Heima er bezt - 01.03.1960, Side 5

Heima er bezt - 01.03.1960, Side 5
statt. Styrjaldarárin fyrri, og kreppan, sem sigldi í kjöl- far þeirra, hafði komið hart niður á því, og þrengt mjög fjárhag þess. Framkvæmdastjóraskipti höfðu ver- ið tíð, og svo var komið eftir 1920, að félagið var stór- skuldugt, og tilraunastarfsemi þess, sem hófst á glæsi- legan hátt, hafði mjög dregizt saman og jafnvel lagzt niður á sumum sviðum sakir fjárskorts og tíðra manna- skipta. Tvískipting verkefnanna milli búnaðarsam- bandsins og tilraunastöðvarinnar dró hvað úr öðru, ekki sízt þegar við sífelldan fjárskort var að etja. Það var því á engan hátt glæsilegt aðkomu, er Olafur Jóns- son tók þar við störfum. Hans hafði þá verið beðið í heilt ár, því að hann var ráðinn framkvæmdastjóri meðan hann var enn að námi úti í Kaupmannahöfn. Mun það hafa verið mest að ráðum Páls Zophonias- sonar, sem var kennari Olafs á Hvanneyri og sá glöggt hvað í honum bjó, en Páll lét sér annt um hag Rækt- unarfélagsins og tók að sér nokkurn hluta fram- kvæmdastjórnar þess, ásamt skólastjórn á Hólum, árið sem beðið var eftir Olafi. Ráðning þessi, sem er býsna fágæt, sýndi ljósast, hvert traust menn höfðu á Ólafi þá þegar, ungum og óreyndum. Með komu Ólafs að tilraunastöð Ræktunarfélagsins hófst nýr og merkur kafli í sögu þess. En hann stjórn- aði tilraunastöð þess og búrekstri í 22 ár eða þangað til félagið seldi Tilraunaráði ríkisins stöðina og aðrar eign- ir sínar á leigu. Var Ólafur síðan um skeið tilrauna- stjóri hjá hinum nýju húsbændum, svo að alls stjórnaði hann þar framkvæmdum aldarfjórðung. Arið 1932 hætti Ræktunarfélagið starfsemi sem búnaðarsamband, svo að Ólafur fékk helgað tilraununum krafta sína í ríkara mæli en áður. Það fannst brátt, þegar Ólafur kom að tilraunastöð- inni, að þar var í senn duglegur bóndi og nákvæmur og vökull tilraunamaður. Búið óx jafnt og þétt, og jafn- framt réttist fjárhagur félagsins úr kútnum. Fram- kvæmdir í ræktun og húsabótum voru miklar, og lend- ur félagsins jukust ár frá ári. Tilraunirnar urðu sífellt fjölþættari og nutu góðs af batnandi fjárhag, en eink- um þó hugkvæmni, natni og elju tilraunastjórans. Og árangur sá er náðist, varð ekki dauður fróðleikur í skrifstofu félagsins, heldur gerði Ólafur grein fyrir honum jafnótt og nokkrar viðunandi niðurstöður feng- ust og var óþreytandi að breiða út búfræðilegan fróð- leik og sýna mönnum fram á hagnýtt gildi og nauðsyn tilraunanna. Það er og fullvíst að bændur í héraðinu og víðar fylgdust með, hvað þarna gerðist og drógu not af þeim lærdómum, sem Ólafur framreiddi. Hér er ekki unnt að rekja hina fjölþættu tilraunastarfsemi, sem rekin var í Gróðrarstöðinni í grasrækt, kornrækt og kartöflurækt, en af þeim bar grasræktina miklu hæst og var hún fjölþættust, enda árangur af henni mestur. Nokkur atriði er þó vert að benda á. Ólafur er meðal brautryðjenda í ræktun sáðsléttna, og hafa tilraunir hans vissulega átt drjúgan þátt í framgangi þeirrar ræktunaraðferðar og gert hana öruggari. Hann mun fyrstur manna hér á landi hafa gert kerfisbundnar til- raunir með belgjurtir og sýnt fram á gildi þeirra í Starfsfólk og nemendur í Gróðrarstöðinni d Akureyri 1025. Mdtjurtagarður í Gróðrarstöoinni á Akureyri. Búfjárraktarstöðin Lundur við Ahureyri. Kornskrýfi í Gróðrarstöðinni. Heima er bezt 77

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.