Heima er bezt - 01.03.1960, Page 17

Heima er bezt - 01.03.1960, Page 17
HALLDOR ARMANNSSON: DUGA EÐA DREPAST r Arni er fæddur í Húsavík við Borgarfjörð eystra 3. ágúst árið 1892. Foreldrar hans voru Éinar i Árnason frá Skuggahlíð og kona hans, Guð- finna Aradóttir frá Sandvík í Norðfirði. Ekki er mér kunnugt um, hvað þessi hjón hafa átt lengi heima í Húsavík, en árið 1896 eru þau til heimilis í Breiðuvík við Borgarfjörð, og það ár deyr Einar. Stóð nú ekkja hans uppi ein og blásnauð með 3 ung börn og átti fárra kosta völ. Varð það því hlutskipti Árna, þótt ungur væri, að eins 4 ára gamall, að skiljast við móður sína og fara til vandalausra. Urðu þá hans fyrstu vista- skipti, að honum var komið í fóstur að Húsavík til hjónanna Sigurðar Árnasonar og Sunnefu, konu hans. Mun honum hafa liðið þar vel, og dvaldist hann hjá þeim í tvö ár. Var þá móðir Árna farin að búa á Hóls- húsum í Húsavík með hálfbróður sínum, Bjarna Jóns- syni. Tók hún þá drenginn aftur til sín, og var hann þar með móður sinni árið. Fluttust þau þá á Glettinga- nes og höfðu Árna með sér þangað. Er þau höfðu ver- ið þar tæpt ár, var Árni litli búinn að fá skyrbjúg og orðinn mesti vesalingur. Var nú ekki gott í efni, eins og komið var, samt var ráð fundið, og það var að koma baminu fyrir hjá hjónunum á Gilsárvöllum, Jóni Stef- ánssyni og Stefaníu Olafsdóttur. Voru þau beðin að lækna Árna af skyrbjúgnum. Hjá þeim hjónum var löngum hæli fyrir einhverja þá, sem voru vanheilir á sál eða líkama. Eftir rúmlega árs dvöl á Gilsárvöllum fór Árni litli, hraustur og pattaralegur, að Litluvík til Páls Geirmundssonar og Guðfinnu, konu hans. Ekki var hann hjá þeim nema árið og fór þá að Klyppsstað í Loðmundarfirði til hjónanna Stígs og Magneu, en frá þeim eftir eins árs dvöl að Sævarenda til Finns Einarssonar. Helzt er útlit fyrir, að fólkið hafi ekki þótzt hafa mikil not af drengsa, því að eftir árið á Sævarenda fer Árni í burtu þaðan og nú að Selhellum í Mjóafirði, en þar ílentist hann í 6 ár hjá Magnúsi nokkmm Árna- syni. Líldegt er, að Magnúsi hafi því fundizt vera hægt að hafa einhver not af Árna, og svo er nú komið, að Árni hefur unnið sig það upp í áliti, að nú ræður Sig- urður á Höfðabrekku hann fyrir ráðsmann til sín, og er hann hjá honum eitt ár. Næst þegar Árni breytir til, fer hann á Norðfjörð og gerir þar út bát í tvö sumur og hefur móður sína fyrir ráðskonu. Einn vetur er hann á vertíð í Vest- mannaeyjum, en næsta vor fer Árni að búa á Kolablesa- eyri í Mjóafirði með móður sinni og vinnur eitthvað um sumarið á hvalastöð hjá Ellefsen. Það er svo að sjá, að Árni hafi haft löngun til að nálgast aftur æskustöðvar sínar, þótt hann væri þar löngum á hrakningi, því að vorið 1915, eftir eins árs búsetu á Kolablesaeyri, flytur hann byggð sína að Nes- hjáleigu (nú Sléttu) í Loðmundarfirði og fer að búa þar. Þegar hér er komið sögu, er Árni 23 ára og hefur tekið út fullan þroska. Samt er hann hvorki hár í lofti né mikill utan um sig, en hann er harðger, hraustur og frískur, framúrskarandi duglegur, ókvalráður og áhuga- mikill um allt bjargræði sér og heimili sínu til fram- dráttar. Vorið 1917 réð Árni til sín fyrir ráðskonu Þórdísi Hannesdóttur, ættaða af Héraði. Ekki höfðu þau lengi verið samvistum, er þau felldu hugi saman, og svo létu þau pússa sig saman — eins og sumir orðuðu það, þeg- ar persónur létu prest smeygja á sig hjónabandshnapp- heldunni. Sumarið 1918 fæddist fyrsti sonur þeirra. Ekki þótti hallast mikið á með þessum ungu hjónum um dugnaðinn, og mun Þórdís ekki hafa látið sér smá- muni fyrir brjósti brenna. Má það nokuð marka af því, að eitt sinn, er bóndi hennar var ekki heima, óð hún upp undir hendur út í sjóinn við að bjarga fé þeirra úr flæðihættu. Nú liðu ár og dagar, og höfðu þau hjón, Þórdís og Árni, eignazt 4 börn. Drengur um fermingu var á vist með þeim og mæður hjónanna beggja. Til framfærslu handa þessu 9 manna heimili áttu þau 70 kindur, 2 kýr og 1 hest. Vegna þess að Árni gat ekki fjölgað kindunum meira, þurfti hann árlega að selja 30 hesta af töðu, en það verð, sem fékkst fyrir töðuna gerði lítið meira en hrökkva til að greiða með landskuldina eftir kotið. Miklar sjávarhættur eru fyrir fé í Neshjáleigu, þótti líka Árna á stundum sjósi verða fingralangur í kindur sínar. Auk þess dæmdu Álftavíkurflug sér á stundum talsverðan skatt af því fé, sem þau gátu lokkað til sín. Af framansögðu er auðsætt, að afurðir búsins hafa ekki getað hrokkið fyrir þörfum heimilisins, enda sleppti Árni ekki tækifærum, ef þau buðust, og bjarg- ar var von með öðru móti. Hann fór oft póstferðir á milli Seyðisfjarðar og Borgarfjarðar og var þá á stund- um ekki nema sólarhring í ferðinni. Þó flestir aðrir þyrftu 2 daga og jafnvel meira. Árni reri líka til fiskj- ar, einkum fyrri hluta sumars, þegar fiskur var, fram að slætti og fram á slátt. Þá var Árni skytta og oft fengsæll með byssuna. Stundum skaut hann sel, en ekki telur hann það hafa verið oft, og einu sinni náði hann rostungi. Er sú saga af því, að Guðfinna, móðir Árna, hafði verið að raka slægju þar niðri á sjávarbakkanum. Sá hún þá skepnu Heima er bezt 89

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.