Heima er bezt - 01.07.1962, Qupperneq 29

Heima er bezt - 01.07.1962, Qupperneq 29
„Hann Gvendur þarf að fá nýja leðurskó, helzt á morgun,“ sagði Brynjólfur. „Þeir þurfa að vera úr hrygglengju úr nauti,“ gall Gvendur við. „Hvaða ósköp standa til?“ sagði Guðrún. „Gvend langar kannske til að skjótast upp á hraun- brún,“ sagði Brynjólfur og brosti. „Hvað á hann að gera þangað?“ spurði Guðrún önuglega. „En að sækja sauðina,“ sagði Steini, „hann heldur endilega, að þeir séu í brunanum.“ „Ég á engin skæði úr hrygglengju sniðin,“ sagði Guðrún. „Þið verðið þá að sníða þau sjálfir. Og þið verðið að gera það strax,“ bætti hún við, „því það veitir ekki af að fara að láta þau í bleyti, ef hægt á að vera að gera skóna annað kvöld. Fyrr þýðir ekki að reyna það.“ Svo brunaði Guðrún fram pallinn og nið- ur stigann. Brynjólfur reis á fætur og gekk fram. Um leið og hann fór fram hjá Sveinka, stóð strákur upp og sagði við Brynjólf: „Brynjólfur, ég ætla að biðja þig að sníða handa mér skæði líka.“ Brynjólfur leit á hann og brosti. „Ætlar þú í brunann líka? “ spurði hann. „Já,“ sagði Sveinki, einfeldnislega. „Ég þori ekki annað en fara með honum Gvendi, ég er hræddur um að hann fari sér að voða.“ Nú hlógu þeir báðir, Brynjólfur og Steini, og lofaði Brynjólfur Sveinka skæðunum. I vökulok var ákveðið, að þeir skyldu fara þrír að leita að sauðunum morguninn eftir, þeir Steini, Gvend- ur og Sveinki. Áttu þeir að fara upp með bruna og leita í hverju viki meðfram hraunbrúninni og halda þannig alla leið upp á bæi. Ef þeir fyndu ekki sauðina að hcldur, þá skyldi tekin ný ákvörðun annað kvöld. Morguninn eftir var ekki gott leitarveður, en þó sæmilegt. Lögðu þeir þrír af stað í birtingu og fóru ríðandi. Segir ekki af ferðum þeirra þrímenninganna fyrr en þeir koma heim um kvöldið. Var þá orðið dimmt. Komu þeir sauðalausir. Höfðu þeir farið upp með öll- um bruna, alla leið upp að Hvammi. Höfðu þeir spurt þar eftir sauðunum. Hafði vinnumaður, frændi Guð- mundar, orðið fyrir svörum. Svaraði hann með því að spyrja þá, hvort þeir héldu, að þeir væru sauðaþjófar þar í Hvammi. Steini sagðist halda, að verið gæti, að sauðirnir hefðu flækzt með fé þeirra á Uppbæjunum, sem verið hefði fyrir sunnan hraun um haustið. „Getið þið þá ckki gætt að því?“ sagði vinnumaður- inn. „Það er víst enginn, sem bannar ukkur það.“ Hiifðu þeir síðan leitað um heimahaga í Hvammi. En eigi bar sú leit árangur. Vissu þeir ekki, hvað kom til, hvort hcldur það, að heimahagar voru býsna víð- lendir, en áliðið dags, svo að þcir höfðu haft lítinn tíma, cða hitt, að Guðmundur var fjármargur, svo að erfitt var að finna fjórar kindur í öllum þeim fénaði, sem þar dreifðist um haga með fram hlíðum og upp í giljadrögum. Vissu þeir eigi fyrir víst, hvort sauðim- ir leyndust þar eða eigi. „Eg held,“ sagði Brynjólfur, „að þeir séu komnir út að Efri-Völlum.“ „Kann vel vera,“ svaraði Gvendur. „Þó ætla ég að biðja þig að leyfa mér að fara í fyrramálið, ef gott verður veður og skyggnast enn með fram brunanum og jafnvel upp á brún. Ég veit ekki, hvernig á því stendur, en einhvern veginn grunar mig, að þeir kunni að hafa flækzt þangað, en langt inn í brunann hafa þeir ekki komizt, það er ég viss um. Núna á sunnudag- inn á ég að fara út að Efri-Völlum, og þá get ég at- hugað, hvort þeir séu þar. En þá vildi ég vera búinn að leita af mér allan grun hér.“ „Það er ekki nema sjálfsagt, að þú farir, Gvendur minn,“ sagði Brynjólfur. „Þá verð ég að fá að fara líka, húsbóndi," sagði Sveinki. „Langar þig?“ sagði Brynjólfur. „Gvendur þarf mín með, ef hann finnur sauðina.“ Gvendur leit á strákinn og vissi ekki, hvað hann átti að segja. Hann gat ekki mótmælt því, að strákurinn gæti orðið honum að liði, ef hann fyndi sauðina. Þeir voru styggir og enda þótt þeir gætu ekki hlaupið mik- ið í brunanum, gæti orðið erfitt fyrir hann að ráða við þá einan. Auk þess hafði Gvendur ekkert yfir strák að kvarta, þetta sem hann hafði verið með honum við féð í haust. Hann varð að viðurkenna það með sjálf- um sér, að Sveinki var ekkert óduglegri við fé en gerð- ist með stráka á hans aldri, kannske þvert á móti. En þó var það svo, að ekki var honum um, að hafa strák með sér upp í brunann. Endirinn varð sá, að hann sagðist ekkert skipta sér af því, hvort strákur kæmi eða ekki. Kom nú Guðrún upp á pall með ask húsbóndans eins og fyrri daginn. Spurði Brynjólfur, hvort búið væri að gera skó úr skæðunum, sem hann hafði sniðið kvöldið áður. Neitaði Guðrún þvi, en sagðist ætla að setjast við það bráðum. Nokkru síðar, er menn höfðu matazt og kvenfólk setzt upp á baðstofuloft, — Kristín á stól í hjónahús- inu, en þær nöfnur á rúm sín í norðurenda baðstofunn- ar — fór Guðrún að gera skóna á Gvend. Gekk henni það vel, enda vön þeim starfa. En er því var lokið, fór hún að spinna. Tók hún fram bandhnykil úr snældustokk og sagði Sveinka að tvinna. „Ertu búin að gera skóna mína líka, Guðrún?“ spurði Sveinki um leið og hann tók við hnyklinum. „Gera skóna þína?“ át hún eftir. „Það stendur ekki til, að ég geri neina skó á þig, garmurinn.“ „Nú?“ sagði Sveinki. „Ég á samt að fara í brunann með honum Gvendi.“ „Áttú að fara í brunann með honum Gvendi? Hvað gengur eiginlega að ukkur?“ spurði Guðrún og hækk- aði röddina og var mikið niðri fyrir. „Ég veit um tvær persónur,“ sagði hún, „sem farið Heima er bezt 249

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.