Heima er bezt - 01.07.1962, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.07.1962, Blaðsíða 10
Prentarar d Akureyri 1930. Efsta röð, frá vinstri: Þorkell. V. Ottesen, Kjartan Ólafsson, Sigurður Oddsson, Jens M. V. Buch, Sigurður Jónsson, Kristján Sremundsson, Jón Benediktsson. Miðröð: Friðrik Asmundsson Brekkan (rithöf. og ritstjóri), Helgi Björnsson, Oddur Björns- son, Ingólfur Guðmundsson. Neðsta röð: Stefán Traustason, Sigurjón Scemundsson, Snorri Askelsson. leyst öll þau vandamál, sem rísa á sviði prenttækni og prentvéla. Geir er sigldur og lærður í prentlistarskóla í Ameríku, sem kunnugt er. Örn getur gert við vélar, hverju nafni sem nefnast, er prentlistinni koma við, og alla hluti milli himins og jarðar. Ef hann hefði verið þegn hinnar miklu Ameríku, þá væri hann áreiðanlega nú á meðal vísindamanna á Kanaveralhöfða. Það er þessum ungu mönnum gott að koma og hjálpa mér og kynnast þannig alvöru lífsins, er ég þarf á hjálp að halda. — Þá er það hún vinkona mín, Guðbjörg Sæmundar- dóttir frá Fagrabæ. Oft þarf ég að kalla: Guðbjörg mín, gefðu mér fyrir vélina. Þá kemur hún mér til aðstoðar með þetta eða annað, sem þörfin krefur í hvert sinn, með handfimi sinni og hughreysti. Ég hef aldrei fundið það betur en þegar ég var að prenta jafnerfitt verk og Skín við sólu Skagafjörður, hvað sú aðstoð er mikils virði. Nú vildi ég spyrja þetta góða fólk, hvort hjálp þess sé eigi svo hefðbundin orðin, að ég megi kalla það mér til aðstoðar sem hingað til, meðan við öll vinnum saman. Hafi verið þörf, meðan ég var yngri, getur orðið nauðsyn, er árum mínum fjölgar meir. Margra annarra mætti geta að góðu, en nefna verð ég Bjarna Sigurðsson, er sjálfmenntaður er í ljósmyndagerð og býr til öll myndamót í prentverkinu annar en Geir. Má af öllu þessu marka, að valinn maður er í hverju rúmi í P. O. B. Þetta spjall okkar Jóns er þá á enda. Ég veit, að aldrei hefur hvarflað að þeim Sigurði og Geir að setja hann undir annarra stjórn, og ef ég þekki Jón rétt, veit ég, að hann mun kunna að meta slíkt, enda vill hann hafa sína hentisemi um vöndun vinnu sinnar og fara sínar eigin leiðir. jMun og mála sannast, að fyrirtækið þarf ekkert að óttast, þó að hann sé sjálfs sín herra, svo kunn- ur er hann að vandvirkni og vinnusemi. Ætla ég hverri stofnun það ómetanlegt að hafa slíka menn í sinni þjón- ustu. Þá ætla ég og, að íslenzkri tungu og menningu sé ekki lítils virði að eiga slíka hauka í horni sem Jón Benediktsson prentari er. Gísli Jénsson. 230 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.