Heima er bezt - 01.09.1962, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.09.1962, Qupperneq 9
Verið að fella lerkitré i Hallormsstaðaskógi. urframleiðslu, hljóta að reiknast í hundruðum milljóna króna. Andvirði innflutts barrviðar nam árið 1960 rúmum 80 milljónum króna (sbr. verzlunarskýrslur 1960). IV. Þetta greinarkorn um Guttorm á Hallormsstað hófst með því, að sögð var af honum saga, sem samfylgdar- manni í bíl, af því að þar koma býsna skýrt í ljós ýmis þau sérkenni, er við, förunautar hans um lengri eða skemmri tíma, þekkjum vel og gera hann minnis- stæðan: hógværðin, hæglát glettni, ekki upprifinn úr hófi, en einarður, ef með þarf, og ekki allur þar sem hann er séður. Nú langar mig að lokum að segja af honum aðra sögu, en að henni var ég hvorki heyrnar- né sjónar- vottur, eins og þeirri fyrri, og þess vegna getur hún verið færð í stílinn, en við, sem þekkjum Guttorm, getum vel trúað henni. Einhverju sinni höfðu þeir mág- arnir, Benedikt Blöndal og Guttormur, verið að ræða um þann möguleika að veita saman lækjum uppi í fjalli fyrir ofan Hallormsstað vegna fyrirhugaðrar vatnsvirkj- unar. Greindi þá á um vegalengd þá, er grafa þyrfti. Guttormur vildi ekki láta af sinni skoðun, verandi kunnugri öllum staðháttum en Blöndal, sem fyrir skömmu var kominn að Hallormsstað. Spilar þá Blöndal út sínu trompi, einu af hátrompum vísindanna og segir: „Hvað er þetta, maður, ég hef mælt þetta, það eru ná- kvæmlega þrjátíu metrar.“ „Mælt,“ segir þá Guttorm- ur og lítur upp á mág sinn, „heldurðu að ég sjái ekki betur en þú mælir.“ í þessu tilsvari gæti verið fólginn leyndardómurinn um Guttormslund. Takmörkuð virðing fyrir mæling- um og fræðimennsku, hafi hann ekki sannreynt sjálfur, meðfæddur þrái að láta ekki af skoðun sinni fyrr en í fulla hnefana, en jafnframt nokkurt sjálfstraust á eigin sjón og dómgreind. Alls þessa þurfti með, auk brenn- andi hugsjónar og knýjandi þarfar til að verða landi sínu að liði, til þess að ganga í berhögg við yfirboðara sinn, skógræktarstjórann, sem að sjálfsögðu var honum fremri að lærdómi, og hunza þær mælingar, er „sönn- uðu“, að barrviðir gætu ekki vaxið á íslandi. V. Sólmánaðaróskadrengurinn á Hallormsstað er nú hniginn á efri ár og starfsgetan tekin að þverra, þótt starfsviljinn sé jafn brennandi og fyrr. Hann ber ellina vel, er enn keikur og hermannlegur í fasi, og vel má hann una við minningarnar um ævi- starf sitt. Hann sá betur en aðrir mældu, og því hlotn- aðist honum, eins og fleirum af hans frændum, að verða óvenjulega þjóðnýtur maður. Að sjálfsögðu var Guttormur hvatamaður að stofn- un skógræktarfélags Austurlands og formaður þess frá byrjun. Er hann varð sjötugur, færði stjórn félagsins honum smágjöf sem þakldætis- og virðingarvott. Var það lampi, gerður úr lerkistofni úr Guttormslundi. Auk nafns og ártala voru á lampann skornar landvættir ís- lands og þessi staka: Omælt fyrir ævistarf ærnar þakkir gjöldum. Landið betra er í arf orðið af þínum völdum. Það er gæfa Guttorms, hversu margir geta tekið undir þessar þakkir. Eiðum, í apríl 1962. Bréfaskipti Elín Jónasdóttir, Sílalæk, Aðaldal, S.-Þing. óskar eftir bréfa- skiptum við pilta á aldrinum 16—18 ára. Karl Þ. Jónasson og Gústaf S. Jónasson, Kjóastöðum, Bisk- upstungum, Árn., óska eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldr- inum 16 til 20 ára. Æskilegt að rnynd fylgi. Ingveldur Kristinsdóttir, Naustvík, pr. Djúpavík, Strand., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—20 ára. Steinunn Kristinsdóttir, Naustvík, pr. Djúpavík, Strand., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 14—17 ára. Sigurrós Agustsdóttir, Naustvík, pr. Djúpavík, Strand. óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 12—15 ára. Ásdis Sigurðardóttir, Kirkjuvegi 57, Vestmannaeyjum, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 12—13 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Heima er bezt 301

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.