Heima er bezt - 01.08.1960, Side 31

Heima er bezt - 01.08.1960, Side 31
um húsum. Ég fer varla að slá upp veizlu fyrir hyskið hérna í kringum mig.“ Hann hló kuldahlátur. „Ekki nerna |>að, að ætla að fara að halda veizlu. Allt dettur henni í hug. Þú getur sagt henni, að hann verði ekki skírður í mínum húsum. Því náttúrlega hefur hún sent þíg-“ „En þú hefur þó vænti ég haldið veizlu þegar Jón litli var skírður.“ „Já, það gerði móðir hans.“ „En hann er víst jafn skyldur þér þessi angi. Ég skil ekkert í þér hvernig þú ert við barnið,“ sagði gamla konan í biðjandi málróm. „Hún getur látið skíra hann í kirkjunni, þegar vor er komið, eða reitt hann fram að Giljum og haldið þar veizlu, en hér inni verður hann ekki skírður." „Þetta er engin meining að lítilsvirða hana eins og þú gerir, þar sem hún er orðin þér talsvert nákomin. Láttu hana taka við húsmóðurstörfunum. Hana langar til þess. Þá sérðu hvort hún er ekki fær um það.“ „Ef þú vilt eitthvað skipta þér af Asdísi, þá reyndu að koma henni burtu af heimilinu. Ég skal gefa með stráknum, en ég þoli ekki að hafa þau nálægt mér,“ sagði hann og ýtti henni hlýlega fram að dyrum. Ekki varð sú ferð til fjár, hugsaði gamla konan. Hún sagði Ásdísi frá erindislokunum, en þó með talsvert vægari orðum en sonur hennar hafði talað. En á það síðasta minntist hún ekki. Ásdís ætlaði af fara eftir vilja hans og láta skírnina bíða eftir sól og sumri. Vetrarvikurnar liðu tíðindalitlar í héraðinu. Tíðinda- lausar á Hofi, því þangað kom sjaldan maður. Kristján hafði beðið föður sinn að segja engum frá því, að Hofi hafði verið sagt lausu. En samt kornst það í almæli og þóttu miklar fréttir. Leifi frá Garði var borinn fyrir þeim. Hann var oft gestur á Hofi. Það var ákjósanlegt að skreppa inn eftir á kvöldin til að draga í spil og drekka kúmenkaffi með rauðum kandís. „Jæja, þá eru þeir farnir að sækja um Hof, Halldór á Læk og Bogi, sem einu sinni var í Garði. Hver skyldi hafa trúað því, að hann yrði sá maður að láta sér detta í hug að fara að búa á Stóra-Hofi,“ sagði Leifi eitt kvöldið yfir spilunum. Kristján varð sótrauður af gremju og leit til föður síns. Enginn annar en hann vissi að það var falt til ábúðar. En gamli maðurinn var niðursokkinn í spilin og sagði óþarflega hátt, að það væri forhandargrand. „Hvern fjandann ætla svoleiðis búskussar að gera með stóra jörð,“ sagði Kristján. „Ætla þeir að búa á henni báðir eða hvað?“ „Nei, þeir sækja víst hvor á móti öðrum. Það er orðið stærðar bú hjá Boga. Náttúrlega eiga strákarnir mikið af því,“ sagði Leifi. „Halldór er nú eins og hver annar frumbýlingur, en hann er duglegur strákur.“ „Hvor þeirra skyldi fá kotgreyið,“ sagði Hartmann spaugandi og forðaðist að líta framan í son sinn. Hann vissi sig sekan um að hafa trúað Leifa og reyndar fleir- um fyrir því, sem enginn átti að vita. „Ég skil nú ekki hver hefur sagt þeim, að Hof væri falt til ábúðar,“ sagði Kristján. „O, ætli Stefán kunningi þinn í Þúfum hafi ekki ver- ið því eitthvað kunnugur," sagði Leifi drýgindalega. „Hann vissi að minnsta kosti urn það, að leiguskilmál- arnir yrðu ekki betri en þeir hafa verið.“ „Jæja, skítt með það allt saman,“ sagði Hartmann. „Það er víðar Guð en í Görðum. Við skulum snúa okkur að spilunum.“ En nú var allur spilaáhugi horfinn frá Kristjáni. Hann tapaði í hverju spili og hætti loks og fór inn í hús. Það var svo sem auðvitað að svona myndi það fara. Mikill bölvaður kjáni var hann að fara að segja Hofi lausu. Allt var það föður hans að kenna. Líklega yrði það svoleiðis að hann stæði upp jarðnæðisiaus í fardögum með allan sinn mikla bústofn, hugsaði hann í myrkrinu. Hartmann garnli kom að máli við hann daginn eftir í fjárhúsunum. Hann var hálfundirleitur og mjúkur í máli, því hann vissi upp á sig talsverða sök. „Það er líklega ekki um annað að gera en fara að líta eitthvað í kringum sig eftir jarðnæði, fyrst svona er komið, að farið er að sækja um jörðina. Ég hef alltaf haft veika von um, að hún byði þér að búa áfram við sömu skil- mála, af því þú varst einu sinni tengdasonur hennar.“ „Það er auðheyrt að þú þekkir ekld þá konu, fyrst þér datt það í hug,“ sagði Kristján. Vissi sig þó ekki frían af að hafa alið sams konar svikavon í brjósti. „En hver hefur svo sem komið því á kvik, að ég væri búinn að segja jörðinni lausri?“ „Ja, hver getur vitað það? Líklega hefur kvenfólkið heyrt óm að því þegar við vorum að tala um það og skotið því í eyra náungans,“ sagði Hartmann. „Þær fara nú aldrei út af heimilinu, svo það hefði átt að vera vel geymt innanbæjar.“ „Þær ræða við kerlingarnar þegar messað er. Svo kemur kerlingin á Bala stundum í maskínuhúsið til Geirlaugar gömlu.“ „Það er líklega bezta ráðið að selja allt á uppboði. Hvað á að gera með jörð þegar engin manneskja vill vera hjá mér nema sú sem ég vildi helzt aldrei sjá á mínu heimili. Geirlaug vill ekki hugsa um heimilið lengur sem húsmóðir og því síður gefa sig undir Ás- dísi. Þeim semur svo illa. Og það sem merkilegast er að Bogga vill ekki vera lengur.“ „Þú hefur þá alltaf karlinn og kerlinguna, Ásdísi og strákinn,“ sagði Hartmann. „Hún getur sjálfsagt soðið mat enn þá, hún móðir þín, það máttu vera viss um. Kannske það fari svo að þú verðir þakklátur fyrir að Ásdís fylgir þér eins og skugginn þinn. Þau eru ekki ómöguleg verkin hennar.“ „Ég bauð ekki mömmu til mín til þess að hún hefði það erfiðara en hún hafði það áður. Ég hef verið ánægð- ur yfir því að sjá hvað hún hefur hresst í vetur. En ef hún á að hafa matreiðsluna á höndum með strákgerp- inu, geturðu ímyndað þér hvernig hennar hlutskipti verður.“ Heima er bezt 283

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.