekið tilraunastöð á Akureyri, hina einu, sem starfaði í Norðlendingafjórð- ungi, og um margra ára skeið verið unnið þar braut- ryðjendastarf í ýmsum tilraunum. Auk þess rak félag- ið kúabú í sambandi við tilraunastöðina, og jafnvel nokkra verzlun. Störf framkvæmdastjóra voru því býsna mörg og á ýmsan hátt sundurleit. Þar sem ann- ars vegar var leiðbeiningastarfsemi og annað, sem að búnaðarsambandinu laut, en hins vegar tilraunarekstur og bústjórn. LTm þessar mundir var Ræktunarfélagið í vanda 76 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.