Heima er bezt - 01.03.1960, Síða 18

Heima er bezt - 01.03.1960, Síða 18
eina mikla liggjandi uppi á flúð þar undan landinu. Hugði hún þetta vera sel og sagði Arna til. Arni hafði þá enga byssu tiltæka, en greip járnkarl, sem hann átti, og hugðist rota selsa með honum. Er hann nálgaðist skepnuna, reis hún upp á afturendann og ætlaði auð- sjáanlega að verða fyrri til — þar sem hún var sæmilega vopnum búin — og höggva þetta áleitna mannkríli bana- högg, fyrir dirfskuna að láta sér detta í hug, að ætla að fara að glettast til við sig, langt að kominn ferðalang norðan úr Dumbshafi. Sá nú Árni, að þetta var ekki selur, heldur var hér rostungur á ferðinni, og að lítið mundi tjóa, þótt hann vildi hafa eitthvað gott af hon- um, að vera að heilsa upp á hann með járnkarlspinna í hendinni. Árni var nú kominn í fullkominn vígahug og vék sér fimlega undan tilræði skepnunnar. Datt honum nú í hug, að á næsta bæ, Nesi, var til byssa. Hljóp nú Árni sem mest hann mátti fram að Nesi. Þar átti heima mað- ur að nafni Hallgrímur. Hann átti framhlaðning, lík- lega eina þessa gömlu dátabyssu, en þær voru bæði lang- drægar og skotharðar og þoldu þótt látið væri í þær vænt skot. Beiddist nú Arni liðveizlu Hallgríms við að vinna rostunginn, og var það auðsótt mál. Lögðu þeir nú tveir að honum með vel þverhandar skot í byssunni, og renndi Árni ofan í hlaupið líka járntolla úr báts- ræði, sem hann var með í vasa sínum. Komust þeir í gott færi, og skaut Hallgrímur rostunginn í hausinn, og lá hann nú þarna í blóði sínu á flúðinni. Hafði tollinn smogið gegnum hausinn og aftur í banakringluna og fannst þar. Árni átti stóran hvalhníf frá því að hann var á hvalstöðinni hjá Ellefsen. Kom hann nú í góðar þarf- ir við að slátra skepnunni, og fengu þeir þarna fullan bát af kjöti og spiki. Rostungshúðina seldi Ámi, og þótti hún seigt gönguskinn. Tennurnar átti hann í nokkur ár, en seldi þær á endanum fyrir 15 kr. Rjúpur og sjófugia skaut Árni líka. Frá einni þeirri veiðiför ætla ég að segja hér. Það var haustið 1926. Veðrið var gott, blíðalogn og sjórinn rjómasléttur. Bára sást ekki á firðinum, en að- eins lýsa yzt úti við tangann, grá mugga var í lofti. Áma sýnist að í dag muni verða gott til fanga, því að svartfugl var allmikill á Loðmundarfirði, og ef hann yrði heppinn með byssunni í dag, þá slægi hann tvær flugur í sama höggi: spikfeitur svartfuglinn var engin fantafæða, og gott var að hafa fiðrið í sængur ofan á krakkana. Árni bjóst nú af stað í skyndi með byssu sína og nóg skot. Þórdís, kona hans, gekk með honum ofan í fjöruna og hratt á flot með honum skektu, sem hann átti. Bað hún hann vel fara og heilan heim koma. Reri Árni nú fyrst inn með landi og svo suður með sandin- um og út með suðurlandinu út á móts við Tó, utan við Hjálmarsströnd. Hafði hann þá skotið nokkra fugla, en þarna var svartfuglabreiða. Sýndist nú Áma bera þarna vel í veiði, þreif til byssunnar, spennti bóginn og lagði hana að vanga sínum til að sikta. Lítilsháttar snjóél var nýafstaðið og byssuhlaupið loðið af drífunni, svo að skyggði á siktið. Lét nú Árni byssuna síga niður