Heima er bezt - 01.03.1960, Side 6

Heima er bezt - 01.03.1960, Side 6
ræktun landsins, þótt menn hafi verið tregari til að hagnýta sér þá fræðslu en skyldi. Þá ræktaði hann með úrvali, kartöfluafbrigði, sem nefnt hefur verið Olafs- rauður, og mikilla vinsælda hefur notið. Margvíslegar voru tilraunir hans með áburð og sláttutíma. Það er kunnugt, að nú um langt skeið hafa eyfirzkir bændur byrjað túnaslátt fyrr á sumrin en flestir aðrir á land- inu. Mun það að verulegu leyti vera að rekja til áhrifa frá Olafi Jónssyni, og búskaparháttum hans í Gróðrar- stöðinni. Tilraunir Olafs eru unnar af vísindalegri nákvæmni og frá niðurstöðum þeirra er skýrt á Ijósan og greina- góðan hátt. Hitt fær þó ekki dulizt að öllu tilrauna- starfinu var það fjötur um fót, að fjármagn og vinnu- afl skorti, svo að tilraunastjórinn varð sjálfur að vinna flest handtökin við þær. En víst er um það, að með því starfi, sem Ólafur vann í Gróðrarstöðinni á Akur- eyri, var lagður merkilegur grundvöllur að íslenzkum búvísindum, sem lengi sér staðar, þótt tímarnir breytist og færi oss nýja tækni og nýjar aðferðir. Eftir að Búnaðarsamband Eyjafjarðar var stofnað var Ólafur kosinn formaður þess, og var hann það um margra ára skeið (22 ár) jafnframt framkvæmdastjórn Ræktunarfélagsins. Síðar gerðist hann ráðunautur Bún- aðarsambandsins um nokkur ár, þegar hann lét af starfi í Gróðrarstöðinni og nú nokkur síðustu árin hefur hann verið ráðunautur Sambands Nautgriparæktar- félaga Eyjafjarðar og veitir forstöðu afkvæmarannsókn- um og þeim tilraunum, sem þeim fylgja á vegum þess sambands. Þannig hefur Ólafur nú hálfan fjórða tug ára verið einn af forystumönnunum í tilrauna- og leið- beiningastarfsemi íslenzkra búvísinda, og þótt starfs- svið hans hafi aðallega verið við Eyjafjörð, hafa bænd- ur um land allt notið góðs af störfum hans, ekki sízt þegar þess er gætt, að margt af þeim hafa verið braut- ryðjendastörf. Þá átti Ólafur sæti á Búnaðarþingi um langt skeið (25 ár), og situr í stjórn Ræktunarfélags Norðurlands og fer með framkvæmdir þess. Bein afleiðing af starfi Ólafs sem tilraunastjóra og þáttur í starfi hans hjá Ræktunarfélagi Norðurlands er búnaðarfræðsla, bæði í ræðu og riti. Hann hefur verið ritstjóri Ársrits Ræktunarfélagsins síðan 1924 Birti hann þar tilraunaskýrslur sínar, auk yfirlitsgreina um tilraunirnar, og fjölda af vekjandi og fræðandi grein- um um málefni landbúnaðarins og sveitanna. Hefur hann í öll þessi ár skrifað bróðurpartinn af Ársritinu, og væri það ekki lítil bók, ef allt væri komið í eitt. Hitt er þó meira um vert, að margt er þar gagnmerkra rit- gerða, sem skipað hafa Ársritinu í virðulegan sess meðal búfræðirita vorra. Þá hefur hann verið ritstjóri hins handhæga leiðbeiningarrits Vasahandbókar bænda frá því hún hóf göngu sína 1951. Hefur Ólafur að vissu leyti skapað það rit og auk hinnar almennu fræðslu gert það skemmtilega fjölbreytt. Einnig hefur hann skrifað þætti úr jarðræktarfræði þeirri, sem kennd er við bændaskólana. Þá hefur hann og á seinni árum hald- ið uppi allmikilli fyrirlestrastarfsemi á vegum Ræktun- Sérkennileg hraunstrjta vestur af Herðubreið. Ótafur og Stefán Gunnbjörn Egilsson. í fultum skrúða. 78 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.