Heima er bezt - 01.08.1960, Page 9

Heima er bezt - 01.08.1960, Page 9
komið mér að mcstu gagni um æfina. Helzt mundi ég nefna íslenzku og stærðfræði. Reikning þurftu allir eitt- hvað að nota, og þá helzt hinn almenna, einfalda, sem hvert barn lærir nú undir fermingu. Þó hafa margir bændur gagn af að kunna eitthvað í flatar- og rúmmáls- fræði. Af íslenzku hef ég jafnan haft hina mestu ánægju, enda mun hún og sæmileg til þroskunar, en líklega síð- ur til hagsmuna. 3. Eigi synja ég þess, að ég hafi eigi álitið að betur hefði mátt verja skólatíma á Möðruvöllum en gert var, og gert mun enn á Akureyri. Fyrst vil ég benda á það, að betra væri að sleppa ein- hverju af hinum margbrotna reikningi, sem nú er kenndur, en kenna hagnýtan reikning í staðinn, svo sem bókhald og rúmmálsfræði. Bókhald, eða einföldustu að- ferðir við það, þarf hver maður að kunna á þessari mildu viðskiptaöld. í öðru lagi hefði gagnfræðaskólinn norðlenzki frá upphafi átt að kenna smíðar, og helzt gefa kost á til- sögn í sem flestum iðngreinum. í staðinn mætti sleppa hverju sem bezt gegnir af bóklegu, nema móðurmáli. Alöðruvallaskóli hafði ekki eins mikla þörf fyrir þessa kennslu, eins og Akureyrarskóli. Fram undir aldamót voru smíðar kenndar á heimilunum sumum. Eða með öðrum orðum, fjölda margir bændur voru búhagir. Nú fer þeim óðum fækkandi. Því þurfa skólarnir að taka að sér þessa kennslu eins og hina bóklegu. Með ári hverju eykst notkun aðkeypts skófatnaðar. Húsföður er hin mesta nauðsyn að læra að sóla skó handa heimil- isfólki sínu sjálfur. Eg álít, að meiri nauðsyn hafi borið til að bæta verklega námið í Akureyrarskóla, en að láta hann leggja allt kapp á að unga út stúdentum. Um þetta atriði mætti margt skrifa, en hér er ekki vettvangur til þess að fara lengra út í það. í þriðja lagi tel ég að betur hefði verið varið ein- hverjum tíma í fyrirlestra til vakningar og víkkunar á sjónarsviði nemenda yfir hin ýmsu fyrirbæri lífsins og hugsjónanna í heiminum. Þó var líklega slæmt að sleppa miklu úr af því litla, sem kennt var. Þá hefði verið nauðsynlegt að bæta einum vetri við á Möðruvöllum, og kenna þá mest í fyrirlestrum. Námstími þess vetrar mátti þá gjarnan vera eitthvað styttri. Þann vetur hefðu menn átt að komast að raun um, að það sem lært var á hinum tveimur, var harla lítið, en það mun jafnan hafa brunnið við, að vér litum stórt á þekkingu vora, að náminu loknu. 4. Fyrra lið þessarar spurningar er mér óhægt um að svara. Þó finnst mér að frelsi muni mjög hafa einkennt skólavist og skólabrag á Möðruvöllum, og haft margt gott í för með sér. Aðfinningar og ögun var mjög sjald- gæf, nema þá helzt hjá Halldóri Briem, og það tóku menn ekki nærri sér. Þó fór allt mjög skikkanlega fram, og stjómaðist eins og af sjálfu sér, enda mun það hafa hjálpað til, hve staðurinn var út af fyrir sig. Hins dylst ég ekki, að mörgu var ábótavant í að- búð nemenda hvað húsrúm og þrifnað snerti. Nú á dögum mundi það eigi þykja boðlegt að hafa engan hrákadall og ekkert næturgagn í heimavistarskóla, eða leggja aldrei í ofna á svefnloftum, þótt fleiri stiga kuldi sé inni í þeim, og þvo gólfin aðeins einu sinni í viku. Samt sem áður var heilsufar fremur gott