Heima er bezt - 01.07.1962, Side 9

Heima er bezt - 01.07.1962, Side 9
íþróttamál. — Lítið er það, en einu sinni var ég hér aleinn heima í íbúðinni, og þá kom systir mín sáluga, klædd eins og hún var vön, og horfði inn í stofuna svolitla stund. Síðan hvarf hún. — Margir, sem lesið hafa rit þín, blaðagreinar og ljóð, hafa dáðst að tungutaki þínu og málfari, hversu það er hreint og fágað. Hverju myndir þú svara, ef ég spyrði þig, hvaðan þér kæmi slíkt? — Ef það þykir umtalsvert, myndi ég svara, að það væri arfur frá föður og móður. Móðir mín var greind og hagmælt. Má af því marka gáfur hennar, að hún lærði að skrifa alveg af sjálfri sér. Faðir minn var greindur karl og annálaður sláttumaður. Tengdamóðir mín, Hólm- fríður Björnsdóttir, var vitur kona og skáldmælt, og hennar móðir, það var nú meiri kerlingin. Hún fór með fullorðið, mannýgt naut eins og tjóðurkálf, þar sem karl- menn voru ráðþrota. Tengdafaðir minn, Magnús Jónas- son, var margfróður og svo stálminnugur og þrekmikill til síðustu stundar, að undrum sætti. Ég minnist þessa fólks með hlýhug til æviloka. Nú, svo hef ég reynt að lesa allt hið bezta, sem ég hef getað fundið á íslenzka tungu og ljóð snillinganna. Enn vildi ég mega telja mig lærisvein Konráðs skálds Vilhjálmssonar, þó ég gengi aldrei í skóla hjá honum, en ég hef lesið Ijóðabók hans og prentað hana líka, og þá má ekki gleyma þýðingum hans. Við skulum taka til dæmis Dag í Bjarnardal, og það skal ég segja þér, að þegar ég prentaði Þeystu þegar í nótt, og bók Konráðs, Horfnir úr héraði, þá rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds, svo rammaukið var mál hans og gullvægt. En nú ertu búinn að spyrja mig svo spjörunum úr, að mig langar til að snúa við hlut- verkinu og spyrja: Hefur þú ekki lært mikið af mönn- um eins og Konráði og honum sveitunga þínum, sem skrifar undir nafninu Runólfur í Dal? Eg man, að ég spurði Ingimar Eydal, hver sá myndi vera? — Jú, vissulega, ég hef mikið lært af því að hlýða á Björn R. Árnason, og stundum segi ég við sjálfan mig, þegar ég er að fara yfir stílana frá mestu skussunum og bögubósunum, að þeir þyrftu að sitja svo sem hálfan mánuð við fótskör manna eins og Konráðs, Björns og Kolbeins frá Skriðulandi og hlusta á þá tala. — En hvað segirðu mér svo um íþróttirnar og ungmennafélögin? — Ég var í Ungmennafélagi Akureyrar í gamla daga, og eru mér þaðan sérstaklega minnisstæðir Þorsteinn Þorsteinsson og Sigtryggur Þorsteinsson. Finnst þér það nokkuð undarlegt? Nei, þetta voru kempulegir menn og hraustmenni, og stráklingar gangast fyrir slíku, eins og þú veizt. — En um íþróttirnar, já, ég fékk einu sinni sár í lunga, ég læknaði það með Guðs hjálp, íþróttum og Mullersæfingum. Brisið sést enn í lunganu. Ég fékk bók- ina Mín aðferð að gjöf frá Oddi Björnssyni, ég skal sýna þér hana, hérna er hún. Hann gaf mér hana á sumardag- inn fyrsta 1920, en æfingarnar kenndi mér Stefán E. Sigurðsson, Stebbi litli, kannastu við hann, nei, hann býr úti á Oddeyri, en bjó þá í öðru húsi utan við Schiöthshúsið. Þar verzlaði Stefán Sigurðsson eldri, bróðir hans, og Stefán yngri var þar búðarmaður hjá honum. Ég iðkaði æfingamar í herbergi hans, það var að sunnan og austan á efstu hæð. Stundum þurfti ég að byrja á því að moka snjóinn út úr herberginu, því að hann lokaði aldrei gluggum. Einu sinni vaknaði hann við það, að hann var kominn á kaf í snjó. Þeir voru ein- kennilegir sumir í gamla daga. Já, það var ótrúlegur árangur af Míillersæfingunum, ég hef ekki fundið til brjóstveikinnar síðan. Stundum steypti Þorsteinn bróðir minn yfir mig ísköldu vatni úr fötu, og sumarið 1920 var ég orðinn svo frískur, að ég gat tekið þátt í íþrótt- um með góðum árangri. — í hverju tókstu helzt þátt? — Hlaupum og stökkum. — En hvað um síðari ára baráttu í þágu íþróttamál- anna? — Ég er búinn að skrifa fjölda bæklinga og blaða- greina til þess að koma áhugamálum mínum áleiðis, en þú færð ekki meira hjá mér um það. — Finnast þér ekki vera einhverjir sérstakir erfiðleik- ar í sambandi við aðalstarf þitt, prentarastarfið? — Það er mörg búmannsraunin þar eins og annars staðar. Þegar allt ætlar um koll að keyra, er ég vanur að kalla á þá Geir S. Björnsson og Örn Steinþórsson til að hjálpa mér. Ég held, að þeir geti, hvor á sínu sviði, Heima er bezt 229

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.