aftur, en strauk um leið með vinstri hendi snjófölið fram af hlaupinu. I sama vetfangi hljóp skotið úr byssunni og tók af tvo fingur vinstri handar, vísifingur og löngu- töng. Fór annar fingurinn alveg af með skotinu, en hinn hékk við á skinnpjötlu. Hélt Árni, að um leið og hann strauk snjóinn framan af hlaupinu, mundu föt sín hafa strokizt við byssuna og snert gikkinn, en byssan var laus í spani. Ekki segir Árni, að nein æðra eða ótti hafi komið að sér, er þetta vildi til, heldur hafi hann verið algjörlega rólegur og getað athugað aðstöðu sína. Þegar skotið tók fingurna af, líkir Árni helzt við snögga óþægilega snertingu, og ekki hafi hann fundið neitt mikið til í fyrstu, ekki heldur blætt neitt ákaft úr skotsárinu £ bili. Vafði hann samt um hendina vasaklút, sem hann var með, til að draga úr eymslunum. Varð nú að duga eða drepast, þar sem hann var einn á báti langt út og suður á firði, var ekki um annað að velja en reyna að róa í land. Settist nú Árni undir árar, en ekki vildi hann fara heim til sín svona til reika, heldur tók stefnu í Gerðisfjöru á milli Ness og Seljamýrar. Þegar ÁrnL fór að róa, fór strax að blæða meira úr skotsárinu. Gat hann þá með einhverjum ráðum rifið eða slitið fóðrið undan jakkanum, sem hann var í, og vafið því utan um líka; um aðrar umbúðir var ekki að ræða, eins og á stóð. Þreytti nú Árni róðurinn og eftir á að gizka hálftíma kenndi skektan grunns við fjöruna. Hljóp Árni þá upp í flæðarmálið og gat dregið eða endabor- ið skektuna um lengd sína upp í fjöru, — en byssuna lagði hann frá sér þar eitthvað lengra frá sjó. Voru nú föt Árna, einkum buxumar vinstra megin, orðin illa verkuð af blóði. Flýtti Árni sér heim að Seljamýri og lýsti áverkanum á hendur sér. Björg ljós- móðir Isaksdóttir átti þá heima á Seljamýri. Tók hún umbúðir Árna frá hendinni og bjó um aftur, eftir því sem hún hafði föng til, en Sigurður, sonur hennar, (Sig- urður Jónsson, nú brúarsmiður á Borgarfirði) átti trillubát á floti við fjöruna. Hafði hann nú hraðar hend- ur að koma vélinni í gang, klæddi Árna í þykkan yfir- frakka og lagði strax af stað með hann til Seyðisfjarð- ar, og skilaði vel áfram. Árni sat á þóftu alla leiðina suður, og segir Sigurður, að ekki hafi orðið vart við að hann kveinkaði sér neitt á leiðinni. Þegar suður kom, var Árni samstundis tekinn inn á spítala og gert að sámm hans. Svolitlir stubbar voru eftir af fingrunum eða frá efsta liðnum. Þá tók Egill læknir af upp við lófann. Var það gert í samráði við Árna. Álitu þeir það miklu betra fyrir Árna, þar sem hætt var við að þeir yrðu sí og æ til óþæginda við flest störf. I sjúkrahúsinu var Árni í 9 daga og 2 daga hjá kunningja sínum í bænum. Á meðan Árni var á spítalanum, kom til hans hinn gamli húsbóndi hans úr Mjóafirði, — sá sem hann var lengst hjá. Fór hann að spyrja um líðanina, hvemig hún væri, og svo hvort Árni gæti nú staðið undir þeim kostnaði, sem leiddi af dvöl hans í sjúkrahúsinu. Um leið og hann kvaddi Árna, fékk hann honum þá pen- inga, sem hann var með á sér; það voru 135 kr. Voru 90 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.