Heima er bezt - 01.08.1960, Síða 27

Heima er bezt - 01.08.1960, Síða 27
ur og leggja stund á guðfræðinám við Hafnarháskóla. En ég hét honum því að bíða hans, [rar til hann heíði tekið embættispróf, og þá ákváðum við að gifta okkur strax. Hann lofaði mér að skrifa mér oft, meðan fjar- lægðin skildi okkur að, og ég hét honum því sama. Síðan áttum við okkar sælu og harmsáru kveðjustund úti í faðrni vornæturinnar, enginn nema guð og við tvö vissum þá stund. Um sumarið dvaldi ég á ýmsum stöðum heima í sveit minni, aðallega við saumaskap. Það var sótzt eftir mér til þeirra starfa, og mér virtist fólkið í sveitinni líta mig allt öðrum augum en áður. Eg hafði vaxið einhver ósköp í augum þess við dvöl mína í Reykavík og saumanámið þar, en sjálf var ég hin sama og áður að öðru leyti en því, að nú var ég hamingjusöm í fyrsta sinni á ævinni. Um haustið fór ég svo aftur suður til Reykjavíkur og réð mig þar á saumaverkstæði frarn að jólum. En eftir áramótin ætlaði ég svo að reyna að komast ein- hvers staðar að sem nemandi í matreiðslu, ef nokkur tök yrðu á. Eg hafði mikinn og einlægan áhuga á því að búa mig sem bezt undir framtíðina, sem nú brosti við mér. Ég fékk aftur fæði og húsnæði hjá foreldrum Gunn- ars. En nú var hann farinn af landi burt, og tómrúmið var mikið á heimilinu. Eg varaðist að spyrja kaup- mannshjónin nokkuð um son þeirra, þótt hjarta mitt brynni af þrá eftir að frétta af honum. Ég óttaðist sem sé, að ég myndi kannske með því ljósta upp leyndar- máli okkar Gunnars, ef ég spyrði þau að fyrra bragði. En frú Helga sagði mér eitt sinn í óspurðum frétt- um, að Gunnar sinn væri nú byrjaður á guðfræðinámi við Hafnarháskóla, og að honum liði ágætlega, og þá var ég ánægð. — Skömmu fyrir jól barst mér svo bréf heiman úr æskusveit minni, en innan í því var bréf frá Gunnari mínum, sem hann hafði skrifað mér heim í sveitina, og var nú sent mér þaðan. En það blessað bréf færði mér mikla gleði og hamingju, því það veitti mér full- komna vissu um órjúfandi ást og tryggð elskhuga míns, og eins að honum liði vel í hinu framandi landi. Ég bar þetta bréf við hjartastað minn á daginn, hvar sem ég fór, og tók það heitt úr barmi rnínum á hverju kvöldi og las það með sælutárum á brá, en lagði það síðan á sama stað aftur, áður en ég fór að sofa. Bréfið frá Gunnari mínurn var mér sá heigidómur, sem ég skildi aldrei við mig, hvorki í vöku né svefni. Um jólin ætlaði ég svo að svara bréfinu og senda svar- ið með fyrstu ferð sem félli eftir áramótin. En á þeim tírna voru ferðir fremur strjálar til útlanda. En svo var það næstsíðasta daginn, sem ég vann á saumaverkstæðinu, að ég kom heim eins og venjulega og gekk inn í eldhúsið til kvöldverðar, en þar var þá engin manneskja, og enginn matur sjáanlegur. Mér kom þetta einkennilega fyrir sjónir, því frú Helga var mjög stundvís og reglusöm bæði með máltíðir og annað. Eg beið því góða stund í eldhúsinu, en enginn kom þang- að. Ég fór þá að svipast um eftir frúnni og drap fyrst að dyrum á stofunni. Ég heyrði að sagt var kom inn, og opnaði þegar hurðina. En mér brá heldur í brún um leið og ég leit inn í stofuna. Á legubekk beint á móti mér lá frú Helga fljótandi í tárum og náföl eins og lið- ið lík. — Fyrirgefðu, frú Helga, ég er að gera þér ónæði, sagði ég afsakandi. — Nei, þú gerir mér ekkert ónæði, svaraði hún titr- andi röddu, — en ég verð að biðja þig að taka þér sjálf kvöldverðinn að þessu sinni, ég get ekki framreitt hann. — Hefur eitthvað komið fyrir, frú Helga? spurði ég hikandi. — Já, við fengum bréf í dag. Gunnar minn er dá- inn. — Dáinn? stundi ég upp. 7 Já' Ég spurði frúna ekki um fleira, gat ekkert sagt. Þeirri stundu ætla ég ekki að revna að lýsa. Ég lokaði stofu- dyrunum í flýti og komst einhvern veginn upp í her- bergi mitt, og kvöldverðinum mínum sleppti ég alveg að því sinni. Morguninn eftir fór ég á saumaverkstæðið eins og venulega og reyndi að rækja starf mitt þann dag, en urn kvöldið kvaddi ég þar fyrir fullt og allt, enda var ráðningartími minn þar útrunninn, sem betur fór. Þeg- ar ég kom heim um kvöldið í kaupmannshúsið, var þangað komin frænka Geirs kaupmanns og tekin þar við heimilisstörfum, en frúin sjálf lá rúmföst. Þessi frænka kaupmannsins sagði mér í óspurðum fréttum, ásamt fleiru, að Gunnar yrði jarðsettur úti í Kaup- mannahöfn, og að foreldrar hans ætluðu að sigla út með fyrstu ferð. Ég ákvað þegar að drífa mig heim í æskusveitina strax fyrir jólin, því að á heimili Gunnars rníns gat ég ekki hugsað til að dveja lengur. Þar rnátti enginn fá vitneskju urn sorg rnína, en hún hefur ef til vill ekki verið léttari heldur en hjá foreldrum hans. Með Gunn- ari var öll lífshamingja horfin, því hann var mér allt. Ég gekk á fund frú Helgu og gerði upp reikninga mína við hana. Hún sagði mér að heimili sitt yrði lok- að upp úr áramótunum, en hve lengi vissi hún ekki. Síðan kvaddi ég í kaupmannshúsinu og kom þangað aldrei síðan. En bréfið frá Gunnari mínum, það eina sem ég átti til minningar um hann, hef ég varðveitt frarn á þennan dag, og það á að leggjast í kistuna hjá mér, þegar þar að kemur. Næstu árin dvaldi ég heima í æskusveit minni, og var þar í vinnumennsku á ýmsum stöðum. Ég átti oftar en einu sinni kost á því að stofna til hjúskapar á þeim árum, og það með mönnum, sem þóttu fremur álit- legir, en ég gat ekki hugsað til þess að giftast neinum þeirra. Árin liðu. Ég var komin yfir þrítugt og farin að Heima er bezt 273

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.