Heima er bezt - 01.07.1962, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.07.1962, Blaðsíða 8
Kjartan Ólafsson, Jón Benediktsson, Óskar Guðnason. ó, Venus,“ og skiptir það engum togum, að hann fer að faðma hana og kyssa, og þau eru þarna í faðmlögum, þangað til Kristbjörg Jónatansdóttir kemur og hrífur konuna úr fangi skáldsins. Þá fer hann upp á tröppurnar aftur og hneigir sig fyrir mannfjöldanum og biður hann að bíða andartak, hann ætli að sækja munnhörpu, og svo fer hann að spila, honum var allt til lista lagt, þessum manni, og þegar ég hitti Þorstein vin minn Halldórsson á hvítasunnudag núna inni í Laugardal, ég lagði lykkju á leið mína til hans, þá minntumst við á kurteisa mann- inn í glugganum á Hoepfnersverzlun, sem auðvitað var hann sjálfur. — Já, það er ekki hægt að hafa sumt eftir og setja á prent. Þetta var hunangsmaður, Þorsteinn, og svo vel gefinn. — Og svo er það Þorkell minn Ottesen. Þeir voru einu sinni þrír saman í bát allmjög við skál. Fóru allir í sjóinn, er bátnum hvolfdi út af Torfunefs- bryggju, en Ottesen kom þeim öllum á kjöl. Hann var hraustmenni mikið og svo ágætur. Nú skulum við ekki hafa meira af þessu, en ég þarf að segja þér frá því, sem komið hefur fyrir mig, þegar ég hef verið að prenta. Ég er ekki hjátrúarfullur. Trúi ekki á Grýlu eða Dúða- durt, en þegar ég var að prenta Kuml og haugfé, þá skal ég segja þér, var stöðug aðsókn að mér af lágum, þrekn- um mönnum í sauðmórauðum fötum. Það voru mikil brögð að þessu og óþægindi, og þegar þeir voru sem aðsópsmestir og aðgangsharðastir, þá segi ég við þá í fullri alvöru, að þeir skyldu snúa sér til Kristjáns Éld- járns, þjóðminjavarðar, því að það er hann, sem hefur rænt ykkur aleigu ykkar, en ekki ég. Þá sama sem tók alveg fyrir aðsóknina. Ég rétt aðeins fann þá og sá þeim bregða fyrir eftir þetta. — Hefurðu orðið var við fleira þessu líkt? — Já, það var annað. Þegar ég var að prenta kápuna á Ritsafn Guðmundar á Sandi, var að ljúka við einn litinn, þá var klukkan þrjár mínútur yfir hálfeitt um dag. Þú veizt, hvar vélin stendur, og ég stend við hana og er að beygja mig niður eftir pappír, og þá kemur allt í einu Guðmundur Friðjónsson í svörtum frakka, dökkur á brún og brá eins og hann var, snarast inn í salinn og lítur á prentunina og hverfur svo. Ég sá þetta svo greinilega, og það er eins satt og við erum hérna tveir inni. Ég hef sagt Heiðreki frá þessu. Engin óþægindi fylgdu sýn þessari. — Einu sinni, þegar ég var að prenta Norðurljósið, sannfærðist ég um, að ég yrði fyrir aðsókn frá kölska sjálfum. Hver sem það svo var, þá veit ég, að það voru einhver ill öfl, sem ekki vildu að orð Sæmundar að Sjónarhæð í Norðurljósinu kæmust út. Og þetta gekk svo hrapallega að ég varð að biðja Geir að korna og hjálpa mér. Ég vildi ekki vera að kvabba á Meistaranum mikla með svona lítilræði, en ég var nú ekki eins slunginn og Sæmundur fróði að leika á kölska. Hvað heldurðu svo, að hafi bitið á hann? Ég tók sálmana hans Sæmundar að Sjónarhæð og þuldi sem mest, og það hreif. Kauði hvarf og kom ekki aftur. Og til sannindamerkis skal ég sýna þér sálmana frá Sæ- mundi. Síðar sérprentaði ég þá fyrir Sæmund og gaf honum þá, mér þóttu þeir svo góðir. Og hann seldi þá til ágóða fyrir barnaheimilið að Ástjörn. Ég er viss um, að kölski óttast mest um veldi sitt bæði í jörðu og á fyrir Sæmundi. — Hafa þá aldrei borið fyrir þig sýnir utan prent- smiðjunnar? ..ig* 'W/ Vísur Konráðs Vilhjálmssonar til Jóns Benediktssonar prentara eftir lestur bókar hans, Vorboði íslenzkrar cesku. Hugur Jóns er hreinn og skýr, hjör úr þjóðarstáli. Áhuginn er alltaf nýr, örugg sókn í máli. Hann hefur þjálfað tungu og taug, trútt að verki gengið. Æskuhöll og hreystilaug höfum við því eins fengið. Sá er hamrar heitast stál, hugsjón snýr til þrifa, jafnt um kvölds og morguns mál mun í verkum lifa. w, i I % w. 228 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.