Heima er bezt - 01.10.1962, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.10.1962, Qupperneq 8
Steinunn. Hannes. Guðrún. Sigurður. sveitungunum fyrir það mikla traust, sem þeir hafa sýnt honum, þá er hann lítur til baka yfir langan starfsdag. En má ekki minnast hans á fleiri sviðum — öðrum en þeim, sem lúta að félags- og umbótamálum sveitar og sýslu? Hvað er um manninn sjálfan, hans innri mann og þau áhrif, sem hann varð fyrir í æsku og hann persónulega hefur haft á samferðamenn sína. Er úr vegi að skyggn- ast þar ofurlítið um? Það steðjuðu margir erfiðleikar að íslenzku þjóðinni fyrr á öldum, — drepsóttir, eldgos, harðindi, og í kjöl- farið sigldi oft og tíðum hin grimmúðga hungurvofa. Það var erfitt að rétta við eftir harðindin. Sumir flýðu land frosts og funa og fluttu til Vesturheims. Ungur maður háði baráttu með sjálfum sér. Átti hann að yfir- gefa sveitina, héraðið, fósturlandið. Ef til vill var auð- veldara að lifa vestanhafs heldur en hér heima, milli freyðandi jökulvatnanna, frammi fyrir skriðjöklum, gapandi giljum og gróðurlitlum fjöllum. Að búa og byggja afkomu sína við erfið skilyrði krafðist mikils af þeim mönnum, sem höfðu manndóm, hug og þor — en það gat líka gefið þeim ýmislegt í staðinn. Niður fjallalæksins var stórbrotin hljómkviða, fjöll og jöklar höfðu sína sérstöku fegurð og tign hversu erfitt, sem yfir var að klífa. Það var fagurt að horfa af hólnum í Einholti norður yfir sveitina, fjöllin og jöklana. Kannske honum hafi verið svipað í hug og skáldinu, sem síðar sagði: „Þar, sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt og jörðin fær hlutdeild í himn- inum. Þar búa ekki framar sorgir. Þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“ Nei, forlagadísin, sem sveif yfir vöggu Kristjáns í Einholti lét ekki að sér hæða. Það átti ekki fyrir hon- um að liggja að hverfa í mannhaf Vesturheims. Vissu- lega hafði Vesturheimur þörf fyrir góða liðsmenn, — en Landvættir íslands kölluðu á Kristján til starfa. Því kalli hefur hann svarað með margháttuðum störf- um fyrir sveit sína og sýslu svo af ber. Það er hægt að afkasta miklu dagsverki með hinni stilltu og léttu skap- gerð hans Kristjáns, og með trúna á framtíðina og sig- ur hins góða. Slíkir menn sjá alltaf einhverja leið út úr yfirstandandi erfiðleikum. Hinn snjalli höfundur Hávamála segir: Afhvarf mikið er til ills vinar Þótt á brautu búi, — en til góðs vinar liggja gagnvegir þótt hann sé firr farinn. Þetta forna ljóð er enn í dag sígilt. Það hafa legið gagnvegir margra til Kristjáns í Einholti undanfarna áratugi, yfir sanda og óbrúaðar jökulár. Menn eins og Kristján einangrast ekki þótt þeir búi fjarri þjóðbraut, sem vegur sig upp yfir landið í kring, gerð af manna höndum. Hún var annars eðlis sú þjóðbraut, sem mynd- aðist til Kristjáns í Einholti — ósýnileg, en þó til, varð fjölfarnari með ári hverju. Þá braut hafa margir farið. Hún hóf menn yfir torleiðið. Þessa braut var gott að fara, hún var gjöful sínum vegfarendum. Þegar ég hugsa til Kristjáns í dag, þá kemur mér í hug að aðgreina orðin að þekkja og kynnast. Það gefur manni lítið að þekkja Kristján aðeins í sjón — en að kynnast honum — það er annað og meira. Ég hef kynnzt Kristjáni í síðastliðin 6 ár. Með hverju ári hefur hann opnað fyrir mér ný og ný sannindi. Menn eru stundum að tala um það, að gaman væri að vera orðinn ungur í annað sinn, eiga lífið og starfið framundan á ný. Jú, það gæti verið á margan hátt freistandi, — en er ekki margt af því, sem fyrir okkur hefur borið á lífs- leiðinni það sterkt í okkur, að við viljum það ekki missa? Ég myndi ekki vilja tapa úr mínum hugarheimi kynn- ingunni við Kristján í Éinholti. 336 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.