Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.1960, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.08.1960, Qupperneq 11
Jón orðinn móður og ákaflega sveittur. Þegar sntölun var lokið, lögðu gangnamenn af stað með safnið áleiðis til skilaréttar. Var þá kominn kaldur norðvestan storm- ur allhvass, sem þeir höfðu í fangið. Setti þá hroll mik- inn að Jóni með höfuðverk og vanlíðan, er ágerðist því meir, er á daginn leið. En nú víkur sögunni aftur heim í Ytra-Dalsgerði. Þegar Guðrún Oddsdóttir hafði lokið nauðsynleg- ustu inniverkum, tók hún hrífu sína og fór niður í mýri til að raka ljána, sem eftir var frá því á laugardaginn. Landslagi þarna hagar svo til, að slægjan, sem Guðrún var að raka í mýrinni, var vestan við svonefndan Nes- hól, en austan hans, og í hvarfi frá Guðrúnu, var mó- hom það, sem Jón átti óslegið, en hafði lagt kapp á að ljúka sem fyrst. Degi var tekið að halla og komið að nóni. Keppist nú Guðrún við raksturinn, því hana lang- aði til að ljúka slægjunni fyrir kvöldið, og áður en bóndi hennar kæmi heim úr göngunum. En þegar hún er sem áköfust við raksturinn heyrir hún söng álengd- ar. Leggur hún nú hlustir við og heyrist söngurinn vera austan við Neshólinn. Heyrir hún að sungið er fyrsta versið í sálminum Allt eins og blónmtrið eina, og nemur hún glöggt orðaskil. Þekkir hún þá gjörla rödd manns síns og heyrir, að það er hann, sem syngur. Flýgur henni þá fyrst í hug, að Jón sé farinn að slá móhornið og muni ætla að ljúka því fyrir myrkur, því vel þekkti hún vinnuákafa hans. Þykir henni þetta þó vera með nokkuð undarlegum hætti, fyrst það, að Jón væri kominn úr göngunum svo tímanlega dags, og þó hitt öllu fremur að hún skyldi ekki verða hans vör, er hann fór framhjá henni og austur fyrir hólinn. Leggur hún þá frá sér hrífuna og gengur austur á Neshólinn til að ganga úr skugga um hversu þessu sé varið. Þegar á hólinn kemur svipast hún um og lítur í allar áttir og hlustar. En þar var engan mann að sjá og ekkert að heyra. Verður Guðrúnu mjög hverft við og setur að henni geigvænan ugg. Verður þá ekki meira af rakstri fyrir henni og gengur hún rakleitt heirn. Þegar þangað kemur segir hún strax mótbýlishjónunum, Þorsteini og Kristjönu, frá atburði þessum. Eigi efuðu þau, að Guð- rún skýrði rétt frá, því þau þekktu vel hve hún var grandvör og heiðarleg til orðs og æðis. Líður nú að kvöldi, og kemur Jón heim úr göngun- um og er þá orðinn veikur og háttar strax. Setur þá að honum ofsalegan skjálfta. Var hlúð að honum með öll- um tiltækum ráðum. Þegar skjálftann lægði, rann blund- ur á hann. En brátt vaknaði hann aftur og var þá með ofsa hita og sáran sting. Duldist ekki að hér var um svæsna lungnabólgu að ræða. Var nú skjótt brugðið við og læknis vitjað. Sendi hann meðul, en þau virtust eng- in áhrif hafa. Undir morgun, þriðjudaginn, var kom- ið á hann óráð mikið og hélzt svo þann dag allan og næstu nótt. Var nú beðið milli vonar og ótta, án þess nokkuð væri unnt að aðhafast. Síðari hluta miðvikudags bráði mjög af honum og fékk hann þá fulla rænu. Glæddust þá vonir um bata Jóns. En sjálfum var hon- um fullljóst að hverju færi, og að um helfró aðeins væri að ræða. Óskaði hann þá eftir að ná prestsfundi og veitti hann sér heilagt sakramenti. Fór þá Þorsteinn, mótbýlismaður Jóns, þegar að Saurbæ þessara erinda og kom séra Jakob Björnsson fljótlega að Ytra-Dals- gerði. YTar Jón þá enn með fullri rænu. Framkvæmdi nú prestur athöfnina. Siður var að syngja sálmvers fyrir og eftir, og var svo einnig nú gert. Eftir útdeil- ingu óskaði Jón eftir að sungið væri Allt eins og blómstrið eina. Tók hann sjálfur undir sönginn, æðru- laus með óbrostinni rödd. Að athöfninni lokinni kvaddi hann allt heimilisfólkið, með fullri geðró, eins og hann væri að fara í ferðalag, að vísu í þetta sinn nokkuð langt. Fyrst kvaddi hann sambýlisfólkið, síðan móður sína og stjúpa og börnin sín. Síðast kvaddi hann harmþrungna konu sína með ástúðlegum hughreysting- arorðum. Eftir það dró mjög af honum máttur og ræna, og um það leyti, er degi lauk, andaðist Jón Jósúa- son. Og þannig kvaddi miðvikudagurinn 21. september 1887. Frá atburðum þeim, er hér hefur verið frá skýrt, sögðu mér foreldrar mínir, Þorsteinn Pálsson og Krist- jana Einarsdóttir, sem voru í sambýli við Jón Jósúa- son og Guðrúnu Oddsdóttur, er þeir gerðust, svo og elzta dóttir Jóns, Sigríður, sem búsett er á Akureyri. Hún er móðir Gísla Ólafssonar yfirlögregluþjóns á Ak- ureyri. Töldu foreldrar mínir víst, að þetta væri feigðarboði, þó þau orðuðu það ekki við Guðrúnu. Jón Jósúason var fæddur 8. nóvember 1843, og var því tæpra 44 ára er hann lézt. Hann var hið mesta val- menni og hverjum þeim harmdauði, er honum kynnt- ust. Síðustu dagar Möðruvallaskóla . . . l'ramhald. af bls. 261. ____________________________ vel vill til, að veðurathuganir voru gerðar þá á Möðruvöllum, og birtust þær jafnóðum í „Norðurlandi". Af þeim sést, að brunadag- inn var 12.5° C frost um hádegið, en 16° um nóttina. Dagana 25. —27. marz var vægt frost og meira að segja frostlaust um hádegið einn daginn. F.n annars var lágmarkshitinn 15—16° C. frost á hverjum degi til mánaðamóta, og um hádegið var 8—12.5° C. frost. Svipað veður hélzt til 10. apríl, og komst frostið niður í 18.1° C. 4. apríl, og flesta dagana var um og yfir 10° C. frost um hádegið. Eftir 10. apríl tekur heldur að hlýna, en frostlaust verður ekki fyrr en 24. apríl, og oft allmikið frost, jafnvel allt að 10° C. um hádegið. Nokkur bót í máli var þó, að lengstum var hægviðri, 2—3 vindstig. Seinustu dagana í apríl hlýnaði verulega, en aftur kólnaði fyrstu dagana í maí, en telja má að bati kæmi með hlý- indum 6. maí. Það er því ekki ofsögum sagt hjá Gísla, að köld hefur hún verið vistin á kirkjuloftinu, og þó líklega enn verra að sitja í skriflegu prófi í leikfimihúsinU, sem var óupphitað eins og kirkjan en sýnu lakara hús. Má óhætt telja það fullkomna þrekraun, hversu piltum tókst að leysa af hendi próf sín við slíkar aðstæður. St. Std. Heima er bezt 26Í3

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.