Heima er bezt - 01.09.1962, Side 4

Heima er bezt - 01.09.1962, Side 4
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON, SKÓLASTJÓRI: Hann sá betur bri en aonr mæiau Idi i. Pað mún hafa verið snemma í júlímánuði árið 1944, að ég fór með áætlunarbíl frá Reykjavík austur á land. Um morguninn, sem leggja skyldi af stað, varð ég seint fyrir, og voru öll sætin þegar skipuð í bílnum, er ég kom á stöðina, nema á aftasta bekk. Er ég settist þar, sátu þar fyrir tvær ungar stúlkur, og í horninu vinstra megin sat miðaldra maður, meðal- maður á vöxt, feitlaginn og fullur að vöngum. Rjóður var hann í kinnum, stungu þær í stúf við fölt enni og fyrirmannlegt, og sérlega hvítar og nettar hendur. Hárið var þunnt og nokkuð tekið að grána, en allt var yfirbragðið sérlega unglegt, jafnvel barnslegt. Klædd- ur var hann grænum fötum, dökkleitum, með nokkru öðru sniði, en gekk þá og gerðist, minnti helzt á ein- kennisklæði hermanna. Stúlkurnar, sem milli okkar sátu, voru hinar snotr- ustu, auðsjáanlega og auðheyranlega í sólskinsskapi, fullar tilhlökkunar. Varð fljótt ráðið af samtali þeirra, Arið 1952. Þeir virða fyrir sér ungar greniplöntur á Hallorms- stað. Frá vinstri: Robert Taylor, tilraunastjóri i skógrcekt frá Alaska, Hákon Bjarnason, Guttormur Pálsson og Garðar Jónsson, skógarvörður á Tumastöðum. — Ljósm. S. Blöndal. að þær voru að leggja upp í sumarleyfisferðalag og förinni mundi vera heitið austur á land. Svo sem fyrr segir, var bíllinn fullskipaður, og virt- ust allir verða glaðir og hressir í bragði, er morgun- drunginn bráði af mönnum. Brátt kvað við söngur um allan bíl, og við á aftasta bekk tókum rösklega undir. Er söngnum slotaði, tókust samræður með mönnum, og kvað þar einkum að fyrirfrú einni, er sat í fremsta bekk. Virtist hún hafa mjög ákveðnar skoðanir um menn og málefni og tók býsna óstinnt upp fyrir mönn- um, ef þeir höfðu aðra skoðun á málunum, iafnvel eigin faðerni. Ekki lögðum við sessunautarnir til þessara samræðna, nema hvað sá grænklæddi heyrðist stundum hlæja stuttum, snöggum hlátri, þegar frúin tók sem röskleg- ast af skarið. Ungu stúlkurnar töluðu um sín hugðarefni, bar mikið á upphrópunum og hálfum setningum. Mátti þó af máli þeirra ráða, svo sem fyrr segir, að þær væru á leið austur á land til að skemmta sér. Þær komust brátt að því, að við, sessunautar þeirra, vorum báðir að aust- an, og fengu þær þá áberandi meiri áhuga á okkur og tóku að spyrja í þaula. Meðal annars spurðu þær að því, hvort við hefðum komið í Hallormsstaðaskóg. Þær væru að hugsa um að tjalda þar. Ekki gat ég borið á móti því. Og er stúlkurnar spurðu þann grænklædda, hvort hann þekkti Hallormsstaðaskóg, hló hann við og sagði: „Jú, jú, svona nokkuð.“ Þær spurðu hann hvort skógurinn væri ekki „agalega fallegur“, þær hefðu heyrt það. „Jú, ekki ósnotur, en Þórarinn þekkir hann,“ og um leið leit hann til mín glettnum og kímileitum augum. Kom á mig að mestu eftir það að upplýsa stúlk- urnar um Austurland. Bílferðin gekk eftir áætlun, allt þangað til komið var að Varmahlíð í Skagafirði. Var það um kvöldmatar- leytið, og sagði bílstjórinn, að matur væri á borðum fyrir þá, sem vildu. Voru þeir margir, sem það vildu, og auðheyrt var, að bílstjórinn var einn í þeirra hóp, en frúin í framsætinu vildi óð og uppvæg, að ferðinni yrði sem skjótast haldið áfram til Akureyrar, en þang- að var för hennar heitið. Varð um þetta nokkur ágrein- ingur. Vildu þeir, sem óvísan áttu kvöldverð á Akur- eyri, snæða þama, en hinir halda áfram. Hvort sem um þetta var talað lengur eða skemur, varð það úr, að haldið var áfram án frekari tafar. 296 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.