Heima er bezt - 01.02.1962, Side 7

Heima er bezt - 01.02.1962, Side 7
III. Albert fór til Kanada og réð sig þar í sveitavinnu. Hann var til dæmis ríðandi kúreki um skeið, hafði heyrt mikið látið af því, hve líf slíkra manna væri ævintýra- legt og karlmannlegt. En honum fannst lítt til um störf- in, yfir þeim hreint enginn ævintýrablær, nautgripirnir ókynbættir og ærið rytjulegir flestir, hestarnir bykkjur, þokkalausar og brokkgengar, og kjör kúrekans ekki því lík, að þau gæfu vonir um glæsilega framtíð. Þá var og síður en svo, að landið töfraði hann. Því lengur, sem hann hafði það fyrir sjónum, því dýrlegra varð ís- land í vöku og draumi. Hann sagði upp starfi sínu og fór til Winnipeg, og nú var honum allmikill vandi á höndum. Hugur hans stefndi til Islands, en hann vissi þar engin störf líkleg, sem gæfu fyrirheit um þá framtíð, sem hugur hans hafði ávallt þráð. Á íslandi var ef til vill hægt að hagn- ast svo á kaupsýslu eða útgerð, að menn gætu safnað fé til slíkra framkvæmda, sem honum bjuggu í hug, en við hvort tveggja virtist allóviss og vandtekinn gróð- inn, og Albert var hvorki hneigður fyrir brask né kunnugur á vandförnum leiðum gróðavænlegs við- skiptalífs eða sjávarútvegs. Hann ákvað að vera kyrr í Vesturheimi fyrst um sinn, og nú réð hann sig til náms hjá Columbia Press, prentsmiðju Lögbergs. Þar var vélakostur mjög fullkominn og vinna öll vönduð. Al- bert lærði á setjaravél, en slíkar vélar höfðu valdið straumhvörfum um verkshátt og vinnuafköst við gerð blaða, tímarita og bóka, og Albert var ljóst, að ekki mundi líða á löngu, unz íslenzkar prentsmiðjur öfluðu sér þessara tækja. Hann kynnti sér því sem allra ná- kvæmast gerð vélanna og uppsetningu þeirra, og ekki löng-u eftir að hann hafði lokið námi, fór hann heim til íslands, og varð hann þess fljótlega vís, að áhugi var vaknaður fyrir setjaravélunum meðal íslenzkra prent- smiðjueigenda. Einsýnt þótti að leita hjá honum upp- lýsinga, og um nokkurt árabil vann hann mikið að upp- setningu slíkra véla í íslenzkum prentsmiðjum — og ekki ávallt með klukkuna í hendinni. Hann minnist þess, að Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Morgun- blaðsins, lagði fast að honum um að Ijúka uppsetningu setjaravélar á sem stytztum tíma, og eins man Albert það, að þá er verkinu var lokið, lét Sigfús í Ijós ekki aðeins ánægju, heldur líka undrun yfir því, hve verldð hefði gengið greitt. Albert hafði ráðizt starfsmaður í prentsmiðjunni Gutenberg, og þar vann hann yfirleitt fullan vinnutíma, en vann að uppsetningu setjaravél- anna í eftir- og næturvinnu og enn fremur kenndi hann setjurunum á vélarnar. Sú vélartegund, sem Al- bert taldi bezt henta, Linotype, var upphaflega þýzk og raunar sú fyrsta, sem nothæf gæti talizt. En frá því 1884, að fyrsta gerðin var smíðuð, hafði þessi vél verið endurbætt aftur og aftur, og þá einkum í Bandaríkjun- um. Umboðsmaður Linotypeverksmiðjanna amerísku var Arent Claessen stórkaupmaður. Við hann ræddi Al- bert kosti og galla þessara frægu tækja, og tvisvar fékk Claessen hann til að fara til Ameríku til viðræðna við tæknilega ráðunauta og framkvæmdastjóra verksmiðj- anna. Hann hafði kynnt sér mjög vandlega aðrar teg- undir setjaravéla, og taldi hann auðsætt, að keppa bæri að því við framleiðslu Linotypevélanna að fækka göll- um þeirra og gæða þær þeim kostum, sem aðrar vélar hefðu fram yfir þær í einstökum atriðum. Fór mjög vel á með Albert og hinum amerísku tæknifræðingum og ráðamönnum verksmiðjanna, og mun hann hafa fengið nokkru áorkað til umbóta. Samvinna þeirra Arents Claessens var og svo sem bezt varð á kosið. IV. Albert telur sig aldrei hafa verið bókhneigðan mann, en þegar hér var komið, fylgdist hann allvel með í því, sem út var gefið á íslenzku — og las hann flest, sem fjallaði um sögu þjóðarinnar, atvinnuhætti, siði og menningu, — og framar öðru allt um húsdýrin og um- bætur í búnaði. En þó að hann hefði um langt skeið fengizt við þann þátt bókagerðar, sem fram fer í prent- smiðjum hafði það aldrei hvarflað að honum að gerast á einn eða annan hátt aðili að útgáfu bóka. Eins og áður getur, giftist Rannveig, systir hans, Vil- hjálmi Þór. Hann varð frainkvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga árið 1924, og svo sem þjóðkunnugt er orð- Húsbœndurnir d Hallkelshólum: Margrét Benediktsdóttir og Albert J. Finnbogason. Heima er bezt 43

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.