Heima er bezt - 01.03.1960, Síða 36

Heima er bezt - 01.03.1960, Síða 36
396. Frú Thomson opnar fyrir lög- regluþjónunum. Ég skýri þeim frá, hvers ég hafi orðið var. Skömmu síðar eru þeir önnum kafnir við að leita eftir væntan- legum förum eftir „vofuna“. 397. Það leið ekki á löngu, þar til þeir fundu greinileg spor, þaðan sem draug- urinn hrapaði niður, eftir nýrökuðum gangstígnum og út á vel sprottna gras- vellina í garðinum. 398. Þar hurfu sporin algerlega, svo að lögregluþjónarnir gátu alls ekki rakið þau lengra. Þá býð ég þeim, að ég skuli nota Mikka sem sporhund. Þessu verða þeir ákaflega fegnir... 399. Lögreglumennirnir skora nú á mig að fara með Mikka þangað, sem fyrstu sýnilegu sporin fundust, og láta hann þefa þar rækilega af þeim áður en sjálf leitin hefst. Ég geri þetta auðvitað, og Mikki er þegar allur á lofti af ákafa. 400. Það líður ekki á löngu, unz Mikki hefur þefað uppi ósýnilegu sporin. Nú geltir hann af ákafa, og ég verð að hafa mig allan við að fylgjast með honum. Og lögreglumennirnir eru alveg á hæl- unum á okkur. 401. Leið okkar liggur þvert yfir garð- inn og út um lítið hlið og síðan út á ber- svæði. Mikki heldur áfram og upp eftir löngum tröðum. Hinum megin við þær voru margir kofar og gömul hússkrifli. Mikki stefnir að einu þeirra. 402. Mikki þefar sig inn um gamalt og hrörlegt hlið og nemur urrandi staðar fyrir framan stórt og fornfálegt hús með traustri hurð fyrir dyrum. Og þar geltir hann grimmdarlega og krafsar síðan í hurðina. 403. Skyldi það þá vera hérna, sem draugurinn heldur til? Erum við þá ef til vill komnir á leiðarenda? Annar lög- reglumaðurinn ber hart á hurðina. En enginn kemur til að opna. Allt er hljótt fyrir innan. 404. Allt í einu rífur Mikki sig lausan og þýtur fyrir húshornið og geltir af mestu grimmd. Við flýtum okkur á eftir honum og sjáum þá einhverja manns- mynd stökkva út um glugga á bakhlið hússins og taka síðan til fótanna...

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.