Heima er bezt - 01.09.1962, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.09.1962, Qupperneq 10
MAGNUS BJORNSSON A SYÐRA-HOLI: ömlu kynni [Ieymast ei né gömul tryggéamál a Pegar ég kom í Gagnfræðaskólann á Akureyri haustið 1908, var ég nítján ára, fullorðinn mað- ur. En í reyndinni var ég fávís heimaalningur, hafði lítt komið út fyrir mína sveit, fáum kynnzt og þekkti varla af eigin raun annað fólk en sveitunga mína. En ég var þá, og hef alla tíð verið, forvitinn um fólk, bæði dautt og lifandi, og reynt að gera mér grein fyrir einkennum þess og skaphöfn, eftir því sem heimildir benda til og eigin kynni, athugunar- gáfa og dómgreind hrökkva til. Það var mér því líkast sem að koma í nýjan heim eða framandi land, er ég við skólasetningu kom inn í sam- komusal Gagnfræðaskólans í hóp væntanlegra skóla- systkina. Ég renndi forvitnisaugum yfir flokkinn, leit af einum á annan og sá, að mjög var þetta sundurleit- ur hópur að útliti, aldri og þroska. Sumir voru einarð- legir og upplitsdjarfir, aðrir virtust feimnir og fara hjá sér í margmenninu. Það voru þeir, sem úr fásinn- inu komu og undruðust, eins og ég, hvað heimurinn var stór og margmennur. Einn var sá, er ég við fyrstu sýn veitti sérstaka at- hygli. Þreldegur maður, djarfmannlegur og snöggur í hreyfingum. Breiður var hann um herðar og þvkkur Úrvalsleikfimisflokkurinn í G. A. 1908. I.árus Rist kennari á miðri myndinni. Jón Sveinsson i miðröð lengst til heegri. undir hönd, einarðlegur í fasi og framgöngu. „Hann hefur víst krafta í kögglum þessi,“ hugsaði ég. Ein- hvern heyrði ég nefna hann Jón. Það þótti mér h'tið Leikfimisflokkur i Gagnfrceðaskólanum á Akureyri 1908. nafn og hversdagslegt á svo svipmiklum manni. Hann hefði heldur átt að heita Gunnar eða Skarphéðinn. Þá var hugurinn allur við fornöld og íslendingasögur og glýja í augum af því að mæna á ljómann af „gullöld íslendinga“. Mér er minnisstæður fyrsti leikfimitíminn okkar í I. bekk. Lárus Rist kennari reyndi að láta okkur stökkva yfir snúru og ganga samstiga í fylkingu eftir endilöngu gólfi leikfimihússins, „marséra í takt“, eins og sumir kölluðu það. Hjá mörgum voru viðbrögðin heldur óliðmannleg. Sumir felldu snúruna, ef hún tók hærra en á miðjan kálfa og slettust áfram óskipulega á göngu, þrátt fyrir það, að kennarinn skipaði skörulega „áfram gakk“, og teldi fyrir skrefunum „einn, tveir; einn, tveir“. Ég sá að Jón, hinn vaski bekkjarbróðir minn, dró ekki af sér eða gerði klaufastrik. Hann lagði sig fram um að gera sem bezt, og ég sá ekki betur en að hann hleypti í brýrnar og biti á jaxlinn. Og nú vissi ég nokkur deili á honum. Hann var jafnaldri minn, hét Jón Sveinsson, Austfirðingur að ætt og uppruna, frá Húsavík í Borgarfirði. — Þegar Lárus Rist fylkti Iiði sínu til göngu, setti hann ekki upp svínfylking að dæmi fornra herkonunga, enda vorum við engir stríðs- menn í gamalli merkingu þess orðs. Hann skipaði í tvö- Framhald á bls. 306. 302 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.