Heima er bezt - 01.08.1960, Síða 18
dagurinn. Búnaðarsamband Eyjafjarðar veitti hádegis-
verð á Akureyri, en því næst var Lystigarður bæjarins
skoðaður, en svo ekið austur yfir Vaðlaheiði að Laug-
um. Þar í héraðsskólanum var fyrir fjöldi Suður-Þing-
eyinga. Var þar mannfagnaður ágætur, ræðuhöld með-
an kaffi var drukkið og kórsöngur óvenju fagur og
hressilegur, sem Páll H. jónsson stjórnaði. Að öllu þessu
afloknu var ferðinni haldið áfram til Mývatnssveitar,
en þar var Skaftfellingum skipt niður á bæina. Var
þetta sunnudagskvöld.
Sjöunda daginn var safnazt saman í Reykjahlíð laust
fyrir hádegi, setzt þar að mat og borðað mikið af Mý-
vatnssilungi áður en lagt var á öræfin, sem aðskilja
landsfjórðungana. Pétur í Reynihlíð og Jónas á Græna-
vatni fylgdu Skaftfellingum þar til stutt var til Möðru-
dals. Þar mættum við áætlunarbílnum frá Reyðarfirði,
en þeir fóru með honum til baka. Farið var í einum á-
fanga frá Námaskarði að Sænautaseli og áð við Ranga-
lón. Þaðan ekið að Hvanná á Jökuldal, en þar hafði
einn ferðalangurinn, Benedikt á Káifafelli, verið í
kaupavinnu fyrir 40 árum og langaði því til að heilsa
upp á kunningja, sem hann hafði kynnzt þá, en ekki
séð allan þennan tíma.
Svo var ekið um Hróarstungu og upp í Fellin og
Fljótsdalinn til gistingar.
Menn höfðu góða hvíld og gátu sofið frarn eftir
næsta rnorgun og hádegisverðar nutu rnenn hjá gest-
gjöfum sínum. Síðan var ekið inn á móts við Valþjófs-
stað og yfir Jökulsá, framhjá Hrafnkellsstöðum og yf-
ir Gilsá hjá Buðlungavöllum, en gengið þaðan að Hall-
ormsstað. Skoðuð gróðrarstöðin, þar sem milljónir trjá-
plantna eru í uppvexti, farið í Guttormslund að skoða
lerkitrén og kaffi drukkið í kvennaskólanum. Síðan ek-
ið í hægðum burt, en þó stanzað við Kliftjörn hjá eyði-
býlinu Ormsstöðum. Klukkan átta um kvöldið var svo
komið saman í barnaskólanunr í Egilsstaðaþorpi. Var
þar setið undir borðum til miðnættis við söng og ræðu-
höld og mikinn gleðskap. Þar var orðið gefið frjálst og
menn notuðu sér það vel og surnir tví- og þrívegis. Ur
veizlunni var svo haldið í gististaði, að þessu sinni efst
á Völlunum, í Skógum og Skriðdal, byggðum, sem voru
bezt í leiðinni næsta dag.
Miðvikudagurinn 15. júní var níundi og síðasti dag-
ur ferðarinnar, og þá safnaðist fókið saman hjá Haug-
um í Skriðdal og lagði svo á síðasta áfangann, heim.
Fyrstu tvo dagana, sem ferðin stóð yfir, hafði verið
þoka og dumbungs veður og slæmt skyggni, en hina
sjö dagana sæmilega bjart og þurrt, en ekki mikill hiti.
Þessa tvo síðustu dagana sá fólkið því vel þann hluta
leiðarinnar, sem þokan hafði hulið í byrjun ferðar. Frá
Egilsstöðum til Hornafjarðar er lang erfiðasta dagleið-
in, nær hálft þriðja hundrað kílómetra, yfir fjöll og
firnindi, um djúpa dali, út fyrir nes og inn fyrir firði.
Hvergi opnir greiðasölustaðir, sem geta tekið á móti
svona stórum hópi og afgreitt þá á stuttum tíma. Því
var treyst á öl og kex — og innanfeitina — þar til kom-
ið var á Höfn í Hornafirði seint um kvöldið.
Þar lauk þessari ágætu ferð, en þó áttu menn af Mýr-
um, úr Suðursveit og Oræfum langan veg heim til sín,
næsta dag.
I þessari för var almenn þátttaka, en þó langminnst úr
stærstu sveitinni, Nesjurn. Þaðan voru aðeins sjö. Ekki
veit ég af hverju þessi deyfð þeirra Nesjamanna stafar.
En það er víst, að þeir bændur, sem fóru þessa ferð,
hafa bætt við sig talsverðri þekkingu á landi og lýð og
margir þeirra séð sitt af hverju, sem .vel má þeim að
gagni koma í búskapnum. Og allir munu þeir hugsa
hlýtt til stéttarbræðra sinna, sem tóku svo alúðlega og
höfðinglega á móti þeim, meðan líf og minni endist.
— En, hverjir bændur skyldu verða fyrstir til að fara
í kynnisför um Austur-Skaftafellssýslu?
LJÓSMYNDARI „HEIMA ER BEZT“,
Bjarni Sigurðsson, náði mynd af nokkrum Austur-
Skaftfellinganna, er þeir fóru um Akureyri, og birtast
þær á þessari síðu og þeirri næstu.
Steinþór Þórðarson, Hala.
Á næstu síðu til vinstri:
Jóii Eiríksson, Volaseli.
Kristjcm Benediktsson, Einholti.
Hjalti Jónsson, Hólum.
A næstu síðu til hægri:
Benedikt Þórðarson, Kálfafelli.
Þorsteinn Guðmundsson, Reynivöllum.
Sigurður Björnsson, Kvískerjum.
270 Heima er bezt