Heima er bezt - 01.02.1962, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.02.1962, Blaðsíða 21
Séð inn yfir Vatnsdalinn. Vatnsdalsfjall til vinstri. Hnjúkurinn, sem oft er nefndur Hnjúkshnjúkur, til hcegri. Björn Bergmann tók myndina. út í Flóðið, en beggja vegna árinnar raða sér stórbýl- in undir hlíðum fjallanna. Eru austurhlíðar dalsins, Vatnsdalsfjallið, brattari, hærri og gróðurminni en vest- urhlíðarnar, Víðidalsfj allið, milii Vatnsdals og Víði- dals. Hvert hérað á íslandi á sína landnámssögu, og því er líka þannig farið með Vatnsdalinn, en landnámssaga hans byrjar eiginlega út í Noregi, og bæjarstæði land- námsmannsins er ákvarðað nokkru áður en hann lagði upp frá Noregi. Er sú saga skráð í Vatnsdælu, mjög dularfull og furðuleg á margan hátt. Verður sú saga rakin hér í aðalatriðum, en þeir sem eiga þess kost að 'hafa Vatnsdælu með höndum, ættu að lesa söguna þar. Ingimundur hét maður Þorsteinsson af ágætu fólki kominn í Noregi. Hann lá í víkingu eins og ungir menn á þeim tímum. Eitt haustið, eða síðla sumars, er Ingimundur og Sæmundur, félagi hans, komu úr hem- aði heim til Noregs og tóku land við Jaðar. Urðu þeir þá þess varir, að þar yar mikill liðs-samdráttur. Fengu þeir þá þær fregnir, að í undirbúningi væri höfuð- orrusta milli konungsins Haraldar Hálfdanarsonar hins svarta, sem brotið hafði undir sig á röskum áratugi hvert fylkið eftir annað í Noregi og hugðist nú leggja til loka-orrustu við lið bænda „vestan fjalls“, sem ekld vildu beygja sig fyrir ofríki hans. Var þetta hin nafn- fræga orrusta í Hafursfirði árið 872, tveimur árum áð- ur en Ingólfur Arnarson kom til íslands og reisti þar byggð sína. Ekki urðu þeir félagar, Sæmundur og Ingi- mundur, sammála um afstöðuna til konungsins. Ingi- mundur taldi Harald konung bezta mann Noregs og spáði honum sigri, og gekk hann til liðs við hann með öllu því liði, er honum vildi fylgja, en Sæmundur vildi þar hvergi nærri koma og sigldi með sínu liði inn í Sognsæ. En Ingimundur fór á sínu sldpi með lið sitt allt inn á Hafursfjörð og lagði skipi sínu að konungs- skipinu. Hann kvaddi konung á þessa leið: „Heill, heill, herra!“ Konungur svarar: „Vel fagnar þú, eða hver ertu?“ Ingimundur kynnti sig og ætt sína og bauð kon- ungi liðveizlu. Sagðist hann telja þá betur hafa, „er yður veita, en liina er við rísa.“ Konungur tekur boði Ingimundar með þökkum og fylgir Ingimundur kon- ungi fast í orrustunni, „og aflaði sér góðs orðs,“ eins og segir í sögunni. Er konungur hafði sigrað og friðað allt landið, hélt hann miklar veizlur og vildi á allan hátt launa þeim mönnum og heiðra þá, sem honum höfðu fylgt í þess- ari síðustu orrustu, en þeir, sem á móti höfðu verið eða Heima er bezt 57

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.