Heima er bezt - 01.09.1962, Page 32

Heima er bezt - 01.09.1962, Page 32
fastshestana, því þeir áttu til að vera dálítið viðsjár- verðir. Þeir voru styggir og miklir með sig og vísir til alls, ef út í það fór, meðal annars að hlaupa í burtu frá prófastinum, þar sem hann var næturgestur, ef þeirra var ekki gætt nógu rækilega. Var þeim til þess trúandi að sæta lagi, er dyrnar voru opnaðar í granda- leysi og ryðjast út ofan á mann, seta upp rassinn og æða út í myrkrið. Var því allur varinn góður, sagði prófastur. Kristín leiddi maddömuna systur sína í bæinn. Fylgdu þeir á eftir, prófastur og Brynjólfur. Fór Kristín með þau inn í baðstofu og í hjónahúsið. Gerði hún það bæði af því, að þar var hlýtt og notalegt, en kalt í stofunni, enda þurfti að taka þar til og koma ýmsu í lag. Þar átti að leggja á borð, því þar skyldu þau snæða, prófastshjónin, og þar áttu þau að sjálf- sögðu að sofa. Voru þau nú sezt niður í hjónahúsinu og tók prófastur til máls: „Já. Við ætluðum satt að segja að koma hingað fyrir löngu, þó ekki væri nema til þess að húsvitja,“ og nú brosti séra Ingimundur. „Ég er vanur að húsvitja unt og upp úr veturnóttum, eins og þið vitið. En þetta dróst nú að fara hingað. Satt að segja var ég að bíða eftir því að stillti til. Þetta er svo langt. Maður verður rennblautur, já, gagndrepa, ef rignir. Nú, þetta voru stöðugir umhleypingar og votviðri fram yfir jól. En í stillum og þessu góða færi er gaman og hressandi að ríða hingað, finnst þér það ekki, Ragnhildur mín?“ Jú, Ragnhildi fannst það. Svo var farið að ræða um almenna hluti, skepnuhöld, heilsufar, ýmsa viðburði innan sveitar og jafnvel utan sveitar. Þannig fékk Kristín fréttir af Guðnýju systur sinni á Borgum, en af henni hafði hún ekki frétt frá því í vor, að Guðný hafði komið í brúðkaup systur sinnar. Annars var í raun og veru ekkert að frétta. „Ekki einu sinni sveitarlimur hrokkið upp af,“ sagði Brynjólfur og hermdi eftir Jóni ríka, því sagt var, að hann væri vanur að komast svo að orði, er hann var spurður frétta og kunni ekki frá tíðindum að segja. Hlógu nú allir og gekk svo um hríð, að fólk ræddi saman og skemmti sér. Um þetta leyti var það, að þeir fjörumenn riðu í hlað, svona, með fremur ótilhlýðilegum hraða. Vildi þá svo til, að Sveinki var að vepjast fyrir utan dyrnar. Hafði hann lokið við að láta reiðtýgin inn í skemmu og hugðist ganga í bæinn. Hafði hann þó numið staðar fyrst til þess að hlusta, hvort hann heyrði ekki til þeirra félaga. Þóttist hann vita, ef hann heyrði ekki til þeirra, þá væri sér óhætt að líta inn stundarkorn, því að hljóðbært var í næturkyrrðinni. Þá ætlaði hann að hleypa út hundunum, sem höfðu laumazt inn á eft- ir gestunum. En ef þeir væru úti, myndu þeir vafalaust gelta, ef þeir yrðu varir við mannaferð. Sveinki hafði ekki hlustað lengi, er hann heyrir einn eða tvo menn flengríða heim að bæ. Voru þeir ekki langt undan og að vörmu spori grillir hann í þá. Og áður en hann fengi tíma til að brjóta heilann um það, hvað kynni að valda þessu reiðlagi, eða hvar þeir væru dráttarhestarnir og sleðarnir, voru þeir Gvendur og Steini komnir heim að dyrum. Er óþarft að taka það fram, að þeim félögum var báðum svo mikið niðri fyr- ir, að þeir veittu hvorki Sveinka eftirtekt, né heldur því, sem óvanalegt var þó á rúmhelgum degi, að ljós var í stofunni. Þegar þeir félagar eða öllu heldur hestarnir höfðu numið staðar, sneri Steini sér að Gvendi og sagði í fremur óblíðum róm: „Ertu orðinn vitlaus, Gvendur?“ „Þú ert vitlaus sjálfur,“ sagði Gvendur. „Þú fælir undir mér hestinn,“ hélt Steini áfram og hækkaði röddina, „og kemur svo á eftir mér með alla anga út í loftið, lemjandi klárinn svo að smellirnir heyrast langar leiðir. Hvað hefur þetta að þýða?“ „Og hvað hefur það að þýða hjá þér að reyna að komast heim á undan mér og skilja mig einan eftir í myrkrinu? Eða vorum við ekki sendir á fjöru saman, kannske? Áttum við ekki að fylgjast að?“ Það var ekki siður í þá daga þar í Miklahreppi að hafa glugga opna, sízt í kólgu. Hefði það þótt saga til næsta bæjar, ef einhver hefði látið sér detta í hug, að slíkt væri til heilsubótar. Voru baðstofugluggarnir á Bökkunum engin undantekning frá almennri reglu um þetta. Engu að síður heyrðist nú ómur af allháværum röddum inn um gluggann á hjónahúsinu, og varð til þess, að þau þar inni tóku að leggja við hlustirnar. Duldist engum, hvorki húsbændunum né prófastshjón- unum, að úti á stéttinni voru menn í allt annað en hóg- værum samræðum og notuðu miður kristilegt orð- bragð. Enda keyrði það svo langt úr hófi fram, að jafnvel Sveinld auminginn, sem, samkvæmt yfirlýsingu fyrrverandi húsbænda, hafði ekki nema gripsvit, sá þó, að við svo búið mátti ekki standa, einkum og sér í lagi með tilliti til gestanna. En með því að ákafinn var svo mikill hjá þeim fjörumönnum að tala saman, sá Sveinki sér ekki annað ráð vænna til þess að vekja athygli þeirra á sinni ógöfugu persónu en að reka upp gól. Hittist þá svo á, að hann var staddur rétt fyrir aftan Gvend. Brá Gvendi svo við hljóð þetta, að hann rak upp annað gól og sneri sér snöggt við. Varð hann þá brátt áskynja, hvaðan gólið hafði komið og ætlaði að fara að hella sér yfir Sveinka, en Sveinki varð fyrri til að taka til máls og sagði eins hátíðlega og honum var mögulegt: „Prófasturinn er kominn.“ Datt nú allt í dúnalogn. Þeim félögum hefði ekki orðið biltara, þótt þeim hefði verið tilkynnt, að eldur væri uppi. „Er prófasturinn kominn?“ sagði Steini. „Já,“ sagði Sveinki. Nú varð augnabliks þögn. Svo sagði Gvendur í fyr- irlitningartón og leit til Steina: „Hann Iýgur.“ Framhald. 324 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.