í minni tíð, og talsvert betra en nú gerist í heimavistarskólanum á Eiðum, sem mér er helzt kunnur af slíkum skólum. Þrátt fyrir allt sem mér hefur þótt ábótavant, og minnzt hefur verið á hér að framan, hafa komið frá Möðruvallaskóla margir nýtir menn, sem staðið hafa framarlega í fylkingum. Það er ósk mín, að svo megi jafnan segja um nemendur gagnfræðaskólans norð- lenzka. Skógargerði 10. okt. 1929. Gísli Helgason. VIÐAUKI. Eins og greinarhöfundur getur um, sendi hann Sigurði skóla- meistara svör við ýmsum spurningum um Möðruvallaskólann og vistina þar, þegar Sigurður hóf að safna efni til ritsins Norðlenzki skólinn. Sumt úr svörum þessum er tekið upp í ritið, en meira þó úr öðru bréfi Gísla Helgasonar, sem nú er glatað, en þar rekur hann sýnilega nokkuð af þeim sömu minningum, sem skráðar eru í grein þeirri, sem hér birtist. Áður en greinarhöf. færi frá Akureyri sl. vetur, ræddi hann um, að rétt væri að taka að minnsta kosti nokkuð úr svörunum upp í grein þessa. Við lestur þeirra virtist mér réttast að taka svörin upp sem heild, því að þau sýna mjög skýrt viðhorf gamals Möðru- vellings til skóla síns, þegar hann lítur yfir farinn veg. Eru svörin hér því óbreytt með öllu. Þess skal getið, að spurningar Sigurðar voru ekki fyrir hendi, en sjá má af svörunum um hvað þær hafa hljóðað, þótt ekki séu þær orðrétt hermdar. í „Norðurlandi", sem út kom 29. marz eða réttri viku eftir brun- ann, er mjög ítarleg grein um þessa atburði eftir ólaf Daviðsson. Ber henni i öllu verulegu saman við minningar Gísla, og sýnir Ijóslega, hversu minni hans er trútt. í sambandi við vökumenn- ina segir ólafur, að fyrstu nóttina eftir brunann hafi fjórir menn vakað en tveir þá næstu. Um upptök eldsins segir ólafur: „að enginn vafi sé á, að hann hafi komið upp á efsta lofti skólans, hanabjálkalofti, telja má víst, að kviknað hafi í sóti í ofnpípu eða ofnpípa hafi bilað." Um ráðstafanir eftir brunann segir Ólafur frá því, að á sunnu- daginn hafi þeir komið að Möðruvöllum Páll Briem amtmaður og Stephan Stephensen, sem var settur sýslumaður. Hélt Stephen- sen réttarhald um brunann, en þeir amtmaður og Stefán kennari urðu í sameiningu ásáttir um þær ráðstafanir, sem getur í grein Gísla um próf og hversu búið skyldi um pilta. En þá bætir Ólafur við: „Til þess að breytingum þessum verði framgengt þarf smiði og smíðatól innan af Akureyri, en ekki eru nein efni til, að þeir komist út eftir i veðri því, sem nú er, þótt frost sé talsvert minna en verið hefur." Samkv. veðurskýrslu frá Möðruvöllum linar veðrið ekki að ráði fyrr en á miðvikudag, og er sennilegt, að bréfið sé skrifað þá. Þegar þessa er gætt, virðist skiljanleg sú bið, sem varð á því, að tekið væri að laga til lestrarherbergin, og þó einkum, að Stefán kennari skyldi ekki tilkynna piltitm það. Sennilegast er, að amtmaður hafi reynt að útvega smiðina, en þeir ekki treyst sér til að koma út eftir fyrr en veður batnaði, en Stefáni verið ókunnugt um hvað drættinum olli. I grein sinni minnist Gísli nokkrum sinnurn á veðurhörkurnar, sem voru um þessar mundir, og er þar ekki ofsögum sagt. Svo Frarnhald á bls. 263. Heima er bezt 261

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.