Heima er bezt - 01.08.1960, Síða 10

Heima er bezt - 01.08.1960, Síða 10
HÓLMGEIR ÞORSTEINSSON: FEIGÐARBOÐl Sumarið 1887 var að kveðja. Langdegið, sem í sumar hafði breitt faðm sinn, víðan °g hlýjan, móti öllu, sem lífsanda dró og hallaði ekld einu sinni að sér um lágnættið um langan tíma, var nú óðum að styttast. Það var að búa sig undir að kveðja og hjúfra sig inn í kalda og dökka úlpu skammdegis- ins. En það ætlaði um leið að heita því, að það skyldi ekki verða nema í bili, það skyldi koma aftur. Baráttu- hugurinn svall Iangdeginu í brjósti. Grösin, sem ósleg- in og óbitin voru, tóku að sölna, og elftingin, sem í sumar hafði hreykt sér með miklu yfirlæti á þúfnakoll- unum í mýrinni, og þóttist vera „rnaður með mönn- um“, varð skelfingu lostin við frostið í fyrrinótt. Hún sá þann kost vænstan fyrir sig að heykjast niður og kveðja, en fól um leið frjómagni jarðar að geyma fyrir sig rótina í vetur til nýs lífs á næsta vori. Lóurnar voru að hópa sig og æfa flugið til langferðar. Þær voru að kveðja sumarbyggð sína þar, sem þær höfðu fengið uppfylling sinna dýrlegustu drauma, urn framlenging lífsins með tilkomu litlu lóu-unganna. Nú voru þær og börnin þeirra að kveðja, því þær ætluðu sér að bíða í hlýrra landi í vetur, í þögulli von um sól og birtu á næsta vori. Þær skyldu svo sannarlega koma aftur. Og kveðjusöngur þeirra hljómaði um allan dalinn. Alönnunum komu þessar kveðjur ekki svo mjög á óvænt. Það fylgdi þeim að vísu nokkur söknuður, en þeir hugguðu sig við það, að ef þeim tækist að þrauka af í vetur, mundu þeir sjá alt þetta, sem kvaddi, koma aftur í vor. Sárara var að kveðja ástvin og heimilisfor- sjá hinztu kveðju, því að þess gat engin von verið, að hann kæmi aftur í vor, þó dagurinn lengdist og lóurn- ar kvökuðu. Um þessar mundir var tvíbýli í Ytra-Dalsgerði í Saurbæjarhreppi. A öðrum helmingi jarðarinnar bjuggu Þorsteinn Pálsson og' Kristjana Einarsdóttir, en á hin- um Jón Jósúason og Guðrún Oddsdóttir. Sambýlið var hið bezta, og bar þar aldrei skugga á. Jón Jósúason var atorkumaður, þrekmikill og harðger og afburða heyskaparmaður. Guðrún Oddsdóttir var hæglát og greind kona. Oddur faðir hennar var bróðir Bergs á Rauðalæk, föður Stefáns á Þverá í Öxnadal. Móðir Jóns Jósúasonar var Guðný Guðmundsdóttir, bónda í Torfum, Magnússonar. Kona Guðmundar í Torfum, og móðir Guðnýjar, var Guðný Guðmundsdóttir, bónda á Krónustöðum í Eyjafirði, Jónssonar, prests í Vogunt við Mývatn. Bróðir Guðmundar á Krónustöð- unt var Benedikt Jónsson Gröndal, yfirdómari. Dóttir hans var Helga, kona Sveinbjöms rektors Egilssonar, en þau voru foreldrar Benedikts Gröndals skálds. í heimili Jóns Jósúasonar var, auk þeirra hjóna, þrjú börn þeirra ung, Guðný móðir Jóns, háöldruð, og seinni maður hennar, garnall og fatlaður. Jón var því mikið til einn við heyskapinn, nema hvað kona hans gat við og við skotizt út að raka, þegar hún hafði stund frá börnunum og öðrum inniverkum. Jón var venju- lega við slátt á morgnana og fyrrihluta dagsins, en rak- aði slægjuna seinnipartinn. Hann lét smíða sér hrífu með þriðjungi lengri haus en venjulegt var og að sama skapi sterkan. Með þessu áhaldi var hann fljótur að koma heyinu í flekki. Það var sunnudaginn í 22. viku sumars, 18. september 1887. Jón hafði að mestu lokið slætti, átti aðeins eftir að slá dálítið móhorn niður í Nesi, sem hann ætlaði að Ijúka næsta þriðjudag. Dálítill slægjublettur var órak- aður niður í mýri, sem hann hafði losað af á laugar- daginn, og ekki unnizt tími til að ljúka. Degi var tekið að halla, en morguninn eftir átti að fara í fyrstu göng- urnar, eins og venjulega í Eyjafirði mánudaginn í 22. vikunni. Húmið var að færast yfir og dagurinn að kveðja. Hjónin í Ytra-Dalsgerði höfðu kveikt ljóstýru, í fyrsta sinn á þessu hausti, því það var siður víða í sveitinni að kveikja ekki ljós á haustin fyrr en sunnu- dagskvöldið fyrir göngur. Jón var að búa sig út í göng- ur næsta morgun fram á Djúpadal. Hann var búinn að hýsa gangnahestinn og taka til reiðtýgi. Inni var Guð- rún kona hans að taka til föt hans og gangnaplögg og láta niður í nestispokann. Af stað átti að fara í rnyrkr- inu um nóttina, eigi síðar en klukkan fjögur. Svo var undirbúningnum lokið, og hjónin gátu gengið til náða, þreytt eftir margvíslegar annir dagsins, en sæl í með- vitundinni um að eiga hvort annað heilbrigð og lífs- glöð með barnahópinn sinn. Mánudagsmorguninn 19. september var bjartur, en á norðvesturloftinu hrönnuðu si<>' klósigar, sem bentu til norðvestan storms er á daginn liði. Nokkur héla var á jörð. Þegar fullbjart var orðið, hófu gangnamenn smölun fram í botni Djúpadals og smöluðu heim eftir dalnum. Þegar heimarlega kom, lenti Jón í illvígu kasti við ljónstygga forustuá með tveimur lömbum. Varð úr því eltingarleikur mikill og mátti lengi ekki á milli sjá hvor betur mætti. Lagði Jón sig þá allan fram og svo fór að lokum, að Fora varð að láta undan. Var þá 262 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.