Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 2
Kennarar og í júnímánuði síðastliðnum voru ýmsir fundir kenn- ara haldnir. í umræðum þar kom skýrt í ljós, að all- verulega ber á því, að skortur sé hæfra kennara á nær öllum skólastigum, og fer sá skortur vaxandi. Ein af þeim orsökum sem augljósust reynist, er sú, að hlutur kennara í launamálum er allmjög fyrir borð borinn til jafns við ýmsar aðrar stéttir þjóðfélagsins. Af kennur- um er almennt krafizt verulegs undirbúnings undir starf sitt, en það launað verr en mörg önnur störf, sem einskis eða sáralítils undirbúnings er krafizt til. Þessari staðreynd verður ekki fram hjá komizt. Hér er þó ekki ætlunin að gera launakjör kennara að umtalsefni. Til þess er annar vettvangur hentari. En hitt vildi ég ræða lítilsháttar, hvað valda kann kennara- skortinum annað en léleg launakjör. Það er að vísu rétt, að tiltölulega er létt í þjóðfélagi voru að afla sömu og betri launa við léttari og ábyrgðarminni störf en kennsla er, og þar sem einnig nokkra sérgáfu þarf til þess að vera kennari, þá er ekki að undra þótt skort- ur verði á mönnum til starfans, þegar jafnframt sakir fólksfjölgunar er sífellt þörf á fleiri kennurum. En kennaraskorturinn er vandamál, sem hver og einn verð- ur að láta sig nokkru skipta, því að í sjálfu sér er voði fyrir dyrum í menningarmálum vorum, ef mjög þarf að leita til manna, sem skortir bæði tilskilda menntun og hæfni til þess að sinna kennslustörfum. Framleiðsla og meiri framleiðsla er vígorð nútímans. Verður því eigi neitað, að framleiðslan er sú stoð, sem ber þjóðfélagið uppi. En á sama tíma skulum vér minn- ast þess, að ekkert þjóðfélag fær staðizt til lengdar, þótt nægilegs sé aflað, ef það samtímis skortir menntun og menningu. Meira að segja er svo komið í nútímaþjóð- félagi, að framleiðslan, hvort heldur til lands eða sjáv- ar, er beinlínis að þakka menntun og menningu hverr- ar þjóðar. En skólamir eru þau tæki þjóðfélagsins, sem veita unglingunum þann þekkingargrundvöll, sem þeir leggja með út í lífið. I öllum þjóðfélögum nútímans verður hlutverk skólanna sífellt meira og víðtækara. Þeir taka í sínar hendur sífelt meiri hluta af þjóðar- uppeldinu allt eftir því sem starfaskiptingin eykst, heimilin verða fámennari og hafa minni tök á að sinna börnunum. Þetta er ekki íslenzkt fyrirbæri heldur al- þjóðlegt, þótt vér finnum ef til vill meira til þess en aðrir vegna þess hve skólar vorir eru ungir, og skammt síðan, að öll fræðsla unglinga fór fram á heimilunum að kalla mátti. Nútíma þóðfélag er slungið saman úr mörgum þáttum ólíkum að efni og haldi, en öllum er það sameiginlegt, að ef einn þeirra bilar, þá er voði á ferðum. Einn þjóðfélagsþátturinn er skólakerfið, og hvort sem menn vilja viðurkenna það eða ekki, þá er vafasamt að meira ríði á, að nokkur þáttur þjóðfélags- ins sé traustur en einmitt það. Ég óttast, að menn geri sér þetta ekki almennt Ijóst. Margt er talað um skóla og skólakerfi meðal almenn- ings en alltof oft af minna skilningi en vænta mætti í menningarþjóðfélagi. Mönnum er tamt að líta á gall- ana, og dæma kerfið og starfið eftir þeim einum. Menn virðast jafnvel haldnir þeirri hugsun, að skólar séu ein- ungis nauðsynlegt böl, sem bezt væri að vera án, og um leið sé kennarastéttin lítt þörf í þjóðfélaginu. Það er grunur minn, að þetta neikvæða viðhorf almennings gagnvart skólunum eigi nokkurn þátt í, hversu menn eru tregir til að taka að sér kennslustörf, og hve margt gengur miður en skyldi í skólamálum vorum. Það er mikið talað um námsleiða unglinga; og skólunum um kennt, með fráleitu fyrirkomulagi, of löngu skyldu- námi o. s. frv. Vafalaust eiga skólarnir þar nokkra sök, en hefur þeim góðu mönnum, sem sífellt eru að ræða um þennan námsleiða ekki dottið í hug að þeir eigi einhvern þátt í því sjálfir að skapa hann. Að minnsta kosti er það naumast ráðið til að vekja áhuga unglinga á skólastarfinu, ef þeir heyra sífellt á því klifað heima fyrir og í blöðum og opinberum vettvangi, að skólarn- ir kenni þeim fátt, sem gagn sé í, og skólaskylda sé alltof löng og til ills eins. Ég held að vel færi á því að menn gerðu sér þetta Ijóst, og legðu að einhverju leyti niður hina sífelldu neikvæðu gagnrýni. En hverfum aftur að kennurunum. Flestum mönn- um er svo farið, að fátt gleður þá meira en góður ár- angur starfs þeirra, og að þeir finni að erfiði þeirra sé metið að verðleikum. Kennsla er flestum andlegum störfum meira þreytandi, en hún felur í sér þau laun, sem flestum eru betri, þegar kennarinn finnur árangur starfs síns í auknum þroska og þekkingu nemandans. En jafnvel sú ánægja getur orðið blandin beiskju, þeg- ar kennarinn finnur utan að sér, hvemig starf hans og skólanna er metið, og að jafnvel sumir leyfa sér að líta svo á, að skólar séu eins konar sníkjuvextir á þjóðlíkam- 254 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.