Heima er bezt - 01.07.1962, Page 15

Heima er bezt - 01.07.1962, Page 15
in 5 úrvalsskotum og tilbúin til skots með því að hrinda örygginu fram með vísifingri um leið og ég bregð honum í handbjörgina. Nú hverfur dýrið bak við hæð og ég tek sprettinn og reyni sem mest að stíga á þúfna- og mosakolla, en tek stefnu á ská fram fyrir refinn, en nú kemur hann aftur í ljós og ég stend kyrr. Þetta margendurtekur sig og við stefnum báðir á sömu bungumynduðu hæðina, en —, ég er of seinn. Þegar hann byrjar að fara upp bunguna eru minnst 35 faðm- ar til hans og ég má mig ekki hræra sökum berangurs, verð að horfa upp á, að hann kemst fram fyrir mig, og bíð þar til skottið hverfur yfir hæðarpunktinn, en þá þeysist ég af stað upp, og er þangað kemur er hæðin nærri slétt að ofan og stór um sig, en ég sé hvergi ref- inn. Fjandinn sjálfur, hefur hann orðið mín var og bætt við hlaupin? Því með sömu ferð og hann hafði, ætti ég að sjá hann. Hefur hann smogið inn einhvers staðar? Ég ota augum og —, þarna er klapparbrún, sperrulöguð, eina mishæðin á þessu svæði. Ég hleyp í átt að klöppinni með byssuskeftið upp í handarkrika og fingurinn í björginni, með hinni hendinni held ég fremst um forskeftið og held byssunni þannig á ská til vinstri og niður, en ég hef ekki lengi farið þegar dýrið snarast út undan klöppinni og við sjáum hvor annan samtímis. Byssan með snöggum rykk upp á við, augað nemur miðið, skotið ríður af og mér finnst hávaðinn rífa eyru mín, en dýrið er fallið og berst um og spark- ar með fótunum. Ég þori ekki að hreyfa mig nær, þó færið sé býsna langt, en held byssunni í miðinu ef ske kynni að dýrið kæmi fyrir sig fótum og reyndi að hlaupa. Nú fyrst finn ég hve ákaflega ég er móður, en — hva------, allt í einu er dýrið horfið eins og jörðin hafi gleypt það. Mér hrökkva af vörum nokkur óprent- anlcg orð og tek á öskusprett þangað sem hann féll. Kemur þá í ijós dálítið spor, eða skarð í grasbrúnina og snarhallar inn og niður undir klöppina. Rétt innan við sporið liggur dýrið svo sem í seilingarlengd frá brúninni, en það er ekki árennilegt að hafa á honum hendur, því kjafturinn er glenntur upp í nærri 90 gráðu horn og ég munda byssuna og ætla að „fýra“ á hann, bæði til að stilla dauðastríðið og' eins til að ná honum strax, en þa se eg útundan mér eitthvað gul- hvítt sem reyndar er þá lambshöfuð, og nú skynja ég fyrst, að þetta muni vera greni. Ég hika við að skjóta cf ske kynni að læðan væri inni, þá myndi líða langt þar til að hún kæmi út, og nú er það orðið of seint, því innan við refinn er sandbunki í hellinum bungu- myndaður og hallar öllu niður og inn, en svo sem fet milli sands og hellisloftsins, sem líkist býkúpu, og með- an mér varð litið á lambshöfuðið hafði rebbi eitthvað sparkað enn, og nægði það til þess að hann rann niður sandbunguna og var þar með kominn í hvarf. Jæja, svo var nú það, ckki gæti ég sannað að hafa drepið refinn þótt ég vissi með sjálfum mér að hann væri helskotinn. Greip ég nú lambshöfuðið og kom þá í ljós að það var með mínu klára rnarki, sneitt aftan hægra og sneið- rifað framan vinstra, og mátti segja að þar kæmi vel á vondan og svo mikið var víst, að ekki myndi þessi ref- ur drepa fleiri lömb fyrir mér né öðrum, en nú var eftir að ná læðunni og vissi ég alls ekki hvort hún var úti eða inni. Þegar ég hafði athugað alla staðhætti verð- ur mér Ijóst, að hvergi er var, þar sem hægt er að hafa skjól og dyljast í samræmi við vindstöðu. Hefði vind- ur haldizt suðlægur hefði verið öðru máli að gegna, en nú hafði lygnt og andaði nú af norðvestri en var þó milt sem áður. Ég varð að taka þann kost að halda til í móa milli tveggja þúfna, en engin leið var að hækka neitt í kring- um mig, því engir steinar voru nærtækir og óráðlegt að vera að neinu rápi, heldur vera sem kyrrastur og taka vel eftir öllu. Væri læðan úti, gat hún komið úr hvaða átt sem var og ef hún hefði nú verið inni mátti búast við henni út á hverju augnabliki. Staðsetti ég mig þvert við vindi frá greninu, þar sem var hæfilegt færi á grenið og sneri þannig, að mér væri sem hægast að sjá á grenið, og eins undan vindi frá því og bjóst ég helzt við henni úr þeirri átt. Gjörðist nú lífið frem- ur tilbreytingarlaust og vildi setja að mér hroll þó veðrið væri blítt, því ekki þorði ég með neinu móti að yfirgefa grenið til að sækja loðnu skinnfötin, sem ég skildi eftir æðilangt í burtu fyrr um kvöldið, en oft varð mér hugsað til þeirra um nóttina. Klukkan var langt gengin 4 um morguninn þegar ég hef grun um að lóa hafi bíað bak við mig. Ég sný mér við á rassinum og horfi og hlusta vandlega, en heyri ekkert meir, og get ekki séð neitt heldur og hygg því, að þetta hafi verið vitleysa í mér, lít heim i grenið og svo undan vindlínu frá því, og áminni mig harðlega að hafa vakandi auga á þessum tveimur þýðingarmiklu stöðum, en gleyma mér ekki við að glápa of lengi þar sem ekkert er. En þegar ég er mitt í þessu eintali við sjálfan mig heyrði ég hvínandi gleðikall fyrir aftan og á hlið við mig og mér verður á að snarsnúa mér við, en vegna þess hve ég var illa varinn kom hún strax auga á mig við hreyfinguna, en áður en mér gæfist tími til að lyfta byssunni, er hún komin á slíkan rjúkandi sprett og beint heim á grenið, að ég taldi ekki líkur á að mér tækist að fella hana. Allt gengur nú fljótar fyrir sig en hægt er að segja frá, ég leita eins og brjálaður í hug- skoti mínu með hverju ég eigi að stöðva hana og þeg- ar hún er að komast á grenið arga ég eins og yrðling- ur, sem er sárt kvalinn. Hún snarstanzar og lítur við en nú er ég viðbúinn og skotið ríður af og þar með er hún horfin mér. í annað sinn hleyp ég að greninu taut- andi ómunnbært orðbragð, er ég virkilega búinn að missa bæði dýrin inn? Og lái mér hver sem vill, en ég varð svo glaður þegar ég sá að hún hafði henzt stein- dauð ofan í sporið, að ég hefði gjarnan kysst á minn eiginn rass ef ég hefði getað. Þegar ég hafði fjarlægt læðuna, reyndi ég að kalla á yrðlingana og líkti eftir matargaggi móðurinnar. Sá ég þá þrjá fyrir víst, en eklci gat ég lokkað þá út. Hugsaði ég mér nú að bvrgja grenið, en það átti að vera mjög auðvelt, þar sem þetta var klappargren, aðeins að gæta Heima er bezt 235

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.